Menntamál - 01.04.1958, Page 20

Menntamál - 01.04.1958, Page 20
14 MENNTAMÁL börnin gróðursettu tré í Undirhlíðum og í Sléttuhlíð. Á Akureyri voru og skólabörn fengin til þessa líka, en ekki er mér vel kunnugt um það. Meðan nýjabrum var á þessu skorti hvorki kennara né nemendur til að taka þátt í þessu starfi, en er frá leið voru það ekki nema fáir kennarar, sem höfðu nógu mik- inn áhuga og entust til þessa. Útgjöldin við ferðir og mjólk og brauð handa börnunum hvíldi að mestu á Skóg- ræktarfélagi íslands, og var allþungur baggi, þar sem lítil fjárráð voru. Þrátt fyrir þetta voru allmargar ferðir farnar á hverju vori, unz heimsstyrjöldin kom í veg fyrir að fræ og plöntur flyttust hingað frá Noregi, en þetta starf byggðist að mestu á norskum plöntum, þar sem uppeldi plantna var þá skammt komið á veg hér á landi. Á nokkrum stöðum hefur mjög sæmilegur árangur orð- ið af þessu starfi, en beztur er hann í Undirhlíðum sunn- an við Hafnarfjörð, þar sem nú er vaxið upp stórt og fallegt sitkagreni, sem gróðursett var 1938. En víðast hvar er árangurinn lítill eða enginn. Sumt má kenna óheppilegu vali plantna, en annað er óvandvirkni að kenna. Það kom nefnilega í ljós, að kunnáttu kennaranna í meðferð plantna var ábótavant, með nokkrum undan- tekningum. Einstöku kennarar höfðu lofsverðan áhuga fyrir þessu starfi, og alls staðar, sem þeir komu nærri, má sjá nokkurn árangur og sums staðar góðan. Eftir styrjöldina kölluðu mörg önnur verkefni að í skóg- ræktinni, og var þessi starfsemi ekki upp tekin að nýju á vegum Skógræktarfélags íslands eða Skógræktar ríkisins. En sakir reynslu fyrstu áranna var talið nauðsynlegra að gefa kennaraefnum kost á að læra algeng handtök við gróðursetningu, og því var sá háttur upp tekinn árið 1950, að taka nemendur Kennaraskólans úr efsta eða næst- efsta bekk á stutt trjáplöntunarnámskeið á hverju vori. Því miður hafa flest þessi námskeið staðið allt of stutt, en samt sem áður hefur það komið í Ijós, að ýmsir ungir kennarar eru nú alláhugasamir um gróðursetningu trjá-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.