Heima er bezt - 01.01.1960, Síða 22

Heima er bezt - 01.01.1960, Síða 22
'cS>Æ>i5>=£>':S>í^5>C'‘5>ff'<5>* '5>®'«>=£>'5>?>*S>*':5>í>*5>£^S>í>'5>í>'S>C'5=C'5>í^5>í:^5>S^5>í>'i>?>'5>?'5>«>'5>í>'5>«>'5>=«>'5>«>‘5>?: Æviminningar BJARGAR SIGURÐARDÓTTUR DAHLMAN ÞÓRA , FRÁ INGJALDSSTÖÐUM JONSDÓTTIR '5>c>'5>»> fœrði í letur -..*>*.- »>s- r>S' »■'■ s- »>5> •>'SN.r/sx^s- s> S'.r/s-»:'i>=»>i'.»>i> »>5>»> S'=.f>s-.'r-'■S' r''s>.»>s (Framhald). Sjálf fór ég til Hafnar og hvíldi mig í nokkra daga. Eg hitti aftur stúlkuna, sem ég hafði kynnzt í Stokk- hólmi. Við leigðum okkur herbergi í sama húsi og höfðum eldhús saman. Ég byrjaði að ganga í hús og hjúkra. Ég hafði aðeins hjúkrað í mánuð, þegar ég kom heim eitt kvöld og fann nafnspjald frú Hannover á borðinu mínu. A því stóð aðeins: „Ég kem og sæki þig á morg- un.“ Ég hafði haldið að hún væri í Chicago, og þetta kom flatt upp á mig, en ég gat ekki neitað henni, sem hafði reynzt mér svo vel í veikindum mínum. Ég fór með henni daginn eftir og leigði út herbergið. Ég spurði hvers vegna hún hefði hætt við ferðalagið. „Ég trúði henni ekki fyrir mér,“ svaraði hún. Enska stúlkan hafði ekki kunnað lagið á henni og þeim alls ekki samið. Ég var hjá henni um sumarið á Nærumgárd. Um haustið, stuttu eftir að við fluttum á Hotel d’Angleterre, veiktist hún og lifði aðeins fáa daga eftir það. Ég hafði verið hjá henni í þrjú ár. Þá byrjaði ég að hjúkra frú Lindenkrone, sem var berklaveik. Maður hennar, General Lindenkrone, var adjutant Kristjáns IX. Frúin var norsk; hún var leik- systir Lovísu drottningar og hafði vinátta þeirra hald- izt. Þau hjónin voru viðstödd flest samkvæmi við hirðina. Frú Lindenkrone var ekki mjög þjáð og klæddist alla daga. I ljósaskiptunum sátum við í dagstofunni og hlust- uðum á General Lindenkrone, sem sagði sögur frá hirð- inni. Þau héldu þannig rökkurstund, eins og við íslend- ingar; mér hefur dottið í hug, að það hafi átt rót sína að rekja til að frúin var norsk. Ég hafði hjúkrað henni í 4 mánuði, þegar hún dó. Áður en hún lézt, bað hún mig að vera kyrra á heimil- inu og hjálpa dóttur þeirra, sem var 18 ára, við hús- stjórnina. Þar var ég í tvö ár. Einu sinni sem oftar var haldin veizla hjá General Lindenkrone. Við borðið fór einn gestanna að segja frá háttum Islendinga, þar á meðal, að þeir ætu hákarl, sem þeir græfu niður í jörðina og létu úldna þar. Ég átti bágt með að hlægja ekki að því, hvernig hann sagði orðið hákarl, og fór því fram að sækja meiri steik. Þegar ég kom inn aftur var dauðaþögn við borðið. Ég vissi að húsbóndinn hafði sagt gestinum að gæta orða sinna, því að ráðskonan sín væri íslenzk. Ég bauð fyrst þeim, sem hafði talað, því diskur hans var tómur. Hann afþakkaði. „Yður er alveg óhætt,“ sagði ég, „þetta er ekki há- karl.“ Allir skelltu upp úr. Að lokinni máltíð kom einn gestanna til mín og sagði, að ég hlyti að geta rímað úr því ég væri íslenzk. Eftir að hafa verið ögrað, fór ég upp á herbergi mitt og setti eftirfarandi saman. Ég las það upp fyrir gestina og því var vel tekið: Sol over lid, sol over sande, sol over fjeldtop og blánende vande, glittrende floder, og pludrende bække, syngende svaner og blomstrende hække. Lade sig favne af fjeldvinden svale, lytte med undren til fossernes tale. Sá er mit hjemland i glæde og smerte, kom sá og fryd dig ved fjældgudens hjerte. Að tveim árum liðnum giftist dóttirin upp í sveit. Hún bjóst við, að ég myndi fylgja sér, en mig langaði meira til að eignast eigið heimili og umgangast íslend- inga. Mér datt því í hug að stofna matsölu. Ég færði það í tal við General Lindenkrone. Hann réði mér frá því. Finnur Jónsson sagði mér, að engri íslenzkri konu hefði heppnazt það enn þá. En ákvörðun mín styrktist við hverja hrakspá. Ég ráðgaðist við Steingrím Jóns- son frá Gautlöndum, sem var við nám í Höfn; honum leizt vel á þessa hugmynd. Ég leigði íbúð í Ole Suhrsgötu og opnaði matsöluna í miðjum september árið 1895. Fyrstu kostgangarnir mínir voru Steingrímur Jónsson, kona hans og Þorlákur bróðir hans, Kristján Kristjánsson, síðar læknir á Seyð- isfirði og Vilhjálmur Jónsson, bróðir Finns. Við jóla- borðið sátu 24 kostgangarar, allt stúdentar. Matsöluna hafði ég í 18 ár. Á þeim tíma bjuggu hjá mér eða borð- uðu fjöldamargir Islendingar, sem of langt yrði að telja upp. Þeir, sem einna lengst voru hjá mér voru t. d. Steingrímur Matthíasson, Böðvar Kristjánsson, Guð- mundur Finnbogason, bræðurnir Friðrik og Sveinn Hallgrímssynir, Ásgeir Torfason og systir hans, Ingi- björg, Eggert og Gunnlaugur Classen, Páll Egilsson, Valdemar Erlendsson, Árni Pálsson, Ágúst H. Bjarna- 18 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.