Menntamál - 01.12.1960, Blaðsíða 84
250
MENNTAMAL
Jens E. Níelsson, kennari.
Fæddur 7. apríl 1888. — Dáinn 26. maí 1960.
Jens E. Níelsson var af
vestfirzkum ættum, upp
alinn í Bolungavík hjá góð-
um foreldrum. Hann tók
kennarapróf 1913 og var
næsta vetur skólastjóri á
Þingeyri, en síðan kennari
í Bolungavík til hausts
1938, að hann gerðist kenn-
ari við Miðbæjarskólann í
Reykjavík og hélt því
starfi til sjötugs aldurs.
Jens kenndi alls 47 ár og
er því meðal þeirra, sem
lengst hafa starfað í kenn-
arastétt.
Jcns E. Nielsson. jens var kvæntur mikil-
hæfri konu, Elínu Guð-
mundsdóttur, sem lifir mann sinn ásamt þrem sonum upp-
komnum, mestu efnismönnum.
Auk kennslunnar gegndi Jens fjölmörgum öðrum störf-
um um dagana, því að hann var gáfaður og fórnfús hug-
sjónamaður, er lét sér fátt mannlegt óviðkomandi. 1 Bol-
ungavík var hann í skattanefnd, sóknarnefnd, umsjónar-
maður ræktunarmála, í mörgum félagsstjórnum, bóka-
vörður, söngstjóri o. fl., að ógleymdu forystustarfi í bind-
indismálum. Hann var aðalstjórnandi barnastúkunnar þar
í mörg ár. Og bindindismálin lét hann einkum til sín taka