Heima er bezt - 01.02.1968, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.02.1968, Blaðsíða 32
sætur strákur fyndi mann í dimmu skúmaskoti. Þá gæti nú margt skemmtilegt skeð. Vala varð líka fyrir sinni fyrstu reynslu af ásta- málum þetta haust. Þeir Kálfskinnsbræður voru með þeim í útilegumannaleiknum, og Vala og þrír strákar áttu að fela sig. Hún faldi sig í fjárhúshlöðunni í þeirri von, að hún gæti fengið sagt fáein orð við vesalings Úlla, sem einn lá upp á heystabbanum og hlustaði á hrópin og köllin og hláturinn. Ekki þorði hún aðkalla til hans, heldur ætlaði að klifra upp til hans á stabbann. Þá heyrði hún allt í einu þrusk og lágt fótatak. Vala vissi ekki hver þetta gæti verið. Hún þorði ekki að hreyfa sig. Þruskið færðist nær. Hún var næstum vissum, að þetta myndi vera Ulli, sem færi svo hljóð- lega. „Hver er þetta?“ hvíslaði hún ofurlágt. Hún sá skugga færast nær, þó nærri kolamyrkur væri í hlöðunni. Allt í einu var gripið utan um hana sterkum örm- um og henni þrýst upp að heystálinu. Votar varir lögðust á hennar, áður en hún kæmi upp nokkru hljóði. Guð minn góður, var þetta þá sælan, sem Nunna hafði lýst svo fjálglega, þessi viðbjóður! Hún fann skeggbroddana stinga sig, og þessar votu, slepj- uðu varir sjúga sig fastara, um leið og henni var þrýst niður á gólfið. Með örvæntingarafli náði hún lausri annarri höndinni og klóraði af öllu afli í andlit kval- ara síns. Hann rak upp hást baul: „Helvítis tæfan! Hvað ertu að gera þig kostbæra! “ Svo dró hann hana niður á lausa heyið. Vala gat kallað á hjálp, áður en hann gat lokað munni hennar aftur með sínum. Kallið var svo veikt, að hann var viss um, að enginn gæti hafa heyrt það. Það hneggjaði í honum gegnum nefið, þegar hann tróð annarri stóru krumlunni upp undir peysuna hennar og greip um brjóst hennar. Vala vissi aldrei hvað hafði skeð. Allt í einu var hún laus, og hvæs og más heyrðist í myrkrinu, þung högg dundu, en ekkert orð var sagt. Svo skrönglaðist einhver með miklum hraða fram jötuna og niður í garðann og út. Vala lá yfirkomin í heybingnum. Hún fann, að sér var lyft upp og nafn sitt hvíslað: „Vala, Vala, í guðs bænum gráttu ekki. Það getur einhver heyrt!“ „Úlli!“ Það var það eina, sem hún gat komið upp fyrir gráti. Hann hálfdró hana með sér upp í fylgsn- ið sitt, settist niður við hliðina á henni og reyndi að hugga hana. „Svona, svona. Þetta er nú búið og kemur ekki aftur,“ hvíslaði hann og lagði handlegginn utan um hana. Vala þurrkaði sér aftur og aftur um munninn. „Úlli, það var svo viðbjóðslegt, svo hræðilega við- bjóðslegt. Aldrei, aldrei skal ég kyssa karlmann, þó ég verði hundrað ára.“ „Var það svona slæmt,“ hvíslaði hann á móti. „En það var bara af því, að þú vildir það ekki.“ „Svo fór hann með höndina inn undir peysuna mína og káfaði á........“ „-----brjóstunum á þér,“ botnaði Úlli og hló dá- lítið. „Elskulega litla, hugrakka vinkonan mín, ertu svona viðkvæm . . . . “ Hann lagði hana hægt aftur á bak í heyið, án þess hún beitti nokkurri mótspyrnu. Hún fann, að hann lagðist þétt við hlið hennar, en hún fann ekki til ótta. „Ertu ekki hrædd við mig?“ spurði hann. „Nei.“ „Ekki einu sinni, þó ég reyndi að kyssa þig? “ „Ég veit það ekki.“ „Má ég reyna?“ Hann beið ekki eftir svari. Hún fann hvernig andlit hans nálgaðist hennar, þótt myrkrið væri svo svart, að hún sæi ekki neitt. Svo snertu varir hans hennar, hægt og mjúldega, struk- ust eftir andliti hennar fram og aftur, unz hún réð ekki lengur við sjálfa sig, vafði handleggjunum um háls hans eins fast og hún gat, og nú loks kyssti hann hana á munninn. „Er þetta svo voðalegt?“ hvíslaði hann. Hún svaraði engu, grúfði sig bara undir vanga hans og grét. Hann fylgdi henni fram að fjárhúsdyrunum. Enn heyrðust hlátrasköll í fjarska. Úlli andvarpaði ofur- lítið, en þegar tveir grannir handleggir vöfðust um háls hans og mjúkar varir kysstu hann stuttum, snöggum, feimnislegum kossi, þá fann hann, að hann hefði ekki viljað skipta við neinn þeirra, sem úti voru í þessum glaða leik. Máske ekki við neinn í heiminum. Vala hljóp í spretti heim. Hún vildi ekki hitta neinn strax. Henni fannst, að allir myndu sjá á sér það, sem skeð hafði. Bæði það ógeðslega og það yndislega. Framan við dyrnar hjá uppsátursmönn- unum nam hún staðar og lagði við hlustir. Þar inni var Jónatan á Kálfskinni að segja fanggæzlunni 68 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.