Vikan


Vikan - 05.09.2000, Síða 16

Vikan - 05.09.2000, Síða 16
Mr. Ngoniu sjúll'iir í ku|H'll- iinni sinni nieð fursíniaiiii reidduu ú loft. Ætli (illi) sc lllí íiiii :n> svuru? I litlu borpi í Malawi býr seruitringurinn Mr. Ngoma. Hann er ekki aðeins í stöðugu símasambandi uið Guð, heldur er hann fyrír löngu búinn að smíða sína eigin líkkistu og aðeins er eftir að skrifa dánardagínn á legsteininn. v ' » *“ miiO f 1 —— 0! „ 'c. 1 n r • n 1 i á Það var sólríkur sunnudagur þegar ég renndi í hlað hjá Mr. Ngoma ásamt hóp af fólki sem ég var að ferðast með frá Zambíu upp til Kenýa. Við okkur blasti sér- kennilegt hús sem greinilega var byggt úr því sem var við hendina hverju sinni. Á þaki hússins hékk skilti sem á stóð „Mr. Ngoma's Grocery“. Karlinn hafði rekið matvöru- búð þarna fyrir mörgum árum og ekki hirt um að taka skiltið niður þegar hann 16 Vikan hætti. Fyrir utan húsið var hópur af krökkum og út úr miðjum hópnum steig sjálfur Ngoma, pínulítill og skæl- brosandi. Eftir nokkur heilabrot komumst við að því að karl- inn er 87 ára gamall. Hann uppástóð að hann væri 106 ára, nágrannakona hans vildi meina að hann væri kominn yfir nírætt en á legsteininum hans sáum við fæðingarárið hans; 1913. Dætur hans þrjár sýndu okkur stoltar á svip gröf föður síns sem búið er að taka í bakgarðinum og voru fúsar að láta mynda sig við legsteininn. Líkkistan bíð- ur inni í húsinu, tilbúin til að vera skutlað ofan í gröfina þegar þar að kemur. Karlinn sýndi okkur borginmannleg- ur fatabunka sem lá ofan í kistunni. Ekki á að væsa um hann í gröfinni. Frumleg salernisaðstaða og sérstakur farsími Að ganga um húsið var afar athyglisvert. Salernisaöstað- an vakti óneitanlega furðu okkar. Á efri hæðinni er karl- inn búinn að koma fyrir röri sem liggur út um gluggann og niðuríbakgarðinn. Þegarsvo ber við gengur hann einfald- lega að rörinu og léttir á sér. Einfalt og ákaflega þægilegt! I næsta herbergi við rörklósettið er lítil kapella. Þarhangir stór bjalla sem Ngoma á til að ■ '-á-V; hringja eins og óður væri án nokkurs til- efnis . Á borðinu stendur eldgamall plötuspilari sem er tengdur við hátal- ara í gluggakist- unni. Mr. Ngoma leyfir nefnilega öllu nágrannahverfinu að hlusta á sálmana sem hann spilar! I húsinu ægir saman myndum, kortum, auglýsing- um og úrklippum. Margar þeirra eru af honum sjálfum enda karlinn einn af þekkt- ari sérvitringum Afríku. Við rákum augun í myndir af hon- um með börnin sín. Upphaf- lega voru þau tólf en sjö þeirra eru dáin. Þegar við spurðum úr hverju þau hefðu dáið var horft á okkur stórum augum. „Hvað meinið þið? Ur hverju? Þau urðu bara veik og þau dóu.“ Við kinkuðum kolli og grunuðum að malaría hefði verið þarna að verki en ákváðum að vera ekki að nefna það frekar. Þau voru dáin hvort sem var. Stoltastur, af öllum sínum munum, var karlinn af farsím- anum sem hann hefur stöðugt hangandi um hálsinn. Með miklum ákafa sagði hann okkur að hann væri í beinu sambandi við sjálfan Guð al- máttugan gegnum djásnið. Einnig næði hann stundum sambandi við framliðna ætt- ingja. Nokkuð athyglisvert þar sem síminn hans er leik- fangasími. Við kvöddum karlinn með virktum og héldum för okk- ar áfram. Þegar við litum við sáum við hann standa undir stóra „God is love“ skiltinu, sem hangir fyrir utan húsið, með símann í höndinni. Hann var augljóslega í djúp- um samræðum við Guð. Dætiir Ngoma vio vnrbvggðo-jfriif föftur Fisííis seiii stemliir opin, eiula er karliim enn ú lífl! .Viegsteiiiinh ú aft- eins eftir aft rita dún- ardaginn, aft ■ leyti er allt tillniift Lfyrir stóra dagifin;; Texti: Sigríður Víðis Jónsdóttir

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.