Bjarmi - 01.02.1997, Blaðsíða 3
AR BÆNAR OG
FYRIRBÆNAR
Nýtt ár er runnið upp og hið gamla er að baki. Um áramót lítum við yfir
farinn veg og horfum jafnframt fram á veginn. Hvort árið 1997 markar
einhver tímamót skal látið ósagt. Okkur er ekki gefið að sjá inn í fram-
tiðina þótt alls kyns völvur hafi átt annríkt undanfarið við að segja okkur fyrir um
hið óorðna. Hið eina sem við getum sagt andspænis framtíðinni er það að hún er í
hendi Guðs. Þess vegna getum við lika horfst í augu við hana í von og trausti til
hans. Þá býr hún yfir ótal viðfangsefnum og tækifærum sem við getum tekist á við
í hans nafni. Á hveiju nýju ári er kirkja Krists kölluð til að þjóna honum og út-
breiða orð hans. Við erum á nýju ári kölluð til að framganga í þeirri þjónustu,
Guði til dýrðar og mönnum til blessunar.
Á þessu ári mun íslenska þjóðkirkjan velja sér nýjan biskup. Það fer varla á milli
mála að biskupsembættið stendur á nokkrum tímamótum eins og reyndar kirkjan
gerir. íslenskt samfélag hefur breyst hratt á undanförnum áratugum. Afhelgun
samfélagsins og stofnana þess hefur haldið áfram jafnt og þétt, fjölhyggja og
íjölbreytni trúar- og lífsviðhorfa fer vaxandi og fjölmiðlaheimurinn og upplýsinga-
tæknin hefur æ meiri áhrif á okkur. Við þessar aðstæður er eðlilegt að rætt sé um
stöðu og hlutverk kirkjunnar í breyttu
samfélagi. Nýtt lagafrumvarp um
stjóm og starfshætti kirkjunnar liggur
nú fyrir. Og ekki þarf að koma á óvart
þótt ýmsir vilji ræða spuminguna um
samband rikis og kirkju. Þá er einnig
eðlilegt að fólk velti fyrir sér stöðu
biskupsembættisins enda líta margir á það sem mikilvægt leiðtogaembætti og gera
miklar kröfur til þess. Á komandi ámm mun líklega reyna enn meira en fyrr á
þetta embætti gagnvart þjóðinni því fjölmiðlamir munu halda áfram að veita að-
hald, spyrja spuminga og leita eftir afstöðu foiystumanna kirkjunnar i ýmsum þeim
málum sem upp koma. Þá reynir sem fyrr á trúverðugleika kirkjunnar og trúfesti
hennar við fagnaðarerindið. Jafnframt reynir á fæmi biskups og annarra leiðtoga
kirkjunnar í því að stuðla að og halda uppi samræðum við samtiðina á grundvelli
fagnaðarerindisins.
í þessu sambandi er ekki úr vegi að minna á bæn og fyrirbæn. Við þurfum öll
á bæninni að halda andspænis viðfangsefnum og tækifæmm nýs árs. Og í dagsins
önn er gott að staldra við frammi fyrir Guði og leggja í hans hendur allt það sem á
huganum hvílir. Það er því gleðiefni að kyrrðar- og bænastundum hefur fjölgað
mikið í kirkjum landsins og aðsókn farið vaxandi. Öll þörfnumst við fyrirbænar og
hljótum á grundvelli kærleikans til náungans að biðja hvert fyrir öðm. Og kirkjan
okkar og leiðtogar hennar þarfnast einnig fyrirbænar. Gemm árið 1997 að ári
bænar og fyrirbænar.
Uicirmi
I Kristilegt tímarit
Útgefendur: Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK og
Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
Ritnefnd: Guðmundur Karl Brynjarsson,
Henning Emil Magnússon, Kjartan Jónsson
og Þórunn Elídóttir.
Atgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi 28,
pósthólf 4060,124 Reykjavik,
sími 588 8899, bréfsími 588 8840.
Árgjald: Kr. 2.700,- innanlands,
kr. 3.200,-til útlanda. Gjalddagi 1. mars.
Verð í lausasölu kr. 500,-.
Umbrot og útlit: SEM ER útgáfa.
Ljósmyndir: Kristján Einar Einarsson o.fl.
Prentun: Borgarprent.
Efni:
Staldrað við:
Ár bænar og fyrirbænar............ 3
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson:
Biskupsembætti setur maður ekki
saman eins og matseðil á veitingahúsi.. 4
Haraldur Jóhannsson:
Biskupsembættið á nýrri öld
Viðtal við sr. Guðmund Þorsteinsson,
sr. Halldór Reynisson, Unni Halldórs-
dóttur og Þórarinn Björnsson ......... 6
Valdís Magnúsdóttir:
Fyrirbæn..............................10
Ragnhildur Ásgeirsdóttir:
Þórsgötuhópurinn......................13
Sr. María Ágústsdóttir
Þannig skulið þérbiðja.................14
Sr. Kjartan Jónsson:
Kyrrðarstundir.........................17
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson:
TheX-Files.............................18
Um víða veröld ........................20
Gómer..................................22
Bókaskápurinn
Baldur Hallgrímur Ragnarsson:
Hvers vegna trúir þú?..................23
Benedikt Arnkelsson:
Hvað eru skriftir?.....................24
Lilja S. Kristjánsdóttir:
Engalvernd.............................25
Skúli Svavarsson:
Dómur og eilíf glötun..................26
Viðtal:
Esheta Abate...........................28