Menntamál - 01.12.1960, Blaðsíða 31
MENNTAMAL
197
arkosti markaðstorgsins, mun opna pyngju sína þar, sem
hún virðir og metur faglega kunnáttu góðra verkmanna.
Enn mun verða skortur á kennurum um langan tíma.
Kennarastéttinni er nauðsynlegt að gera sér ljóst, að með
því er tilveru hennar beinlínis ógnað. Sú vörn ein dugar,
að sérhver kennari taki ógnun þessari með því að rækja
störf sín betur, en fullgildir kennarar einir hljóti rétt-
indi til starfa. NEA Journal, Nr. 5, 1960.
Br. J. þýckli og stytti lítið citt.
r
Attunda fulltrúaþing L. S. F.K.
Áttunda fulltrúaþing L. S. F. K.
8. fulltrúaþing L. S. F. K. var haldið í Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar dagana 1 (>.— 18. sept. s. 1. Fyrsti þingforseti var kjörinn Kristján
Benediktsson og varaforsetar þau Hólmfríður Jónsdóttir og Gunnar
Benediktsson, en þingskrifarar Asmundur Kristjánsson og Guttormur
Sigbjarnarson.
Tvö félög gengu í sambandið á þinginu: Félag gagnfræðaskóla-
kennara í Kópavogi og Kennarafélag Gagnfræðaskóla Keflavíkur.
Stjórn L. S. F. K. gcrði grein fyrir starfinu á liðnu kjörtímabili, og
síðar voru kosnar nefndir til að fjalla um þau mál, sem lágu fyrir
þinginu.
Þessir gestir ávörpuðu þingið: Skúli Þorsteinsson form. S. í. B., Jón
Eniil Guðjónsson framkvæmdastj. Ríkisútgáfu námsbóka og Guðjón
Baldvinsson, sem flutti erindi um samningsrétt opinberra starlsmanna.
Kristinn Gíslason og Sigurður Ingimundarson fluttu framsöguræður
á þinginu, — Kristinn um launa- og kjaramál og Sigurður um cndur-
skoðun fræðslulaganna. Fjölmargar samþykktir voru gerðar, og mun
verða gerð nánari grein fyrir þeim síðar.
Að síðustu var gengið til kosninga.
1. Stjórnarkjör:
Formaður og varaformaður fráfarandi stjórnar báðustt undan
endurkjöri. Formaður var kosinn Friðbjörn Benónísson og með-
stjórnendur þau Kristján Benediktsson, Kristinn Gíslason, Halldóra
Framhald á bls. 268.