Heima er bezt - 01.01.1956, Page 20

Heima er bezt - 01.01.1956, Page 20
 Utanfarir íslenzkra söngkóra hafa verið svo tiðir atburðir siðustu árin, að þœr eru hœttar að vekja athygli nema rétt i bili. Hér segir SNORRI SIGFUSSON, fyrrv. námsstjóri, frá fyrstu islenzku söngförinni til ut- landa fyrir hálfri öld siðan. Hekluförin var brautryðjendastarf, til þess að kynna islenzka söngmennt á er- lendum vettvangi. Heklungarnir fóru hana einir og óstuddir af öðru en áhuga sínum og ágcetri söngrödd. Er oss gott að minnast þess á vorum tímum, þegar ekkert verður gert án stuðnings og styrkja. HEKLUFÖRIN 1905 essa dagana, fyrir hálfri öld, var lítill söng- flokkur á Akureyri að týgja sig til utanferð- ar, til að syngja fyrir framandi þjóð. Það var hin fyrsta söngför frá íslandi og þótti ekki í lítið ráð- izt. Og þar sem ég var einn í flokknum, og bráðlega fáir til frásagnar um þennan einstæða atburð, þá hef- ir talazt svo til, að ég ritaði hér smáþátt um þessa för. Sennilega hefir aldrei verið meiri vorhugur í ís- lenskri þjóð en á fyrsta áratug þessarar aldar, og bar margt til, sem hér verður ekki rakið. En það var sannarlegt vor í lofti, og þá einkum meðal æskunnar í landinu, sem fylkti sér undir merki Ungmennafélaganna: íslandi allt. Þar var ekki til stétt eða flokkur, aðeins íslendingar. Og stjóm- frelsið, síminn og fleiri vorboðar, fylla hugina og skapa mikla bjartsýni. Og e. t. v. hefir aldrei verið yndislegra að vera ungur en þá. Og þó var sá heim- ur, sem æskan ólst upp í, ótrúlega fátækur af öllu því, sem nú er talið til tækni og þæginda. En um það kvartaði enginn. Allir urðu að vinna a. m. k. hálfan sólar- hringinn, og þar var ekkert hangs. Og samt varð tími af- gangs til félagsvinnu og funda- halda. Bíósetur og sífelldir dansleikir töfðu ekki. Þó var að sjálfsögðu stundum dansað í fundarlok, máske einu sinni eða tvisvar í mánuði. Og það var gert af fjöri heilbrigðrar æsku. Þar var engin vælandi og dillandi hjörð, sem s i 1 a ð i s t áfram í einhvers konar erótískri leiðslu eftir hljóðfalli blökku- manna. Nei, harmónikan eða fiðlan sáu um að svo var ekki. Og svo var sungið af lífsins list, mikið, og allir sungu af fjöri og krafti hvatningaljóð og ættjarð- arsöngva. — Já, það var sannarlegt vor í lofti, og vorsöngur hinnar vaknandi og vaxandi þjóðar var fjörugur og hreimsterkur í öllum sínum einfaldleik. Þótt mikið væri sungið á þessum árum, var þú fjórraddaður kórsöngur fremur sjaldgæfur, og raun- ar viðburður um s. 1. aldamót að slíkur söngur heyrðist. En einn var sá maður norðanlands, sem varð í þessum efnum einskonar leiðarljós og braut- ryðjandi. Það var Magnús Einarsson organisti og söngstjóri á Akureyri. Hefi ég áður minnzt hans í útvarpi, og skal því ekki fjölyrða um hann hér, fram yfir það, sem nauðsyn krefur. En hann hafði brotizt áfram til þess að mennta sig á þessu sviði, bæði utanlands og innan, var fjölhæfur gáfumaður og ágætlega söngvinn og músikalskur. Hann var um tugi ára söngkennari á Akureyri og organleik- ari við kirkjuna þar. Ög um sl. aldamót var Magnús Einarsson miðaldra maður, sem kallað er, og fullur af áhuga og starfsorku. Hann hafði fyrir aldamótin stofnað blandaðan kór, sem nefndi sig Gígju. Mun sá kór hafa orðið til upp úr samtökum til söngs- á Eyfirð- ingahátíðinni á Oddeyri 1890, er þúsund ára byggðar Eyja- fjarðar var minnzt. En Gígja varð ekki gömul, markaði samt spor frumherjans m. a. með því að láta prenta og gefa út nokk- ur sönglög. Mun flokkurinn þó hafa sungið á Akureyri alda- mótaárið, en eftir það verður hans ekki vart. En þá kemur fram á sjónarsviðið karlakórinn Hekla, er Magnús Einarsson stofnaði á 1. eða 2. ári aldarinn- ar, og fylltu nokkrir úr Gígju þann flokk. Hekla varð athafna- samur söngflokkur, og hinn 18 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.