Menntamál - 01.10.1970, Síða 37
esperanto sem heimilismál og mörg börn hafa
lært esperanto á slíkum heimilum sem sitt móður-
mál.
Ekki er nákvæmlega vitað um fjölda bóka,
sem hafa verið gefnar út á alþjóðamálinu. Eitt
stærsta safn bóka á esperanto, safn Brezka esper-
anto-sambandsins í London, hefur skráða yfir
30 000 bókatitla. Mikill hluti þess fjölda flokk-
ast undir íagurbókmenntir, bæði þýddar og
frumsamdar á esperanto. Sérstakan sess rneðal
þýddra bóka skipa sýnisbækur bókmennta hinna
ýmsu þjóða. Er þar um að ræða ýtarlegt úrtak
þeirra bókmennta í vönduðum útgáfum. Fyrir
síðustu heimsstyrjöld liöfðu þegar birzt slíkar
sýnisbækur pólskra, katalónskra, búlgarskra,
belgískra, iitháanskra, ungverskra, sænskra,
tékkneskra og svissneskra bókmennta, en síðan
hafa bætzt við sýnisbækur enskra, danskra, brasil-
ískra, portúgalskra, japanskra og kínverskra
bókmennta. Sýnisbók íslenzkra bókmennta í
esperantoþýðingu er í undirbúningi, en þegar
hefur birzt lítil sýnisbók forníslenzkra bók-
mennta auk íslenzkra sagna og ljóða í tímarit-
um.
Mörg meginbókmenntaverk hinna ýrnsu þjóð-
tungna liafa þegar komið út á esperanto. Verka
Dantes og Shakespeares hefur þegar verið getið,
en einnig mætti nefna verk grískra og latneskra
íornskálda, og reyndar velflestra þekktra skálda
að fornu og nýju. Einkum er athyglisvert, að
ýmis stórskáld, sem ritað hafa verk sín á tung-
um, sem lítt eru kunnar utan heimalands þeirra,
hafa verið kynnt á esperanto og eru verk þeirra
þannig aðgengileg mönnum, sem hafa lagt á
sig þá fyrirhöfn að læra esperanto til lilítar. Sem
dæmi slíkra verka má nefna hina rniklu ljóða-
bálka Hannleik mannsins eftir ungverska skáld-
ið Madách, Herra Tadeus eftir pólska skáldið
Mickiewicz og Martín Fierro eftir argentínska
skáldið José Hernandez. Varla er þörf að geta
jjess, að þýðingar á esperanto eru nær undantekn-
ingarlaust gerðar af mönnum, sem eiga málið,
sem Jjýtt er af, að móðurmáli.
Þýddar bókmenntir á esperanto eru nú Jjegar
í heild ljölbreytilegt og glæsilegt úrval úr bók-
menntum heimsins. Orkar ekki tvímælis, að al-
Jjjóðamálið gegnir hér miklu og vaxandi hlut-
verki í kynningu menningarverðmæta.
Jafnframt þessu vex stöðugt sá fjöldi bóka,
sem frumsaminn er á alþjóðamálinu. Meðal
höfunda, sem frumsamið hafa verk sín á esper-
anto, ber einkurn að nefna höfund málsins, Pól-
verjann og Gyðinginn L. L. Zamenhof, Ungverj-
ana Kalocsay, Baghy, Szathmári, Szilágyi og Tár-
kony, Englendingana Boulton, Rossetti, Sadler
og Sturmer, Skotana Auld og Francis, Frakkana
Schwartz og Waringhien, Danann Thorsen, Sví-
ann Engholm, Norðmanninn Rosbacli, Suður-
Afríkumanninn Edwin de Kock og Brasilíu-
manninn Mattos.
Gildi esperantos lyrir vísindi og tækni hefur
oft verið viðurkennt opinberlega, m. a. af
frönsku vísindaakademíunni 1924, af japanska
vísindaráðinu 1950, í yfirlýsingu 85 japanskra
vísindamanna 1951 og í skýrslum og niðurstöð-
um Fyrstu alþjóðlegu ráðstefnunnar um tungu-
málavanda vísindanna í Kaupmannahöfn 1962.
Heimspekileg rit og vísinda- og tæknirit á
esperanto eru til bæði þýdd og frumsamin. Af
hinum síðarnefndu hafa jafnvel sum verið þýdd
úr esperanto á ýmsar þjóðtungur, t. d. bók um
útvarpstækni eftir Svíann Aisberg, sem liefur ver-
ið þýdd á 18 tungumál, og bók um gróður eftir
hinn heimsjjekkta danska plöntusjúkdómafræð-
ing Neergaard.
Áður liefur verið minnzt á sérheitaorðabækur
á esperanto. Jafnhliða vexti sérgreinabókmennta
á aljjjóðamálinu hefur slíkurn orðabókum íjölg-
að mjög. Fyrir 4 árum höfðu Jjegar birzt 135
sérheitaorðabækur og -orðasöl'n í 50 greinum
og undirgreinum heimspeki, raunvísinda, tækni,
iðngreina og annarra sérsviða. Af Jjessum orða-
bókum eru 5 stærri en 300 bls., 10 liafa 200—
300 bls., 9 hafa 75—100 bls., en hinar hafa færri
en 75 bls. Má íullyrða, að ekki séu rnargar þjóð-
tungur, sem betur búa að sérheitaorðabókum.
Fyrsta tímarit á esperanto birtist I. september
1889. 1 Árbók AlJjjóðlega esperanto-sambandsins
1970 eru talin 110 tímarit, sem nú konra út á
aljjjóðamálinu. Elest eru þau almenn eðlis, en
allmörg eru sérfræðileg, t. d. Internacia Peda-
gogia Revuo um uppeldis- og kennslumál, Biblia
MENNTAMÁL
183