Menntamál - 01.10.1952, Side 14
84
MENNTAMÁL
ÞÓRLEIFUR BJARNASON námsstjóri:
Fátt í fréttum.
Ritstjóri Menntamála
hefur spurt mig frétta
um skólamál á Vestur-
landi. Hann lætur sér ekki
nægja hið meinlausa svar,
að fréttir séu engar. Hef-
ur það þó stundum þótt
jafngilda góðum fréttum.
Þótt hér vestra hafi ein-
hverju orðið umþokað í
bættu skólahúsnæði, betri
tækjum til kennslu og f jöl-
þættari vinnubrögðum í
skólastarfi, er varla hægt
að telja það til mikilla tíð-
inda. Á seinustu tíu árum
hafa verið reist þrjú ný
skólahús í kauptúnum hér vestra, og hafin er bygging
hins fjórða. í einu kauptúninu hefur farið fram lítil-
fjörleg stækkun á skólahúsi, svo að það nægir þörfum
skólahverfisins næstu ár. Fimm kauptún búa enn við
skólahús, sem reist voru skömmu eftir seinustu alda-
mót. Flest þeirra voru byggð af stórlæti og rausn, sem
nú er mjög eftir sig orðin. Nær öll þessi kauptún þurfa
nýrra skólahúsa og sum þeirra hið bráðasta.
í sveitum á Vesturlandi er farskólaformið að lang-
mestu leyti enn ríkjandi. Á seinustu árum hefur lítið
um þokazt til breytingar þar á, en þó ekki örgrannt um