Heima er bezt - 01.12.1951, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.12.1951, Blaðsíða 27
» Nr. 10 Heima er BE'ZT 315 Helgi Sæmundsson: BARNIÐ OG BLÓMIÐ Tvennt hef ég elskað og dýrkað: barnið og blómið, hið blessaða lif, sem sprettur úr holdi og mold. Og sama hlutskipti bíður beggja að lokmn: að blikna og hneigja sig ofan í kalda fold. Ég veit, að blómið mitt fagra er feigt að hausti, því frostið leggur spjótinu í hjarta þess ungt, En þar var tréð hvergi sjáan- legt, og heldur ekki pappírinn, sem ég hafði fest á það. Hvort- tveggja hafði horfið jafn gjör- samlega og þeim hefði aldrei verið fyrir að fara. Og ekki nóg með það, heldur virtist sem allt það svæði í skóg- inum, sem ég hafði verið að virða fyrir mér, hefði skipt um svip, — einstök tré skipt um staði. Það var undarlegur bjarmi yfir þeim, ekki óáþekkur hillingum. Mér stóð ógn af þessu öllu, og ég verð að viðurkenna, að ég yfirgaf staðinn eins fljótt og mér var auðið.“ Þetta er sagan af Hjátrúar- skógi, eins og stjórnar-embættis- maðurinn sagði mér hana. Síðar varð ég á vegi Miss R., og hún staðfesti fyllilega það, sem ég hafði heyrt af reynslu hennar í skóginum. Meðan ég dvaldist þarna í Gedi hafði ég ekki tæki- færi til að gera slíka tilraun er kveður sumarið 0 grátandi foss í fjalli og fallvötnin ströng draga anda sinn hægt og þungt. En hvenær verður svo barnið mitt burtu kallað? Ég bíð ekki svars, en ákalla deyjandi von: Ó, dvel til eilífðar, vor, sem vermir og grœðir, og vernda þú blómið og kvíðandans glaða son. sjálfur, því að ég komst aldrei þangað sem skógurinn var, en það er ósk mín, að einhverntíma muni ferð mín beinast aftur að þessum slóðum, og þá mun ég sannarlega prófa, hver reynsla mín verður. Svo áhrifarík er hjátrúin og þjóðsagnirnar í Gedi, að íbúar staðarins hafa ekki séð sér ann- að fært en að flýja staðinn unn- vörpum; sá dagur mun eflaust upp renna, og mun að líkindum ekki vera langt undan, að allir í- búarnir yfirgefa staðinn og skilja dularöflin ein eftir. Þá munu draugar héraðisns fá að vera þar óáreittir á göngum sín- um í tunglsljósinu. Það eru ekki nema örfáir mánuðir síðan sú fregn barst um fiskveiðimenn frá Gedi, að þeir væru hópum saman að flýja byggðina, sökum dularfullra heimsókna manns nokkurs, sem kæmi utan frá sjó. Fiskveiðimönnunum sagðist svo frá, að fyrst sæju þeir blátt ljós úti á sjónum. Innan skamms barst það nær höfninni og inn á leguna. Undir landsteinuiium hverfur þetta ljós, en samstundis mótar fyrir undarlegum dökk- leitum báti, þeirrar tegundar sem þeir hafa aldrei áður séð. Báturinn rennur upp í flæðar- málið, og upp úr honum stígur aldraður maður með hvítt hár í óreiðu, klæddur hvítum kyrtli og með háan keilumyndaðan hatt á höfði, og glampar á hattinn, svipað því, sem hann væri settur gimsteinum. Svo kemur fiski- mönnunum saman um, að aldrei hafi þeir séð annan eins mann. Hann er hvorki Ingresi né Ma- hindi — það er að segja, hvorki Englendingur né Indverji — en þegar hann stígur á land, fellur hann óðar á kné, eins og hann sé að biðjast fyrir, og fórnar hönd- um til himins. En í sandinum sjást aldrei nein för eftir hné hans eða fótspor. Fyrr en varir hverfur bæði maður og bátur — verður uppnumið í túnglsljós- inu, og ströndin er eyðileg eftir; ekkert hljóð heyrist nema tístið í risavöxnum kanínum, sem halda til í dökkbláum rústun- um hið efra. Síðasta koma þessa ókunna manns á ströndina olli slíku upp- þoti meðal íbúa staðarins, að at- hygli austurafrísku blaðanna var vakin og frásagnir af atburð- unum komu í dálkum þeirra. Til viðbótar við allt annað, sem fyrir hefur komið að Gedi — draugaganginn í rústunum, töfraskóginn og svo allt hitt — er slík furðuheimsókn vissulega full ástæða til þess, að skelfdir fiskveiðimennirnir sjái sér bezt borgið með því að flýja staðinn. Heima er bezt er bezti heimilis- vinurinn

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.