Vikan - 29.08.2000, Page 27
Hvernig eigum við samanP
Austur- og ves
Kua reikningsaðferðin er frábær við að reikna út hvernig fólki kemur saman. Hún er
afar notadrjúg við að reikna út hvort ástarsambönd eigi eftir að endast en einnig má
nota hana til að sjá út sambönd við vinnufélagana, vini eða yfirmenn. Einföld regla seg-
ir að fólk innan sama áttahóps eigi vel saman en að fólki innan austurhópsins (með
þá innanborðs sem hafa tölurnar 1,3,4 og 9) lyndi síður við vesturhópinn (með töl-
urnar 2, 5,6,7 og 8). Ef t.d. kennari þinn er i vesturhóþnum og þú í austurhóþnum
turhópar fólks
þurfið þið að vinna betur að því að samkomulagið haldist en ef þið væruð bæði i
sama hópi.
Taflan sem hér fylgir á eftir segir til um hvernig fólk með mismunandi Kua tölur á
saman í starfi og einkalífi. Mundu að kyn viðkomandi manneskju, sem þú ert að
rannsaka, skiptir máli. (Karlar (kk) með Kua töluna 5 sjá kk fyrir aftan töluna sem við
á um þá og konur (kvk) með sömu Kua tölu sjá kvk fyrir aftan töluna sem á við þær.)
Kua tölur sem eiga vel saman
G ó ð u r
v i n u r
maki eða samstarfsmaður
Kua talan hín Sheng Chi Kua Tien Yi Kua Nien Yen Kua 9
1 3 4 í Fu Wei Kua
2 7 8 (kk), 8 og 5 (kvk) 2 og 5 (kk), 2 (kvk) 9
3 1 9 3 6
4 9 1 4 4
5 7 (kk), 6 (kvk) 8 (kk), 2 (kvk) 5 3
6 8 (kk), 8 og 5 (kvk) 7 6 6 (kk), 7 (kvk)
7 2 og 5 (kk), 2 (kvk) 6 7 2 og 5 (kk), 2 (kvk)
8 6 2 og 5 (kk), 2 (kvk) 8 (kk), 8 og 5 (kvk) 8 (kk), 8 og 5 (kvk)
9 4 3 7
Sheng Chi Kua
Afar samþýðanlegt. Þessi manneskja
færir þér mikla gæfu. Hann eða hún
verður hvort sem er mjög sterkur og
traustur vinur, yfirmaður eða maki.
Tien Yi Kua
Þessi manneskja mun hugsa vel um þig
og samband ykkar einkennist af rósemi.
Þér er óhætt að leggja líf þitt
í hennar hendur og á milli
ykkar mun alltaf ríkja traust.
Nien Yen Kua
Samband í fullkomnu jafn-
vægi. Þú getur treyst því að
þessi manneskja mun gæta
hagsmuna þinna.
Fu Wei Kua
Þið eigið vel
saman.
Hann/hún styð-
ur þig, veitir þér
hugrekki og sér
til þess að hæfi-
leikar þínir njóti
Kua tölur sem eíga iila saman
Gættu h í n vei á hessu fóiki!
Kua talan bín Ho Hai Kua Wu Kwei Kua Lui Sha Kua Chueh Ming Kua
1 6 2 og 5 (kk) 7 8 og 5 (kvk)
2 9 1 3 4
3 8 og 5 (kk) 7 2 og 5 (kk) 6
4 7 8 og 5(kvk) 6 2 og 5(kk)
5 9 (kk), 3 (kvk) 1 (kk), 4 (kvk) 3 (kk), 9 (kvk) 4 (kk), 1 (kvk)
6 1 9 4 3
7 4 3 1 9
8 3 4 9 1
9 2 og 5 (kk) 6 8 og 5(kvk) 7
Ho Hai Kua
Þessi persóna hentar þér ekki vel. Hún
eða hann getur valdið ýmsum óhöpp-
um í lífi þínu. Samband ykkar gengur
ekki auðveldlega fyrir sig og það getur
komið upp misskilningur í flestum mál-
um. Vandamálin eru þó ekki óyfirstígan-
leg. Reyndu að horfa fram hjá því smá-
vægilega og vinna að betra sambandi.
Wu Kwei Kua
Þið eigið afar illa saman og eruð ósam-
mála um flesta hluti. Samband ykkar
einkennist af reiði og gremju sem sýður
undir niðri. Utanaðkomandi aðilar geta
orsakað mikil vandræði á milli ykkar.
Vertu varkár!
Lui Sha Kua
MJÖG óheillavænlegt. Þessi persóna
mun valda þér mikilli sorg og ótöldum
vandræðum. Feng shui fræðin segja sam-
band þitt við þessa persónu merkja
mikla hættu. Vertu afar varkár!
Chueh Ming Kua
Þessi manneskja dregur úr þér allan
mátt og veldur bara skaða. Hann/hún
getur atað nafn þitt auri og valdið þér
eignatjóni og stöðumissi. Vertu mjög á
verði gagnvart þessari manneskju sama
hversu vináttan/sambandið við hana lof-
ar góðu í byrjun. A einhverjum tíma-
punkti mun hún svíkja þig algjörlega.
Mundu að þessi manneskja er ekki endi-
lega slæm; Kua tölurnar ykkar eiga ein-
faldlega hroðalega illa saman.
Reiknaðu út Kua tölur vina þinna og
kunningja og sjáðu hvernig þið eigið
saman. Góða skemmtun.