Heima er bezt - 01.01.1956, Side 22

Heima er bezt - 01.01.1956, Side 22
20 Heima Nr. 1-2 --------------------------------er bezt---------------------------- Þennan vetur æfði Hekla af miklu kappi mikinn fjölda kórlaga og hélt marga opinbera samsöngva, en aldrei var minnzt einu orði á utanför lengi vetr- ar. En undir niðri ólgaði kappið og eftirvænting hinnar dularfullu og óljósu vonar, sem ágætir dóm- ar um söng Heklu, gáfu nokkurn byr undir væng- ina. En svo er það í apríl 1905, að boðað var til leyni- fundar niðri á Oddeyrartanga. Þar var málið rætt í fullri alvöru, og skýrði Magnús Einarsson frá því, að hann ætlaði til Noregs til athugunar á þeim möguleikum, að Hekla kæmi þangað með haustinu og syngi. För þessa mundi hann fara á eigin kostnað, en vita þyrfti hann nú, hvort flokk- urinn væri fáanlegur í þessa för, ef farið yrði, en til þess þyrfti a. m. k. æfingar í einn mánuð áður. Samþykktu þetta allir. Og enn var þessu ráðabruggi haldið algerlega leyndu. Um vorið fór svo Magnús söngstjóri til Noregs, og mun hafa þótzt ætla að athuga kirkjusöng þar, en þó mun suma hafa grunað hið rétta. Gekk þessi ferð Magnúsi að óskum, og var förin ráðin. Var meðlimum kórsins svo tilkynnt þetta og það jafn- framt, að allir þyrftu að mæta á Akureyri um miðj- an september til æfinga, en við vorum 5 utan úr sveitum. Og svo hófust æfingarnar á ný, og þá varð nú lýðum ljóst hvað til stóð, og mun ekki hafa verið um meira talað, í bæ og utan, en þetta uppátæki söngflokksins. Mun flestum hafa fundizt í nokkuð mikið ráðizt. Að vísu syngi flokkurinn vel, að dómi Akureyringa, en það þyrfti nú meira til, ef vel ætti að fara, því að strangar kröfur yrðu áreiðanlega gerðar til söngflokks, sem teldi söng sinn boðlegan á erlendum vettvangi. Þetta gæti orðið alvarlegt frumhlaup og jafnvel landi og þjóð til hneisu. Og sagt var að einhver hefði stungið upp á því, að fá bæjarstjórn eða jafnvel Ráðherrann til þess að banna þessa utanför. En þetta fór nti allt lágt, enda sat nú Magnús Einarsson fastur við sinn keip og dugði engum að reyna til að telja úr honum kjark- inn. Og í þessu sambandi verður að geta þess, að á Akureyri átti þá heima einn hinn söngmenntað- asti maður þeirra tíma, sr. Geir Sæmundsson, er hlotið hafði mennt sína erlendis, skólaður hjá fræg- um kennurum, og hafði að sjálfsögðu margsinnis hlustað á vel þjálfaða kóra, enda sjálfur mikill smekkmaður á söng, og hafði eina þá fegurstu söng- rödd, sem öllum, er heyrðu, verður ógleymanleg. Þennan mann átti Magnús Einarsson að ráðunaut og vin. Hann hlustaði á hvern samsöng Heklu, mun áreiðanlega hafa oft gefið góð ráð og vissu- lega hvatt til fararinnar, þótt ekki væri haft hátt um það. Lét nú enginn bilbug á sér finna, enda varð ekki aftur snúið. Mátti svo heita, að fengist væri eitt- hvað við söngæfingar frá morgni til kvölds. Og nú þurfti margt að gera. Sauma þurfti ný föt á allan hópinn úr svörtu klæði, öll með sama sniði. Einnig skyldi hópurinn hafa samskonar flibba og slaufu, en söngstjórinn vera klæddur diplómatfrakka, er þá þótti bezt viðeigandi. Og svo varð einnig að sauma húfur á hópinn. Þær voru með svörtu skygni og hvítum kolli, en með blárri gjörð eða borða, og var saumuð hörpumynd framan á, en hægra megin við þá mynd voru saumaðir stafirnir: í s 1. (íslenzk- ur), en vinstra megin stafirnir k ó r. Voru húfurnar hinar skrautlegustu, og allur þótti þessi búningur hinn snotrasti, og mundi nú hópurinn sóma sér vel á söngpalli. Þá þurfti að sjálfsögðu að prenta mikinn fjölda af söngskrám með textum, bæði á íslenzku og dansk- norsku, og var séra Matthías þar hjálplegur. En einn úr hópnum, Snorri Snorrason, orti ávarpsljóðið: „Vér heilsum frá konu með fannhvítan fald“, — en Magnús söngstjóri bjó til lagið. Æfð voru 24 sönglög, ásamt þjóðsöngum, og raunar ýmsum fleiri til vara. Þessi 24 sönglög, sem á söngskránum voru, voru öll eftir ísl. höfunda, og því ekki um mikið og fjöl- breytilegt úrval að ræða. Þau voru þessi: Eftir Bjarna Þorsteinsson: Systkinin, Kirkjuhvoll, Vornótt, Allir eitt, Ég vil elska mitt land, Ég elska þig stormur, Blessuð sértu sveitin mín. Alls 7 lög. Eftir Sigfús Einarsson: Þú álfu vorrar yngsta land, Er æðir stormur um efsta tind, Gröfin. Alls 3 lög. Eftir Sigurð Helgason: Skín við sólu Skagafjörð- ur, Stillið hörpu. Alls 2 lög. Eftir Helga Helgason: Þið þekkið fold með blíðri brá, Buldi við brestur og brotnaði þekjan. Alls 2 lög. Eftir Jónas Helgason: Við hafið ég sat fram á sævarbergsstall. Eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson: Ó, guð vors lands. Eftir söngstjórann M. E.: Vér heilsum frá konu með fannhvítan fald, Fífilbrekka gróin grund, Vökum, vökum vel er sofið, Heill sé þér dáðfrægi Dofri, Heil og blessuð Akureyri. Alls 5 lög. Og svo tvö þjóðlög: Bára blá, og Ólafur reið með björgum fram. Þar að auki voru æfð ýms verk eftir erlenda höf-

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.