Menntamál


Menntamál - 01.10.1970, Blaðsíða 18

Menntamál - 01.10.1970, Blaðsíða 18
leitt ekki að sjá eða heyra, að listkennslan á fyrri skólastigum hafi haft djúp eða varanleg áhrif á hugsunarhátt þeirra eða tilfinningalíf. Þótt ég hafi gerzt svo djarfur að tiltaka hlut- verk — eða öllu heldur einn þátt í lilutverki — listkennslu í skólum, er ég þess ekki umkominn að segja þeim, er listkennsluna eiga að annast, fyrir verkum. En ég er þess fullviss, að þeir munu vita, hvað til bragðs skuli taka, þegar réttmætt tækifæri gefst, enda er úr allmiklu að moða, þar sem er reynsla annarra þjóða í þessum efnum. Ég hef því í rauninni litlu að bæta við það, sem þegar er sagt. En áður en ég lýk máli mínu langar mig þó að víkja með örfáum orðum að þeirn mótbár- um, sem að minni reynslu er tíðast hreyft gegn aukinni listkennslu í skólum — eða jafnvel allri listkennslu í skólum. Langalgengustu rökin eru þau, að listhneigð sé meðfæddur, einstaklings- bundinn eiginleiki, sem aðeins fáum útvöldum sé gefinn, og að það sé hættulegt að neyða menn — ekki sízt unglinga — til athafna, sem þá skort- ir áhuga og hæfileika til að framkvæma á nokk- urn veginn sómasamlegan hátt. Sjálfur hefi ég aldrei fundið gilda ástæðu til að fallast á þessi rök. Því er sennilega ekki að neita, að skapandi listagáfa sem um tnunar er tiltölulega fáum gef- in. En sama máli gegnir um afburðahæfileika á hvaða sviði sem er. Ég veit ekkert sem bendir til þess, að menn séu misgefnari fyrir listir en til dæmis erlend tungumál, eða stærðfræði, eða sögu eða aðrar námsgreinar, sem sjálfsagt þykir að gefa öllum kost á að stunda. í mjög skemmti- legu útvarpsspjalli um skák á laugardaginn var, urðu fjórir ágætir skákmenn nokkurn veginn sammála um tvö atriði varðandi íþrótt sína: annars vegar að hún væri list, og hins vegar að sérhver sæmilega greindur maður — að frátöld- um einstaka undantekningartilfellum — gæti með nægilegri æfingu náð ómaksverðum árangri í skák. Ég hefi enga ástæðu til að halda, að ekki gegni sama máli um aðrar listir — allar listir. Ég veit það að vísu, að mikill fjöldi fullvax- inna manna getur hvorki með ánægju né árangri fengizt við tilteknar listgreinir. Ég veit þetta þeim mun betur, sem ég er sjálfur ráðalaus og bjargarlaus um allt sem lýtur að dráttlist. En það er ákaflega margt sem bendir til þess, að við sem þannig er ástatt um séum að meira eða minna leyti fórnarlömb vanrækslu í uppeldinu, að hæfileikum — ekki kannske miklum, en jafn- raunverulegum fyrir því — hali verið leyft að rýrna af athafnaleysi, eins og á sér stað um ónot- aða vöðva. Ég var eitt sinn þar staddur, sem kennarar ræddu um svokallað málleysi skólabarna nú til dags. Reyndur skólastjóri batt enda á umræð- urnar með því að benda á það, að fjöldi barna er ágætlega máli farinn — þangað til þau koma i skólana. Er ekki hugsanlegt, að þekkingar- og skilningsskortur uppalenda, í skóla og utan, á hlutverki listanna í lífi barns og unglings eigi einhverja sök á þeirri feimni, þeim ótta og þeirri vanmáttarkennd, sem einkennir viðhorf allt of margra — unglinga jafnt sem fullorðinna — til listanna og sviptir þá arfi sem hver maður er að öllum líkindum réttborinn til? Ég læt þeirri spurningu ósvarað. Það eru samt næg rök fyrir því, að listkennsla í skólum — mikil, vönduð og Ijölbreytt — sé nemendum lífsnauðsyn. MENNTAMÁL 164

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.