Heima er bezt - 01.02.1968, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.02.1968, Blaðsíða 27
ur að sinni, og að lokum þetta: Það þýðir ekkert fyr- ir ykkur að reyna að sleppa úr þessari gildru því að það er nóg grjót á hleranum hérna, aðrar útgöngu- leiðir er ekki hægt að finna. Þið eruð sem sé eins og kettir á skeri, ha, ha, og verið þið nú blessaðir og sæl- ir,“ sagði maðurinn og við heyrðum að hann gekk út úr hellinum. Þögn, svo sagði Halli: „Jæja, Skari, nú erum við komnir í þokkalega klípu. Hvað eigum við nú til bragðs að taka?“ „Það veit ég svei mér ekki. En skyldi maður þessi vera einn af smyglurunum?“ spurði ég. „Já það tel ég alveg öruggt,“ svaraði Halli en bætti svo við: „Hann hefur sennilega verið skilinn hér eftir til þess að gæta smyglvarningsins. Svo hefur hann sennilega séð þegar við komum hér að landi og fal- ið sig.“ „Já, það er mjög líklegt, en mér finnst það undar- legt að við komum ekki auga á neitt sem gat bent til þess að hann dveldist hérna því að ég tel mjög lík- legt, að hann hafi búið í Gullhellinum,“ sagði ég. „Allt bendir til þess að hann hafi ekki gert það. Já það er mjög líklegt að hann dveljist einhvers stað- ar hér í nágrenninu,“ sagði Halli. „Ekki get ég skilið hvar það er,“ sagði ég. „Ekki ég heldur, samt sem áður hlýtur hann að búa hérna einhvers staðar í nágrenninu eins og ég sagði áðan. En hvað eigum við til bragðs að taka, nú eru góð ráð dýr,“ sagði Halli. „Já það má með sanni segja. Hvað leggur þú til að við gerum?“ spurði ég. „Hvað legg ég til að við gerum? Það er nú það. Satt að segja stend ég algjörlega á gati. En blessaður maður, slökktu á vasaluktinni því að nú þurfum við að spara rafhlöðurnar. Það getur svo farið að við þurfum að dveljast hér í allan dag svo að ekki er gott að eyða þeim að þarflausu.“ Ég fór eftir því sem Halli sagði og slökkti á vasa- luktinni. Við þögðum nú um hríð og vorum báðir að brjóta heilann um það hvernig við gætum komið okkur úr þeirri klípu er við nú vorum í. Þegar smygl- ararnir kæmu um nóttina máttum við búast við því að fá ekki góðar viðtökur. Já, það væri gott fyrir okkur að komast hjá þeim viðtökum. En hvað áttum við að gera? Var nokkur önnur leið til frelsisins, en sú, sem nú var búið að loka? Allt í einu fékk ég hugmynd. „Heyrðu, Halli,“ sagði ég, „við rannsökum hell- inn hérna niðri ekki vandlega, var það nokkuð?“ „Nei, það gerðum við ekki,“ svaraði Halli nokkuð undrandi yfir spurningu minni. „Eigum við þá ekki að fara niður aftur og rann- saka hann nánar. Hver veit nema það liggi önnur leynigöng frá honum út undir bert loft. Oft hef ég, að minnsta kosti, lesið um það í ævintýrabókum að það liggi leynigöng inn í helli á tveimur stöðum. Hví gæti það ekki verið eins með þennan helli? “ spurði ég. „Það getur vel verið að því sé einnig þannig varið með þennan helli. Við skulum þá fara niður og rann- saka hann nánar,“ samþykkti Halli. Við biðum ekki boðanna, heldur lögðum þegar af stað niður göngin. Er við svo vorum komnir niður í hellinn fórum við að rannsaka hann gaumgæfilega. En allt kom fyrir ekki, við komum ekki auga á nein önnur leynigöng er frá honum lágu. Ég var að gefa upp alla von, þegar Halli sagði allt í einu: „Getur ekki verið að göng leynist bak við kassa- staflann?“ „Jú, það er alveg satt hjá þér, við verðum að at- huga það. En til þess að geta það verðum við að færa kassana til,“ sagði ég. Við hófumst nú handa við að færa kassana til. Var það mikið verk og erfitt en áhugi okkar var þess valdandi að því miðaði mjög vel áfram. Stöfluðum við kössunum á nýjum stað, en ekki stöfluðum við betur en það, að allt í einu, þegar staflinn var orðinn nokkuð hár, heyrðust skruðningar allmiklir. Staflinn var farinn um og brothljóð kváðu við. Svo varð allt hljótt, við bræður þögðum. Að lokum rauf ég þögn- ina og mælti: „Jæja, bróðir sæll, nú er meira áríðandi að við komumst héðan. Ég er hræddur um að smyglararnir verði ekki blíðir á manninn, þegar þeir koma hingað og sjá hvernig við höfum farið með varning þeirra.“ „Ég er einnig hræddur um það. Já, við verðum að komast héðan ef við eigum að halda lífi,“ sagði Halli. Það var ekki laust við að skjálfti væri í rödd hans. Við héldum nú verki okkar áfram eins og ekkert hefði í skorizt og unnum jafn rösklega sem áður. Allt í einu kallaði Halli: „Skari, komdu fljótt með vasaljósið. Ég held að ég sé búinn að finna það sem við leitum að.“ V Nú var ég ekki svifaseinn og var því nær sam- stundis kominn til Halla með vasaljósið á milli hand- Heima er bezt 63-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.