Menntamál


Menntamál - 01.10.1952, Síða 23

Menntamál - 01.10.1952, Síða 23
MENNTAMÁL 93 En nú vill svo vel til, að kennarar, sem tvímælalaust ber öðrum stéttum fremur að vinna að framgangi þessa máls, eru einmitt sú stétt, sem öllum öðrum stéttum frem- ur getur stutt það til sigurs. Þeir eru margir, sem viður- kenna réttmæti þessa máls, viðurkenna, að í rauninni væri sjálfsagt að innleiða esperanto sem alþjóðamál, en að leggja því lið með því að læra það, það finnst þeim ekki koma til mála. Þeir segja: Þegar esperanto verður viðurkennt sem alþjóðamál, þá læri ég það, en þangað til læt ég það hlut- laust. Eða með öðrum orðum: Á þeim degi, sem þeir Stalin og Truman ræðast við í bróðerni á esperanto um að hætta að nota ensku og rússnesku á þingi Sameinuðu þjóðanna, en nota bara esperanto, þá ætla þeir að byrja að læra esperanto. En sá dagur kemur bara aldrei, ef allir hugsa sér að bíða eftir honum. Það verða ekki æðstu menn stór- þjóðanna, sem ganga fram fyrir skjöldu í þessu máli. Það verður að koma neðan frá. Ef þeir, sem bannað er að nota sín móðurmál á þingum Sameinuðu þjóðanna, hefðu einhvern metnað, þá mundu þeir allir sameinast og heimta að fá að nota sín móðurmál eða að esperanto væri upp tekið sem þingmál. Eðlilegasta millistigið væri auðvitað, að esperanto væri tekið upp jafnframt þeim málum, sem nú eru notuð á þessum vettvangi. En sennilega dregst það eitthvað, að fulltrúar hinna smærri þjóða fari að heimta rétt sinn á þessu sviði. En áður en varir getur esperanto farið að ryðja sér meira til rúms á viðskiptasviðinu. Það, sem þarf til að hrinda þessu máli áleiðis, er, að sem flestir læri það og noti, eftir því sem þeir hafa getu og tækifæri til. Og þegar valdhafarnir fara að finna, að það borgar sig að veita þessu máli athygli, þá mun ekki standa á þeim. En það, sem hlýtur að styðja að skjótustum sigri þessa máls, er, að esperanto komist inn í skólana. Skólarnir eru sá vettvangur, sem ekki sízt verður að treysta á, ef esper- anto á að sigra í náinni framtíð. Og þar sem það eru nú einmitt kennarar, sem starfa á þessum vettvangi, þá eru

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.