Menntamál - 01.04.1958, Side 50
44
MENNTAMÁL
stærri, hefur verið hægt að laga með leiðbeiningum,
ábendingum og tilmælum. Reynslan hefur sýnt, að hér
ber að vera vel á verði, og fer ég ekki lengra út í þá
sálma. Önnur hlið þessa máls er sú, að afarmörg börn
eru í fóstri á einkaheimilum víðs vegar um land. Þótt
vel fari um þessi börn í langflestum tilfellum, eru samt á
því undantekningar. Þess vegna hefur ráðið í þjónustu
sinni sérstakan eftirlitsmann, sem hefur mörg undanfarin
sumur ferðazt um mánaðartíma eða svo á milli þessara
neimila og kynnt sér aðbúnað barnanna. Hefur þá komið
fyrir, að aðbúð sumra barna hefur ekki verið eins góð
og skyldi, og hefur þá verið bætt úr því. Má af þessu
vkilja, að árvekni verður að hafa í eftirlitsstarfinu, því
að heill margra barna getur verið í veði, ef það er van-
rækt. Eftirlitið kostar bæði tíma og peninga, en í það má
ekki horfa, heldur þarf að efla það frá því sem nú er.
2. í öðru lagi hefur ráðið yfirumsjón með störfum allra
barnaverndarnefnda í landinu, veitir þeim leiðbeiningar
og aðstoð og heldur þeim til að gera skyldu sína. Barna-
verndarnefndir og skólanefndir, sem gegna störfum barna-
vendarnefnda, eru nú nokkuð á þriðja hundrað. Það færi
að ólíkindum, ef allar þessar nefndir væru jafn árvakrar
í starfi. Sumar hafa tilhneigingu til of mikils afskipta-
leysis og skortir kjark eða bolmagn til þess að láta nægi-
lega til sín taka. Ef ástæða þykir til, getur barnaverndar-
ráð tekið mál í umdæmi barnaverndarnefnda til með-
ferðar, þótt hún hafi ekki áður fjallað um það, og hefur
slíkt komið fyrir. Þá krefur ráðið nefndirnar árlega um
skýrslur um störf þeirra. Gefur ráðið út úrdrátt úr þeim
annað eða þriðja hvert ár, ásamt skýrslu um störf sín.
3. I þriðja lagi geta aðiljar, einstaklingar, barnavernd-
arnefndir og stofnanir skotið máli til barnaverndarráðs,
sem tekur það til meðferðar og úrlausnar. Oftast eru það
einstaklingar, sem skjóta máli til ráðsins. Hafa þeir þá
ekki sætt sig við meðferð þá og úrlausn, sem það hefur
hlotið hjá barnaverndarnefnd. Hér undir heyra deilur um