Heima er bezt - 01.01.1960, Page 9

Heima er bezt - 01.01.1960, Page 9
stöðvunum í Minneota til 1935, en eftir það í Minnea- polis, Flutti hann þar um skeið daglega þætti í útvarp, annaðist þingfréttir fyrir útvarpið og skrifaði ritstjórn- argreinar í blöð, fyrst Minneapolis Journal en lengst í Minneapolis Tribune. En aftur skall heimsstyrjöld á, og greip hún nú eftir- minnilega inn í störf Valdimars Björnssonar. Hann var kvaddur til herþjónustu 1942, og þótt hann teldist þjóna í flotanum, urðu störf hans mest í þágu landhersins. Dvaldist hann við þau störf hér á Islandi, og síðar í þjónustu sendiráðsins bandaríska samfleytt til ársins 1946. Hvarf hann þá heim aftur og að fyrri störfum. En brátt verða þáttaskil að nýju í ævi Valdimars. Frá unga aldri hafði hann hneigzt að stjórnmálum enda alizt upp við þá hluti hjá föður sínum. Gerðist hann ungur fylgjandi flokki Republikana, svo sem var faðir hans. Var hann kjörinn formaður flokksdeildarinnar í heimahéraði sínu árin 1932—34. Jafnframt blaða- mennskunni, hafði hann frá ungum aldri lagt sig eftir ræðuflutningi. Aðeins 18 ára að aldri, og þá nemandi í miðskóla (high school), vann hann 1000 dala verðlaun í mælskusamkeppni námsmanna úr fimm ríkjum, Dakotaríkjunum báðum, Minnesota, Iowa og Wis- consin. Var umræðuefnið stjórnarskrá Bandaríkjanna, svo þurft hefur bæði þekking og ræðumannsfærni, til að sigra í slíkri keppni. Sem útvarps- og blaðamaður varð hann víða kunnur og varð brátt eftirsóttur fyrir- lesari á samkomum og við ýmis tækifæri. Meðan hann dvaldist á íslandi hafði hann gegnt ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Bandaríkjastjórn. Þegar svo var, að þarna var kunnur starfsmaður, vinsæll blaðamaður og fyrirles- ari, var ekki að undra, þótt flokksbræður hans fengju augastað á honum til hinna vandamestu starfa, og til baráttu fyrir flokkinn í fremstu víglínu. Varð hann því við áskorun flokksins um að bjóða sig fram til embættis fjármálaráðherra í Minnesota árið 1950. En í Banda- ríkjunum eru ráðherrar hinna einstöku ríkja kosnir með almennum kosningum, eins konar landskjöri. Náði hann kosningu í fyrstu atrennu, og ætíð síðan, er hann hefur boðið sig fram til þessa starfa. Hins vegar tap- aði hann kosningu, er hann bauð sig fram til öldunga- deildar Bandaríkjaþings árið 1954, enda átti hann þá í höggi við einn af fremstu stjórnmálamönnum Demó- krata, sem jafnvel hefur verið talað um sem forsetaefni. Það sem merkilegast er við kosningasigra Valdimars Björnssonar, er að hann hefur oftast einn náð kosningu sinna flokksbræðra í ráðherraembætti, því að í Minne- sota eru Demókratar í miklum meiri hluta. Hafa þetta því verið greinilegir persónusigrar Valdimars. • Eins og geta má nærri hefur Valdimar mjög tekið þátt í ýmsum félagsmálum, bæði kirkjumálum og öðru, ekki sízt meðal Skandínava. Ekki kann ég að rekja störf hans á því sviði, nema hann situr nú í stjórnar- nefnd American Scandinavian Foundation í New York, og var hann kjörinn til þess starfa að Halldóri Her- mannssyni, prófessor, látnum. Þá hefur hann mjög komið við störf Þjóðrœknisfélags íslendinga í Vestur- heimi og einkum verið eftirsóttur ræðumaður á sam- Valdimar Björnsson i rceðustóli. komum þess og íslendingadögum. Hann átti sæti í nefnd þeirri, sem vann að sameiningu íslenzku Vestur- heimsblaðanna, og situr nú í útgáfustjórn hins samein- aða blaðs, Lögbergs-Heimskringlu. Heiðursmerkjum hefur hann verið sæmdur, bæði stórriddarakrossi hinn- ar íslenzku Fálkaorðu og riddarakrossi St. Olavs orð- unnar norsku. Þegar Valdimar dvaldist hér á íslandi kvæntist hann Guðrúnu Jónsdóttur, Hróbjartssonar, kennara á ísa- firði. Eiga þau hjón fimm börn. Valdimar Björnsson er einn þeirra manna, sem hafizt hefur af sjálfum sér. Hvorki auður né frændstyrkur hefur þar til greina komið, heldur einungis meðfæddir hæfileikar og dugnaður. Er slíkt eigi lítið þrekvirki, þar sem samkeppnin er jafnhörð og hún er í Ameríku, og margra manna völ. Þess var áður getið, að hann hefði hvað eftir annað einn sinna flokksbræðra í Minnesota náð ráðherrakosningu. Þar hefur persónuleiki hans fært honum sigurinn en ekki stjórnmálastefna eða flokks- fylgi. En þetta vekur ekki furðu þeirra, sem þekkja Valdimar. Framkoma hans er i senn hlýleg og gædd myndugleika. Flvar sem hann fer laðar hann menn að sér. Endurtekin kosning hans er órækast vitni um, hvernig hann rækir hið vandasama starf sitt. Þar mundi enginn sitja kjörtímabil eftir kjörtímabil, ef hann nyti ekki hins fyllsta trausts, og hefði til þess unnið. Valdi- mar er ræðumaður með ágætum, rökvís og harðskeytt- ur, ef þess þarf með en gamansamur og glettinn þar sem það á við. Persónuþekking hans er frábær. Hann mun naumast gleyma nokkrum manni, sem hann hefur kornizt í snertingu við. Og allir, sem honum kynnast, finna að þar er drengur góður. En Valdimar Björnsson er ekki einungis ágætur amerískur borgari og stjórnmálamaður. Rætur hans liggja djúpt í íslenzkri mold, þótt alinn sé hann á slétt- Heima er bezt 5

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.