Vikan - 05.09.2000, Page 31
við hæfi hjá Voginni og
kannski vil hún nota einhver
fullorðinsleikföng í kynlífinu
en þorir ekki að hafa orð á
því. Útlit skiptir Vogina líka
miklu máli og ef þú passar þig
ekki á því að halda þér vel við
gæti Vogin leitað annað.
Vogin passar best við Tví-
bura.Vatnsbera og kannski
Hrút.
SPORDDREKI:
Kynlífið er honum allt, eða
svona næstum því allt, og því
er eins gott að þú standir þig
á því sviði. Sporðdrekinn hef-
ur sterka kynhvöt og mikið
úthald. Hann vill hafa kynlíf-
ið fjölbreytt og finnst rúmið
heldur leiðinlegur staður til
ástarleikja. Hann kann vel við
að vera dreginn á tálar og vill
hafa erótík og dulúð í kynlíf-
inu. Líkt og Vogin gæti hann
haft gaman af kynlífsleik-
föngum, en ólíkt Voginni þor-
ir hann alveg að segja frá því.
Sporðdrekinn passar best
viðKrabba,Nautog kannski
Hrút.
BOGMADURINN:
Líkamlega hlið kynlífsins
skiptir Bogmanninn meira
máli en sú andlega. Hann vill
koma sér beint að verki og
getur aðskilið tilfinningar og
losta. Hann er opinn og
ófeiminn í kynlífinu og alltaf
tilbúinn til að njóta ásta. Bog-
maðurinn vill reyna margt í
kynlífinu og hafa það fjöl-
breytt. Ef hann fær ekki þessa
fjölbreytni með elskhuga sín-
um leitar hann annað. Bog-
maðurinn er fróðleiksfús,
hvort sem er í daglega lífinu
eða í kynlífi og vill tala um-
búðalaust um hvað honum
þykir gott og hvað ekki í rúm-
inu. Það er einnig líklegt að
fróðleiksþorsti hans reki
hann til að kaupa nokkrar
bækur um kynlíf sem hann les
spjaldanna á milli áður en
hann fer í bólið með elskhug-
anum.
Bogmaðurinn passar best
við Ljón, Hrút og Vatnsbera.
STEINGEITIN:
Steingeitin er hagsýn og
jarðbundin að eðlisfari og því
ekki líkleg til að eiga frum-
kvæðið í kynlífinu. Hún þarf
ástríðufullan og tryggan elsk-
huga sem tekur frumkvæðið
og hjálpar henni að slaka á í
kynlífinu. Steingeitin hefur
gaman af að þjóna fólki og
hefur því gaman af að gleðja
elskhuga sinn í rúminu. Stein-
geitin vill halda sig við örugg
svæði eins og hjónarúmið og
þarfnast frekar trausts en
spennu í kynlífinu.
Steingeitin passar best við
Naut, Meyju og kannski
Krabba.
VATNSBERINN:
Vatnsberinn laðast kyn-
ferðislega að vel gefnu fólki
sem er svolítið dularfullt og
vekur forvitni með honum.
Vatnsberinn er varkár í kyn-
lífinu og þarf stöðugt að finna
fyrir því að hann sé elskaður.
Hann vill ekki stunda kynlíf,
bara kynlífsins vegna, heldur
þurfa að vera sterkar tilfinn-
ingar í spilinu. Það þarf mik-
ið til að Vatnsberinn sleppi
fram af sér beislinu enda er
hann frekar að leita eftir ró-
legu og tilfinningaríku kyn-
lífi heldur en ofsafengnum
mökum.
Vatnsberinn passar best við
Bogmann, Vog og Tvíbura.
FISKARNIR:
Tilfinningalegi þátturinn
skiptir Fiskana miklu máli í
kynlífinu og þeir njóta þess
í raun ekki til fulls nema ást-
in sé í samfloti við kynlífið.
Þeir geta verið hugmynda-
ríkir og gefandi elskhugar
sem njóta þess að gleðja
elskhuga sinn en það þarf
helst að vera fyrir luktum
dyrum því annars geta Fisk-
arnir orðið óöruggir og
feimnir. Hins vegar finnst
flestum Fiskum vatn vera
æsandi svo baðherbergið er
sennilega líka góður staður
til ástarleikja.
Fiskarnir passa best við
Krabba, Meyju og kannski
aðra Fiska.
Vikan
31