Menntamál - 01.10.1970, Síða 4
Litið
um
öxl
Með þessu hefti lýkur 43. árgangi Mennta-
mála, fyrsta árganginum, sem öll stéttarsamtök
kennara — frá forskólastigi til háskóla —
ásamt Skólarannsóknum gefa út í samein-
ingu.
Ráðgert var í ársbyrjun að koma út á árinu
sex 32ja síðna heftum í hinu nýja broti, sam-
tals 192 síðum. Þetta hefur tekizt að því er
blaðsíðufjöldann áhrærir, en heftin verða ekki
nema fimm í ár — og urðu mun síðbúnari en
stefnt var að.
Þess er ekki að dyljast, að margt hefur
farið öðruvísi um útgáfuna í ár en ætlað var,
og er skemmst frá því að segja, að ritnefndin
er ekki nema hóflega ánægð með það hvernig
til hefur tekizt. Hins vegar er hún staðráðin
í að láta ekki lítils háttar byrjunarörðugleika
aftra sér í þeirri viðleitni að halda úti vönd-
uðu uppeldismálariti — og á komandi ári
verður mætt til leiks með nýjum og óþreyttum
framherjum.
Það má til nýjunga teljast, að á árinu réð-
ust Menntamál ásamt Skólarannsóknum
menntamálaráðuneytisins í að gefa út og
dreifa á kostnaðarverði til áskrifenda vönd-
uðu fræðiriti um hagnýtingu kunnáttuprófa
eftir Norman E. Gronlund í ágætri þýðingu
Þuríðar J. Kristjánsdóttur.
Bók þessi fjallar um eitt vandasamasta
svið kennslunnar, námsmatið, sem of lítill
gaumur hefur verið gefinn í íslenzkum skól-
um til þessa. Ritnefndin taldi bókina eiga
brýnt erindi til kennara og annarra, sem láta
sig skólamál skipta, og tefldi satt að segja
á tæpasta vaðið með verðlagningu í von um
almennar undirtektir áskrifenda. Þeir reynd-
ust traustsins verðir, og er þá aðeins eftir að
bera fram þakklæti og biðja þá vel að njóta
gagnlegrar bókar.
MENNTAMÁL
150