Menntamál


Menntamál - 01.10.1952, Side 18

Menntamál - 01.10.1952, Side 18
88 MENNTAMÁL STEFÁN SIG URÐSSON kennari: Kennarar og esperantohreyfingin. Það má með sanni segja að misvitur er maðurinn í mörgu tilliti. Það kemur fram á ýmsum sviðum. Má þar t. d. nefna, hvernig menn snúast við einu af vandamálum nútímans, þ. e. tungumálaglundroðan- um og öllum þeim erfið- leikum, sem hann skapar, enda þótt hálfur sjöundi áratugur sé liðinn, síðan þetta vandamál var leyst á auðveldan og sjálfsagðan hátt. Meðan mannkynið lifði í smáflokkum, hver ættkvísl út af fyrir sig, og ættkvíslin bjó alveg að sínu og þurfti ekkert að sækja til annarra kynflokka og engin mök við þá að hafa, nema þá til að verja sig gegn árásum af þeirra hálfu, þá gerði ekkert til, þótt slíkir ættflokkar töluðu hver sína tungu og skildu ekki hverjir aðra. Þó má vera, að friðsamara hefði verið, árásirnar færri og grimmdin minni, hefðu þessir ættbálkar getað gert sig skiljanlega hver fyrir öðrum. En þegar að því kemur, að þessir hóp- ar og ættkvíslir mynda stærri heildir og ríkin verða til með sameiginlegri yfirstjórn og alls konar samskiptum milli þegnanna, þá verður nauðsynlegt, að þegnar ríkisins

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.