Menntamál


Menntamál - 01.10.1970, Blaðsíða 35

Menntamál - 01.10.1970, Blaðsíða 35
Baldur Ragnarsson kennari: Hvað líður alþjóða- málinu? Fyrir þremur árum gaf pólska menntamála- ráðuneytið út ýtarlega námsskrá í esperanto handa barnaskólum og miðskólum. í inngangi hennar segir m. a.: „Kunnátta í esperanto er mikilvæg í lieimi nútímans. Þróun í samskiptum milli þjóða hefur leitt til sívaxandi notkunar alþjóðamálsins á fjölmörgum sviðum. Kennsla í esperanto stuðl- ar að menntun æskunnar í anda mannúðarstefnu og alþjóðahyggju og dýpkar áhuga hennar á um- heiminum.“ Samkvæmt skýrslu Alþjóðlega esperanto-sam- bandsins (Universala Esperanto-Asocio) stund- uðu 18 880 nemendur nám í esperanto í ýmiss konar skólum víðs vegar í heiminum skólaárið 1968—69, og eru þá ekki meðtaldir nemendur bréfaskóla. Búlgaría er hér elst á blaði með 2439 nemendur í 75 skólum. Þá kemur Ungverjaland með 1937 nemendur í 96 skólum, þá Pólland með 1729 nemendur í 39 skólum, þá Nýja-Sjá- land með 1318 nemendur í 25 skólum. Þetta sama skólaár var esperanto kennt í 46 háskólum í eftirtöldum löndum: Argentínu (1), Bandaríkj- um Norður-Ameríku (7), Bretlandi (2), Búlgaríu (6), Finnlandi (1), Frakklandi (1), Hollandi (1), Indlandi (1), Ítalíu (5), Japan (3), Júgóslavíu (1), Kóreu (3), Póllandi (4), Sovétríkjunum (1), Spáni (1), Tékkóslóvakiu (1), Ungverjalandi (5), Vestur-Þýzkalandi (2). Á borðinu fyrir framan mig eru fáeinar af þeim ljölmörgu bókum, sem á síðustu árum hafa komið út á esperanto. Þar á meðal eru La Divina Connnedia Dantes, nýjar þýðingar á nokkrum leikritum Shakespeares, Kalevalaljóðin, Kóraninn, auk bóka frumsaminna á esperanto. Allar eru þessar bækur vandaðar að gerð og út- gáfa einnar þeirra, La Divina Connnedia, með slíkum afburðum, að hið heimsþekkta menning- artímarit Unesco Courier helgaði henni heil- opnugrein á sínum tíma. Líta má á þetta þrennt, sem nú var drepið á, sem lítið úrtak úr þeim fjölda staðreynda, sem varða alþjóðamálið esperanto í heimi núthnans. Má af þvi ráða, að esperanto heyrir síður en svo fortíðinni til, heldur er því þvert á móti svo farið, að málið er í meiri sókn nú en nokkru MENNTAMÁL 181

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.