Menntamál - 01.04.1958, Side 8

Menntamál - 01.04.1958, Side 8
2 MENNTAMÁL Þegar þeir Ludvig Harboe og Jón Þorkelsson (Thor- kelli) Skálholtsrektor ferðuðust um landið á árunum 1741—45 til þess að athuga menntunarástandið, komust þeir að raun um, að margir prestar voru lítt lærðir, og að- eins um þriðjungur landsmanna var læs. Fyrir atbeina þeirra félaga voru gefnar út nýjar tilskipanir um ferm- ingar og húsvitjanir. Árangurinn af þessu varð m. a. sá, að um 1800 er talið, að nálega hver maður hér á landi hafi verið læs. Fátt var um skóla hér á landi allt fram á síðari hluta 19. aldar. í margar aldir voru eigi aðrir skólar hér á landi en latínuskólarnir á biskupssetrunum að Skálholti og Iíólum. Hlutverk þeirra var lengst af aðallega að búa nemendur undir prestsskap. Skálholtsskóli var fluttur til Reykjavíkur 1786 og Hólaskóli sameinaður honum 1801. En leggja varð niður Latínuskólann í Reykjavík árið 1804 vegna þess, að skólahúsnæðið — Hólavallaskóli — var dæmt ónothæft. Skólinn var svo á Bessastöðum árin 1805 —1846, en fluttist þá í nýtt hús í Reykjavík, Mennta- skólahúsið, og hefur verið þar síðan. Talið er, að enginn skóli hafi verið starfandi á íslandi veturinn 1804—5 nema barnaskóli á Hausastöðum. Fyrsti barnaskólinn, sem kunnugt er um að stofnaður hafi verið hér á landi, var í Vestmannaeyjum. Það var gert árið 1745, síðasta árið, sem Harboe og Jón Þorkels- son voru hér á ferð. En sá skóli starfaði aðeins í nokkur ár. Árið 1791 var stofnaður barnaskóli að Hausastöðum 1 Garðahreppi fyrir fé úr Thorkelliisjóði, en hann lagðist niður árið 1812. Árið 1830 er stofnaður barnaskóli í Reykjavík, er naut styrks úr Thorkelliisjóði. Hann lagð- ist niður á árunum 1848—62 vegna fjárskorts. Um miðja 19. öldina er stofnaður barnaskóli á Eyrar- bakka. Upp úr því og þó einkum, er líða fer á öldina, eru stofnaðir barnaskólar í kaupstöðum og nokkrum þorpum, og umferðakennslu er komið á í sumum sveit-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.