Menntamál - 01.04.1958, Side 51

Menntamál - 01.04.1958, Side 51
menntamál 45 forræði barna við lögskilnað hjóna, — og leitar ráðuneytið jafnan álits barnaverndarráðs um þetta atriði í öllum hinum vandasamari málum. Þessi þáttur í starfi ráðsins er langtímafrekastur og vandasamastur. Þarna er oftast um viðkvæm og torleyst mál að ræða, sem barnaverndar- íiefndir hafa stundum gefizt upp á. Til rannóknar eins bvílíks máls getur farið ótrúlega mikill tími og fyrirhöfn í söfnun gagna og í viðtöl við þá einstaklinga, sem við Það eru riðnir eða vitneskju geta um það veitt. Málið krefst þess oft, að athugun fari fram á mörgum heimil- um, og stundum þarf ráðið að takast langar ferðir á hendur til þess að ráða fram úr slíkum deilumálum. 4. I fjórða lagi hefur ráðið skilið það sem hlutverk sitt, bótt ekki sé það skýrt tekið fram í lögum, að styðja og hafa forgöngu um þau mál, sem stuðla með einhverjum hætti að heill og vernd barna og unglinga. Þannig hefur bað beitt sér fyrir því, að uppeldisheimili væru stofnuð, svo sem fávitahæli, heimili fyrir vangæf börn og unglinga, Pilta og stúlkur, að heimavist væri stofnuð fyrir veikluð skólabörn og heimavistarskóli fyrir börn, sem vanrækja ttám og skólasókn. Það átti og ríkan hlut að því, að al- ^ennar mjólkur- og lýsisgjafir voru teknar upp í barna- skólum í Reykjavík (og víðar) á kreppuárunum, sömu- leiðis ljósböð. Á styrjaldarárunum beitti það sér fyrir fjölmörgum ráðstöfunum, sem stuðluðu að vernd barna °S ungmenna, t. d. að sumardvölum barna, sem R.K.I. fók svo að mestu í sínar hendur, að því er höfuðstaðinn varðar. Að frumkvæði barnaverndarráðs voru ný barna- Verndarlög, lög um vernd barna og unglinga, sett 1947, °g loks má geta þess, að á vegum ráðsins hafa verið flutt Piörg fræðsluerindi í útvarp um barnavernd og uppeldis- ^ál. Þetta eru einungis nokkur dæmi tekin af handahófi llIU þau mál, sem ráðið hefur látið til sín taka eða beitt sér fyrir. ®g hef nú stuttlega gert grein fyrir starfsviði og hlut- verki barnaverndarráðs. Það hefur beint og óbeint mikil

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.