Vikan - 29.08.2000, Qupperneq 22
Við opnuðum í júní í fyrra en
höfðum lítið gert til að kynna
okkur. Við vissum ekki alveg
hvenær framkvæmdum hér yrði
lokið svo við þorðum ekki að
vekja mikla athygli á okkur. Vet-
urinn gekk samt þokkalega og
við erum nokkuð ánægðir. Sum-
arið hefur gengið vonum framar
og ég get fullyrt að héðan hefur
ekki farið neinn óánægður gest-
ur.“
Únýtar lagnir, opið
skolprör og lekt pak
Örn er smiður og það liggur
beint við að spyrja hann hvort
hann hafi sjálfur séð um endur-
bætur á húsinu.
„Nei, hér vann hópur af fólki.
Húsið var tekið alveg frá grunni
og endurbætt en ég hef séð um
allt viðhald eftir að aðalviðgerð-
inni lauk.“
„Húsið var gert nánast fokhelt
áður en byrjað var að byggja upp
aftur," bætir Pórður við. „Fyrri
eigendur leigðu húsið út en létu
allt viðhald á því vera. Pakið lak
til að mynda og panelinn í risinu
mátli mylja í sundur milli fingra
sér, svo fúinn var hann eftir rak-
ann. Allar lagnir voru ónýtar og
við uppgötvuðum meðal annars
að hér fyrir aftan var skolplögn-
in úr húsinu í sundur og allt lak út
í jarðveginn. En húsið hefur mik-
ið breyst og til marks urn það er
að fæstir tóku eftir þessu húsi
áður en það var gert upp en nú
verðum við oft varir við að út-
lendingar sem leið eiga framhjá
stoppa til að taka myndir af því.“
Luna er íbúðahótel og gistihús
en hver svfta er með setustofu,
eldhúskróki, svefnherbergi og
baði.
„Við veitum þó sömu þjónustu
og á hótelum,“ segir Örn. „Her-
bergin eru þrifin, skipt er urn
handklæði og búið um rúm.“
„Nýlega tókum við í notkun
tvö herbergi í risinu og þeim fylg-
ir aðgangur að eldhúsi og gott
baðherbergi. Þessi herbergi
henta vel þegar þrír ferðast sam-
an,“ segir Þórður. „Undir súðinni
er svo setustofa með sjónvarpi og
þar er mjög notalegt að sitja á
veturna þegar búið er að kveikja
upp í kamínunni sem þar er.“
Á heímboð um allan heim
Eru viðskiptavinir íbúðagisti-
húss á einhvern hátt öðruvísi en
þeir sem sækja gistiheimili eða
hótel?
„Nei, hingað kemur öll flóran.
Kannski má segja að fjölskyldu-
fólk sækist frekar eftir að vera út
af fyrir sig í íbúðum, enda þægi-
legra þegar ferðast er með börn.
Kaupsýslumenn koma hingað
sömuleiðis gjarnan. Hér eru þeir
22 Vikan
meira út af fyrir sig en á hótel-
um, hafa sinn eigin lykill og koma
og fara þegar þeir vilja. Sömu-
leiðis hafa þeir eigin setustofu
svo þeir geta boðið til sín gestum,
haldið fundi o.s.frv. En hingað
kemur alls konar fólk og gestir
okkar skera sig ekki á nokkurn
hátt úr. Maður kemst í nánari
snertingu við fólk en starfsfólk á
hótelum. Ég á til að mynda orð-
ið heimboð um allan heim og
margir biðja mig endilega að hafa
samband eigi ég leið um þeirra
heimaslóðir.
Við verðum líka oft að bregða
okkur í hlutverk ferðaskrifstofu
og finna hentugar ferðir fyrir fólk
og útvega því upplýsingar um
eitthvað sem það hefur áhuga á
að sjá eða kynnast. Um daginn
var ég til dæmis í eina og hálfa
klukkustund inni á herbergi hjá
bandarískum hjónum að kynna
þeim ferðamöguleika um land-
ið.“
Vegna þess að hver hæð gisti-
heimilisins Lunu er sjálfstæð ein-
ing gátu þeir innréttað hverja
íbúð í sínum lit. Ein er blá, önn-
ur appelsínugul, sú þriðja rauð,
fjórða græn o.s.frv.
„Leirtau í íbúðunum, gardínur
og annað er svo í samræmi við lit-
inn á þeim,“ segir Örn. „Fólk hef-
ur mjög gaman af því að fá að
velja sér íbúð í uppáhaldslitnum
sínum og upphaflega vildum við
skíra gistiheimilið Regnbogann
en það nafn er því miður frátek-
ið heiti á kvikmyndahúsi."
Regnboginn er vissulega rétt-
nefni á jafnlitríku gistiheimili en
orðið Luna er ekki síður töfrum
slungið. Máninn er einnig fyrir-
bæri sem sjá má á himnum eins
og regnboginn svo þeir félagar
þurftu kannski ekki að fórna of
miklu þegar þeir féllu frá því
nafni sem þeir hefðu uppruna-
lega kosið á gistiheimilið.