Vikan - 05.09.2000, Side 11
Hrönn Vilhclinsdóttir
í Textílkjallaranuni
sérhæfir sig í hönnun
fyrir svefnherbergið.
L Cr
Textílkjallarinn
I Textílkjallaranum á
Barónsstíg 59 situr Hrönn
Vilhelmsdóttir við vinnu
sína og hún situr sjaldnast
kyrr að eigin sögn heldur
hamast við þrykkborðið.
Hrönn einbeitir sér að því
að hanna nytjalist fyrir
svefnherbergið. „Ég mála
og þrykki eigin hönnun og
myndir á gluggtjöld, sæng-
urverasett, púða og náttföt
bæði fyrir börn og full-
orðna,“ segir hún. „Fyrir
fullorðna er parið, konan
með sínar mjúku línur og
karlinn, ferkantaðri en
þannig erum við bara.
Börnin fá bænir og mynd-
ir. Ég gerðist guðmóðir lít-
illar stúlku fyrir allmörgum
árum og þá fór ég að kynna
mér hlutverk guðmæðra.
Þær eiga að kenna börnunum
bænir og halda kristninni að
þeim. Ég fór að velta fyrir mér
hvernig ég gæti uppfyllt þessa
skyldu mína og þá vaknaði þessi
hugmynd að skrifa bænir á
koddaver og púða handa barn-
BSbiIWm inu." Hrönn hef-
ur valið gamlar sígildar íslensk-
ar bænir á koddana og svo vand-
aðir eru litirnir sem hún notar að
elstu vöggusettin sem eru tólf ára
eru enn í dag eins og ný og þau
má þvo á 60° hita. Bænirnar rit-
ar hún á sængurverasettin eftir að
mynstrið hefur verið þrykkt og
hún er oft beðin að merkja sæng-
urverasett og púða með nafni
barnsins. „Það gerir þetta enn
persónulegra og skemmtilegra,"
segir Hrönn.
Hún hannar líka frábær
gluggatjöld íbarnaherbergið sem
byggir á gömlu barnagælunni
Hani, krummi, hundur, svín.
Gluggatjöld, rúmteppi og púðar
í hjónaherbergi eru úr mjúku og
frábærlega fallegu satínviskós
sem er viðkomu eins og vandað
silki. Satínviskós er náttúrulegt
efni unnið úr sellulósa eins og
bómull og því þolir það vel þvott
og er slitsterkt. Hrönn sýndi
vinnu sína á handverkssýning-
unni að Hrafngili í Eyjafirði nú í
ár og fékk sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir skapandi hönnun. Hún
er einnig meðal þeirra lista-
manna sem dómnefnd valdi úr
hópi umsækjenda til að sýna á
sýningunni Nytjalist úr náttúr-
unni sem Handverk og hönnun
stendur fyrir ásamt Reykjavík
menningarborg og verður í Ráð-
húsinu í haust. Þema sýningar-
innar er vatnið og Hrönn hann-
aði mynstur úr sérstöku efni sem
bólgnar upp þegar það er hitað.
„Ég hef fengið hingað til mín
nemendur úr finnskum listahá-
skóla sem fá styrk til að kynna sér
vinnu listamanna í öðrum lönd-
um á lokaári sínu. Ungar stúlk-
ur sem voru hér hjá mér síðast
kynntu fyrir mér þetta efni og ég
fékk þá hugmynd að þrykkja það
á flauel. Þær höfðu ekki trú á að
hægt væri að nota þetta á flauels-
grunn en það tókst og dómnefnd-
in varð mjög hrifin þegar ég sendi
henni hugmynd mína.“ Mynst-
ur Hrannar eru dropar sem ým-
ist eru eins og að falla niður úr
loftinu eða lentir á jörðinni þar
sem þeir eru að byrja að mynda
polla og þeir njóta sín sérlega vel
á ljósu flauelinu sem hún valdi að
nota þrátt fyrir hrakspár.
Snegla llsthús
Á Klapparstígnum er Snegla
listhús í litlu gömlu húsi með sál.
Þar eiga margar listakonur verk
og þeirra á meðal fimm textfllista-
konur. Textílhönnun kvennanna í
Sneglu vekur athygli fyrir það
hversu fallegir og hreinir litirnir
eru í verkum þeirra. Indígóblár
litur og fallega hreinn purpurar-
auður eru í mörgum slæðum og
treflum en einnig í töskum, hött-
um og púðum.
í Sneglu er að finna afrakstur
vinnu Ernu Guðmarssdóttur mál-
ara en hún hefur unnið nokkuð
mikið með silki, bæði málað fal-
legar landslagsmyndir á silki og
gert silkislæður þótt hún telji sig
ekki textíllistamann. Ingiríður
Oðinsdóttir textílhönnuður,
þrykkir á silkislæður og trefla.
Hún þrykkir líka á dúka og púða
úr hör og vinnur einnig mikið með
viskósvelúr og gerir úr því fallega
trefla. Björk Magnúsdóttir textíl-
hönnuður, hannar og þrykkir
púða og töskur úr viskósvelúr og
málar á silkislæður. Þuríður Dan
Jónsdóttir textílhönnuður þrykk-
ir myndir á efni og málar á silki-
slæður. Jóna Sigríður Jónsdóttir
vinnur einnig silkislæður en auk
þess málar hún og þrykkir mynd-
ir á efni. Hún hefur einnig þrykkt
á púða en um þessar mundir er
hún að vinna úr nýjum hugmynd-
um sem eiga eftir að sjást í hill-
um Sneglu listhúss í framtíðinni.
Guðrún Jónsdóttir Kolbeins
veflistakona, vefur trefla og sjöl úr
ull. Hún litar ullina sjálf með ís-
lenskum jurtum en einnig notar
hún rauðan og indígóbláan lit sem
hún fær erlendis frá. Guðrún mót-
ar sömuleiðis fallega hatta úr ull-
arflóka með alls konar lagi og í
mörgum litum. Hún er þessa dag-
ana að vefa úr hör damask vefn-
að sem væntanlegur er í Sneglu al-
veg á næstunni.
Vikan
11