Vikan - 05.09.2000, Síða 12
Nokkrar þcirra listakvcnna
sem vinna tcxtíl í Sncgln
listlnisi. Frá vinstri Þuríúur
Dan Jónsdóttir, Jóna Sigríð
nr Jónsdóttir, Erna Guð-
■narsdóttir og Guðrún Jóns
dóttir Rolhcins.
Guðrún, Ingiríður og Þuríður
eiga allar verk á sýningu sem nú
er í Hafnarborg. Þar er unnið úr
íslenskum hör sem Ingibjörg
Styrgerður Haraldsdóttir ræktar
og hugmyndin var sú að sýna
fólki að hægt væri að gera fleira
úr hör en klæði. Á sýningunni eru
skúlptúrar, myndverk og fleira.
Þær höfðu áður tekið þátt í að
vinna listaverk úr hörnum og var
afrakstur þeirrar vinnu sýndur á
Djúpavogi fyrir ári. Sú sýning
mæltist hins vegar svo vel fyrir og
vakti það mikla athygli að lista-
konurnar sem tóku þátt í henni
ákváðu að vinna stærri sýningu.
Þær fengu alveg frjálsar hendur
um hvernig þær unnu úr hörnum
en þetta er mikil frumraun hér á
landi þar sem hör hefur lítið ver-
ið notaður í myndlist. Það gerir
sýninguna enn skemmtilegri er
að hörinn er ræktaður hér á landi
og framtak Ingibjargar Styrgerð-
ar að reyna þessa ræktun er stór-
merkilegt.
Budda
Aðalbjörg Einarsdóttir eða
Budda eins og hún kýs að kalla
sig er fatahönnuður að mennt.
Hún lærði að silkimálun í fata-
hönnuninni og heillaðist af því að
vinna með þetta efni. Fljótlega
fór hún að hanna eigin silkiefni
og þau urðu fljótt vinsæl í brúð-
arkjóla og samkvæmiskjóla. Að
sníða og sauma úr silkinu kjóla
nægði Buddu ekki og fyrr en
varði var hún farin að búa til
gluggatjaldaefni.
„Ég sýndi gluggatjöld á hand-
verkssýningunni í Laugardals-
höll í vor og þau vöktu mikla at-
hygli," segir Budda. „Allir voru
yfir sig hrifnir. Auðvitað kostar
þetta meira en mörg verksmiðju-
framleidd efni en það eru til mjög
dýr gluggatjöld hér á landi eins
og trérimlagluggatjöld og fleira."
Budda hlaut sérstaka viður-
kenningu fyrir gluggatjöld sín á
handverkssýningunni og hún
hefur hannað og saumað glugga-
tjöld sem henta fyrir alla glugga
og í öll herbergi. Um þessar
mundir vinnur hún að því að gera
gluggatjaldaefnin eldtefjandi en
það er undirstaða þess að þau
henti fyrir opinberar stofnanir,
fyrirtæki og veitingahús. Silki-
gluggatjöld hennar eru í öllum
litum og mynstrin eru ákaflega
margvísleg. Hún hefur eitthvað
gert að því að hanna bæði einlit
gluggatjöld og mynstruð sem
ganga þá saman fyrir gluggann og
hún hefur einnig gert töluvert af
líflegum og fallegum gardínum
fyrir barnaherbergi. Mynstrin
fyrir börnin eru bjartar sólir og
stórskemmtilegar barnateikning-
ar hefur hún einnig notað sem
mynstur. Fyrir öllum gluggum
heima hjá henni eru gluggatjöld
sem eru að sjálfsögðu hennar eig-
in verk.
„Það er ótrúlegt hvað silkið
einangrar vel,“ segir Budda. „Ég
er með eldhúsgardínur úr ör-
þunnu silki og það sést ekkert í
gegnum þær nema að fólk hrein-
lega rýni inn. I svefnherberginu
eru gluggatjöld úr þykkara silki
og í dökkum litum og þau hleypa
slæður sem hún selur í Hand-
verkshúsinu í Lækjargötu og ný-
lega hóf hún að mála á stór sjöl
sem leggja má yfir herðarnar við
hlírakjóla eða sveipa um sig eins
og pilsi. Þessar slæður hefur hún
nýlega sett á markað og hafa þær
notið mikilla vinsælda. Budda
vinnur allt heima hjá sér að Ný-
lendugötu 13 og þar má ná sam-
bandi við hana og panta drauma-
gluggtjöld eða brúðarkjólinn.
ótrúlega lítilli birtu í gegn.“
Budda á töluvert af tilbúnum
efnum sem bæði má nota fyrir
gluggatjöld og eins sauma úr
þeim glæsikjóla en hún hannar
einnig sérstaklega fyrir fólk.
„Þá fer ég heim til viðskipta-
vinarins og hanna síðan glugga-
tjöld í stíl við borðstofuhúsgögn-
in eða stofusófann."
Budda hefur unnið við silki-
málun í átta ár og hún er ekkert
farin að þreytast. Silkið heillar
hana enn jafnmikið og þegar hún
byrjaði. Hún málar á trefla og
Aðalbjiirg Einarsdóttir
cða Kndda univatin
silkigluggatjölduni.
Tcxtílhönnun
kvcnnanna í
Sncglu vekur
athygli fyrir
það hversu fal-
lcgir ug hrcinir
litirnir cru.
12 Vikan