Vikan


Vikan - 05.09.2000, Page 59

Vikan - 05.09.2000, Page 59
14:f; 11111 IJ fTTM dónaskap. Lögreglumaður- inn skildi greinilega ekki ensku og vissi ekkert hvað ég var að segja. Hann brást illa við barsmíðum mínum og greip um handleggi mína og mig eftir löngum gangi þar sem fangaklefar voru beggja megin við. Hann opnaði einn þeirra og fleygði mér inn í hann. Það var hálfgert myrk- ur í klefanum og eina birtan Þegar við komum út úr matvörubúðinni gekk ég beint í flasið á lögreglumanni sem brosti kumpánlega til mín. Ég bað hann afsökunar á ensku og ætlaði að halda áfram. flllt í einu túk hann um brjóstin á mér og fór að stjúka bau. Ég trúði ekki að betta væri að gerast en eftir augnablik greip mig mikíl reiði svo ég fór að berja hann, tíl skiptis með bakpokanum mín- um og innkaupapokanum. togaði mig að lögreglubíl sem var þarna skammt frá. Þetta var pallbíll og voru tvær geit- ur uppi á pallinum. Mér var fleygt upp á pall til þeirra og síðan ekið af stað. Jóhanna stökk á eftir mér upp á pall- inn sem var eins gott því ann- ars hefðum við getað týnt hvor annarri. Ég var enn bálill og barði á húsið á bílnum þar sem lögreglumaðurinn var ásamt kollega sínum sem ók. Jóhanna reyndi að róa mig niður og sagði að ég væri að bregðast of harkalega við. Hún sagðist vera hálfhrædd um að ég hefði verið tekin af lögreglunni, hvort sem lög- reglumaðurinn hefði sýnt mér þennan dónaskap eða ekki. Eftir skamma stund komum við að niðurníddu húsi, sem var sem kom inn var frá gangin- um en rétt hjá klefanum mín- um var logandi ljósapera. Ekkert var í klef- anum nema kol- skítug dýna og á hana settist ég, enn öskureið. Ég sá að það var fjöl- skrúðugt skor- dýralíf í klefanum og sá nokkra stóra kakkalakka skjót- ast um gólfið. Ég hræðist yfirleitt ekki skordýr en kakkalakkar finnast mér ógeðslegir. Ég stóð því upp aftur og gekk um gólf. Ég heyrði í Jóhönnu vinkonu greinilega lög- reglustöðin, og ég var dregin þangað inn. Lögreglumað- urinn skipti sér ekkert af Jó- hönnu sem gekk rólega á eftir okkur. Ég og lögreglu- maðurinn öskruðum hvort á annað, ég á ensku og hann á rúmönsku, á meðan hann dró Það var hálfgert myrkur í klefanum og eina birtan sem kom inn var frá gangin- um en rétt hjá klefanum mínum var log- andi Ijósapera. Ekkert var í klefanum nema kolskítug dýna og á hana settist ég, enn öskureíð. Ég sá að bað var fjöl- skrúðugt skordýralíf í klefanum og sá nokkra stóra kakkalakka skjótast um gólfið. Ég hræðist yfirleitt ekki skordýr en kakkalakkar finnast mér ógeðslegir. Ég stóð bví upp aftur og gekk um gólf. minni þar sem hún var að reyna að tala við lögreglu- mennina á ensku. Þeir virtust ekki skilja hana og hún skildi auðvitað ekki orð í rúmönsku. Þarna mátti ég dúsa í marga klukkutíma án þess að fá vott né þurrt. Ég barði af og til í rimlana og kallaði á lögreglumennina en ég var látin algjörlega af- skiptalaus. Jóhanna var ekki í rónni og reyndi af öllu afli að útskýra fyrir þeim að við vær- um ferðamenn og værum að yfirgefa landið daginn eftir. Hún varð sífellt æst- ari, þessi annars mikla ró- lyndismanneskja, en sýndi þeim þó kurteisi allan tímann. Eftir um það bil fimm klukkutíma virtust þeir hafa fengið leiða á henni því annar lögreglumaðurinn tók upp símtól og hringdi eitthvað. Hann reyndi að gefa henni til kynna með handapati að það tengdist máli mínu. Hann benti til skiptis á símann og í áttina að fanga- klefanum sem ég var í. Innan stund- ar kom maður sem skildi nokkur orð í ensku. Hann byrj- aði á því að tala við Jóhönnu en var fljótlega vís- að inn í klefann til mín. Hann sagði mér að það væri lögbrot að berja lögreglumann og ég þyrfti að greiða háa sekt ellegar sitja lengi í fangelsi. Hann endurtók í sí- fellu: „You can not hit a police officer." Þegar ég reyndi að útskýra fyrir honum að lögreglumaður- inn hefði káfað gróflega á mér virt- ist hann ekki skilja hvað ég átti við. Hann bara endur- tók að ég hefði brot- ið af mér og þyrfti að greiða sekt. Ég samþykkti að greiða sektina sem var ekki há á okkar mælikvarða. Það var svo mikil fátækt í Rúmeníu að þeim hefur ef- laust þótt þetta himinhá fjár- hæð en þetta voru ekki nema nokkur þúsund krónur. Við gáfum lögreglumönnunum nokkrar Marlboro sígarettur í kveðjuskyni og þeir gjör- breyttust í viðmóti. Þeir kvöddu okkur með virktum og virtust afar þakklátir fyrir tóbakið. Við drifum okkur út úr lögreglustöðinni og dauð- brá þegar við komum út í al- gjört myrkur. Klukkan var orðin tíu um kvöldið og búið að slökkva öll ljós í borginni. Við lýstum okkur með kveikjara til að komast áfram. Við ætluðum að splæsa á okk- ur herbergi á gistihúsi aftur. Við áttum það enn frekar skilið eftir þetta ömurlega æv- intýri. Mikil var gleði okkar þegar við fundum loksins lít- ið gistihús þar sem við gátum farið í bað og þvegið af okk- ur. Næsta morgun yfirgáfum við Rúmeníu reynslunni rík- ari og héldum för okkar áfram. Við lentum aldrei í neinu líku þessu allt ferðalag- ið. Lesandi segir Guðríði Haraldsdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni meö okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lifi þínu? Þér er vel- komið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. A Heimilisl‘iinj>ið er: Vikan - „Lífsreynslusaga“, Seljavegur 2, 101 Reykjavík, Netfang: vikan@fro(li.is

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.