Heima er bezt - 01.01.1956, Page 34

Heima er bezt - 01.01.1956, Page 34
32 Heima Nr. 1-2 --------------------------------er bezt---------------------------— koma Norðmanna við söngflokkinn mótazt af viður- kenningu á verðleikum hans, og vinarþeli til lands og þjóðar. Þegar ég tveim árum síðar kom aftur á þessar slóðir og kynntist fólki þar, kom í ljós að söngur Heklu hafði vakið mikla eftirtekt, og oft varð ég að syngja sum lögin þar á skólaárum mínum. F.n svo var haldið heim, stigið um borð í Egil gamla 6. eða 7. desember og lagt á hafið. Gekk allt sæmilega til Færeyja, og sungið var í Þórshöfn við mikla hrifningu áheyrenda, og tóku Færeyingar flokknum með kostum og kynjum. En skömmu eftir að skilist var við Færeyjar, hreppti skipið af- takaveður dögum saman, svo að allt ætlaði sundur að ganga. Laskaðist skipið talsvert ofanþilja, og nokkuð af matarforða þess og mikið af öli fór í sjóinn, og sá einhver brytann á fjórum fótum á eldhúsgólfinu hágrátandi yfir þeim mikla missi. Hitt þótti mikil mildi, að reykingasalurinn, sem var einskonar kassi ofanþilja og nokkrir söngmann- anna urðu að hýrast í sökum þrengsla, skyldi ekki sópast í hafið. Mun skipið hafa verið mjög hætt komið, eftir því sem stýrimaðurinn trúði okkur fyr- ir síðar. En einhvernveginn skrönglaðist gamli Egill upp að austurströndinni, en hafði þá verið 10 daga á leiðinni. Og það voru fegnir menn, sem eftir mikla sjóveiki og sjóhræðslu skriðu á land og — kysstu jörðinal Tóku Austfirðingar ágætlega móti kórnum, og Seyðfirðingar slógu upp veizlu og dans- leik, Heklu til heiðurs, og lifnaði þá fljótt yfir hinum sjóhröktu söngvurum. Og enn var lagt á djúpið, norður fyrir land, í skammdegismyrkri og hríð. Er það raunar mikið undrunarefni, hvernig þessum sjóhetjum tókst að forðast land og finna þó hafnir á vitalausri strönd að kalla, eins og þá var. En hér hefir mikið áunnizt á hálfri öld, og er það gleðiefni. En gamli Egill var sjáanlega vanur að rata í myrkri. Og einn hríð- armorgun rétt fyrir jólin kastaði hann akkerum á Akureyrarhöfn, og þótti þá ófrýnilegur ásýndum vegna klaka og skemmda, er hann hafði hlotið í þessari skammdegisför. Enginn í landi vissi að Hekla var um borð, því að ekki var þá sími kom- inn til að flytja þær fregnir. En í grárri morgun- skímunni fvlkti Hekla liði uppi á þilfari og söng af krafti vísu Jóns Ólafssonar: Guð minn þökk sé þér, þú að fylgdir mér aftur hingað heim, hér vil ég þreyja — o. s. frv. Og er ómar söngsins bárust upp í bæinn, vissu menn hvers kyns var: Hekla var komin heim. Og þóttust menn hana úr helju heimt hafa því að sumir töldu sig hafa haft þunga drauma um ástand Heklu og afdrif, en ekkert hafði af flokknum frétzt síðan hann fór. Þannig var einangrun lands og lýðs fyrir hálfri öld. Og svo voru það fjárreiðurnar. Ekki hafði Hekla grætt fé á þessu ferðalagi. Úthaldið allt reyndist ærið kostnaðarsamt, sem vænta mátti, og kom flokk- urinn heim með talsverða skuld á baki, sem með- limirnir urðu að taka á sig og skipta milli sín. Munu það hafa verið um 200 krónur á mann. Það þykir smáupphæð nú, en var það ekki þá. Og skal til glöggvunar á því getið þess, að næsta sumar var ég verkstjóri á sveitaheimili frá sumarmálum til gangna og fékk 150 kr. í kaup yfir tímann, og þótti hátt kaup þá, en það er álíka fjárhæð og 16 ára unglingur hér í Reykjavík getur unnið sér inn á einum degi í fiskvinnu nú. En öll sumarvinnan árið 1906, hrökk ekki til þess að greiða þessa áföllnu skuld, og hún var aðeins 200 krónur. Við slíkt mat og veltu bjó unga fólkið þá. Nú mundi þessi upp- hæð heita svo sem 20—30 þúsund a. m. k., og mundi þá umtalsverð. En ekki minnist ég þess, að nokkrum okkar kæmi þá til hugar að ætlast til þess, að bær eða ríki hlypi hér undir bagga. Þetta var okkar baggi, og hann yrðum við að sjálfsögðu að bera, hver um sig. Og það munum við allir hafa gert möglunarlaust. Við höfðum verið þátttakendur í merkilegri og sögulegri för, og mjög skemmtilegri. Og við höfð- um lagt okkur fram og stutt okkar ágæta söngstjóra í hans merkilega brautryðjandastarfi. í október 1955. Snorri Sigfússon. VeáriS í desember Framhald af bls. 11. klofsnjór, þó að bærinn heiti Grænahlíð. Ef allir vetur væru eins, þá gerðu snjóarnir þó minni óþæg- indi. Þá þyrfti aðeins að reikna nákvæmlega, hvað heybirgðirnar muni endast handa mörgu fé, og setja síðan á vetur eftir því. En ekki er því heldur að heilsa. Hver vetur er sjálfstæð persóna, rétt eins og manneskjurnar. Sumir eru elskulegir, mildir og góðir. Aðrir eru rólegir með köflum, en uppstökk- ir, og þá laus höndin. Enn aðrir eru illgjarnir fant- ar. Margir eru skírðir viðeigandi nöfnum eftir lund- arfari: Lurkur, Þræll og Þjófur.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.