Heima er bezt - 01.02.1968, Síða 8
Jón og Aslaug njóta veðurbliðunnar sl. sumar á „verönd“
húss sins.
saman nokkra fjárhæð í því skyni að geta gripið til, ef
veikindi steðjuðu að. Kvað einsætt, að þessi fjárhæð
færi í súginn og miklu meira. Elínborg taldi kjark í Pál
og sagði: „Hvað er meiri trygging góðs heilsufars en
heilnæmt lindarvatn til heimilisnota,“ — Vatnsleiðslan
varð fullgerð og fjárhagur Tungu-heimilisins haggað-
ist ekki.
Fiirsæld, manndáð og fornar dyggðir.
Hér að framan hefur verið rakin ein grein Melaætt-
ar í fimm ættliðum. Lýst hefur verið ævi þeirra og at-
ferli eftir föngum. Forfaðirinn fæðist 1737 og sá yngsti
deyr 1959. Ferill þeirra tekur yfir fullar tvær aldir. Er
margt í fari þessa fólks, sem vekur athygli og umhugs-
un. Allir ná háum aldri. Einn verður nær tíræður, ann-
ar 96 ára. Kynsæld er mikil. Heilbrigði og lífsþróttur
ríkjandi. Þeir koma upp stórum barnahópi án hjálpar
eða styrks úr nokkurri átt. Farsæld, manndáð og fom-
ar dyggðir einkenna þessa ættkvísl.
Þessar kynfylgjur eru ekki einkennandi fyrir Melaætt
eina. í öllum ættbálkum íslenzkum um gjörvallt ísland
var á þessu tímaskeiði ríkjandi sú karlmannlega lífsskoð-
un að duga eða liggja dauður ella. Þessi andlega reisn
hlaut að skapa gróandi þjóðlíf og giftusama kynslóð.
Fólldnu, sem um aldamótin 1900 var í broddi lífsins,
svall móður og var þess albúið að hefja sókn til efling-
ar atvinnuvegum og menningu í landinu. Unga fólkinu,
sem var að rísa á legg, aldamótaæskunni, var sú trú í
blóð borin, að henni væri búin vænlegri framtíð í landi
sínu en nokkurri kynslóð á undan henni.
í stuttu máh verður hér á eftir sagt nokkuð frá ævi-
starfi eins manns úr æskusveit aldamótanna.
Jón Pálsson, dýralæknir.
Jón Pálsson dýralæknir fyrrverandi, Hlöðum, Sel-
fossi, er fæddur 7. júní 1891 að Þingmúla, Skriðudal í
Suður-Múlasýslu. Þriðji í röðinni 14 systkina. Hann
var fóstraður í föðurgarði í hópi glaðværra systkina.
Kom brátt í ljós að þessi sveinn var námfús og fram-
gjarn. Gekk í Flensborgarskóla. Gagnfræðingur þaðan
1909. Próf úr 5. bekk M.R. 1913. Sigldi til Kaupmanna-
hafnar til náms í dýralækningum. Próf í þeim fræðum
1918 úr Dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Höfn.
Dýralæknir í Austfirðingafjórðungi 1918—1934. Sat á
Reyðarfirði. Þegar 5. dýralæknisembættið var stofnað
1934, var Jón skipaður í embættið og gegndi því til
1950. Skyldi hann sitja á Selfossi og fá til yfirsóknar
Árness- og Rangárþing, Vestur-Skaftafellssýslu og
Vestmannaeyjar. 1950 var þessu embætti skift í tvennt.
Síðan héraðsdýralæknir í Árness-sýslu og Vestmanna-
eyjum til 1961. Fálkariddari 1962. Jón Pálsson hefur
Fjórir œttliðir 1950.
44 Heima er bezt