Menntamál - 01.10.1952, Qupperneq 34
104
MENNTAMÁI.
Um kvöldið sátu gestirnir boð frú Bodil Begtrup sendi-
herra ásamt nokkrum íslenzkum skólamönnum, m. a.
f ræðslumálastjóra.
Daginn eftir, 17. júlí, fóru kennararnir til Krísuvíkur í
fylgd með allmörgum kennurum úr Reykjavík og Hafnar-
firði og þágu rausnarlegt kaffiboð bæjarstjórans í Hafn-
arfirði, hr. Helga Hannessonar.
Föstudaginn 18. júlí hófst svo aðalferðalagið, um Suð-
urland og upp á Kjalveg. — Farið var um Þingvöll og að
Laugarvatni um kvöldið.
Á laugardaginn var síðan haldið til Gullfoss, og þaðan
sem leið liggur norður yfir Bláfellsháls, að Hvítárvatni og
síðan alla leið að sæluhúsi Ferðafélagsins í Kerlingafjöll-
um. Þaðan gekk hópurinn inn með jökulgljúfrinu og inn að
hinu sérkennilega hverasvæði.
Gestir okkar voru hver öðrum duglegri. Þeir sýndu aug-
Ijóslega einlægan áhuga í hvívetna og voru hugfangnir
af hinni tröllauknu, sérkennilegu f jallanáttúru. — Heppn-
in var líka með okkur, veður og skyggni svo gott sem það
getur bezt verið. — En harla þreyttir voru ýmsir orðnir,
er að Laugarvatni kom kl. 2 aðfaranótt sunnudags.
Næsta dag fór hópur af stað kl. 1 norður að Geysi,
hreppti ágætt gos og fór svo um Hreppa heim til Reykja-
víkur, með viðkomu í Hveragerði.
Kennarar í Hveragerði og Selfossi höfðu undirbúið
myndarlegt kvöldverðarboð í skólahúsinu. Helgi Geirsson
skólastjóri hafði orð fyrir heimamönnum. Ýmsir Dan-
anna tóku þarna til máls, rómuðu mjög viðtökur og þökk-
uðu íslenzka samferðafólkinu ágæta samfylgd.
Þessari ferð inn til fjallanna var nú lokið. Það var
skemmtilegt að allmargir íslenzkir kennarar tóku þátt í
förinni. Ekki hefði verið hægt að fara þessa för ef skóla-
stjóri Laugarvatnsskólans hefði ekki af höfðinglund sinni
veitt erlendu gestunum næturgreiða og beina.