Heima er bezt - 01.06.1954, Síða 5

Heima er bezt - 01.06.1954, Síða 5
Nr. 6 165 Heima er bezt Ólafsdalur. — Myndin er úr árbók Ferðafélags Islands um Dalasýslu, tekin af Þorsl. Jósepssyni. ýmsum framkvæmdum, var hann oft lengur og skemur frá heim- ilinu. Kom þá mest til húsfreyj- unnar, frú Guðlaugar Zakarías- dóttur, um alla stjórn þess og forsjá. Hún var stjórnsöm og frábær afkastamanneskj a um allan verkshátt. Þegar hér var komið, naut hún aðstoðar dætra sinna, sem heima voru. Þær sögðu sig ekki úr ætt um mynd- arskap og allt atgjörfi. Þegar Torfi kom heim um vor- ið heill á húfi, var honum vel fagnað af öllu heimilisfólki. Áttu þá allir frí frá störfum daginn þann. Hverjum heimilismanni gaf hann eitthvað til minning- ar um heimkomuna. Vélarnar og efni til hússins kom um vorið. Allt var komið í lag fyrir veturinn. Mátti það kraftaverk teljast við þau skil- yrði, sem fyrir hendi voru um aðdrætti og annað. Orkað mun hafa tvímælis, hversu heppilegt væri að koma þessu fyrirtæki upp á þessum stað. Torfi var á undan sínum tíma um margt. Viðfangsefnin því stærri, en framfarahugur og fjárhagsgeta alls almennings var á þeim tíma. Þegar Torfi hóf baráttu sína fyr- ir þessu tóvinnuvélamáli, mun hann hafa fært það í tal við ýmsa málsmetandi menn í nær- liggjandi sýslum. Margir komu að Ólafsdal og margháttuð kynni og bréfasambönd hafði hann við málsmetandi menn. Þá mun hann hafa orðið að leita til sýslunefnda um ábyrgðir, því að lítið fé var fyrir hendi. Ég minnist þess, að veturinn áður kemur Torfi á sýslufund Strandasýslu, sem haldinn var á Broddanesi að vanda. Mun hann þá hafa verið í þeim erindum. Jafnframt er það víst, að ekki mun hafa legið laust fyrir já- kvæði við þessari málaleitan. Samt fór svo, að fram kom Torfi sínu erindi. Til þess bendir að nokkru það, sem haft var eftir einum velþekktum mennta- manni, er að nokkru leyti fylgd- ist með því, sem gerðist.: „Hafa þeir nú látið hann Torfa dá- leiða sig?“ Vera má, að þarna hafi verið túlkaðar hugsanir ýmsra til þessa máls. Maður sá, er hér um ræðir, var sjaldan myrkur í máli og heflaði lítt orð- færi sitt, þó að kunningjar ættu í hlut. Þegar búið var að koma fjár- hagshlið málsins í það horf, að hefjast mátti handa um fram- kvæmdir, Torfi búinn að brjót- ast í siglingu, útvega vélar og efni til húsagerðar og það allt komið til landsins, þá var eftir að koma öllu því heim á stað- inn. Það var sannarlega ekki áhlaupaverk, eins og samgöngum þá var háttað. Timbrið kom á Salthólmavík, var tiltölulega stutt að sækja það. Allt var flutt á áraskipum og floti stundum hafður i eftirdragi. Ekki varð komist nema í logni eða í með- byri og sæta varð sjávarföllum. Einu sinni vorum við komnir á skipinu inn á fjörðinn nokkuð inn fyrir allar grynningar, vor- um þá með flota aftan í. Þá hvessir á norðan út fjörðinn, svo að við urðum að flæmast upp að landi yzt á Holtahlíð og bera þar af skipinu. Sumt var sótt út í Skarðsstöð, einnig á áraskipi. Erfiðast var þó að koma vélum í áfangastað. Þær komu með skipi til Stykkishólms. Til þess réðst roskinn skipstjóri úr Stykkishólmi, Bjarni Jóhanns- son. Flutti hann þær á litlum þilfarsbáti alla leið utan úr Hólmi inn að Ólafsdalseyrum. Uppskipun gekk vel og eins að koma öllum flutningi til stöðv- arhússins, er stóð í dalnum nokk- urn spöl fyrir ofan túnið. Gestkvæmt var mjög í Ólafs- dal, þó jókst það að miklum mun meðan kembingarvélarnar störf- uðu. Menn komu með ull úr nær- liggjandi sveitum. Einnig sunn- an úr Borgarfirði og austan úr Húnavatnssýslu. Margir voru nætursakir og biðu meðan kembt var, þegar um smásend- ingar var að ræða. Þó að Torfi beitti sér fyrir framgangi ýmsra máli bæði um búnaðarframkvæmdir og verzl- unarmál, þá mun hann sjaldan hafa haft jafnmikið og erfitt starf með höndum og þurfti til að koma þessu tóvinnumáli í framkvæmd. Þessa vegna drap ég á það hér, þó að það falli ekki saman við venjulega heimilis- hætti. Gleggst minnist ég kennslu- stundanna hjá Torfa. Ég hef ekki annarrar skólagöngu notið og get því engan samanburð gert eða við aðra miðað. Mann heyrði ég segja frá því, sem gengið hafði á Möðruvallaskóla eftir að hafa notið kennslu hjá Torfa, að hann teldi hann beztum kostum búinn sem kennara, af þeim mönnum, er hann hafði notið kennslu hjá. Var það þó þjóðkunnugt, hversu mikilhæfir kennarar störfuðu við Möðruvallaskóla. Þó að náms- efnið væri stundum tyrfið óg öll-

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.