Heima er bezt - 01.02.1968, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.02.1968, Blaðsíða 22
Gretlisbœli. inu eða eftir áramót. Höfðu þeir einn hest saman undir farangur sinn, sem var aðallega feitmeti, kjöt og fatnað- ur og þar á meðal skinnldæði. En í stað þess að fara í verið, fóru þeir í hellinn í Þjófhellisrjóðri, slátruðu hestinum og settust þar að. Einhver áhöld munu þeir hafa tínt saman heima hjá sér áður en þeir lögðu upp, og ef til vill hafa þeir verið búnir að koma þeim í hell- inn löngu fyrr, og ef til vill fleiri nauðsynjum. Leið svo og beið og ekkert fréttist af piltum þessum og enginn vissi, hvað af þeim hafði orðið. Svo bar við, seint á engjaslætti, sumarið eftir hvarf mannanna, að stúlka frá Görðum var að smala kvíám, sem komnar voru út í hraun, út undir Eldborg. Sá hún þá mann í hrauninu, með vatnsfötur í höndunum, stefna suður í Borgarlæk, en svo nefnist lækur, sem rennur niður með hrauninu og í Kaldá skammt fyrir ofan Snorrastaði. Þegar þessi maður sér stúlkuna, sleppir hann fötunum og tekur á rás í áttina til hennar. Stulk- an varð dauðhrædd og tók til fótanna og flýði heim á leið, en maðurinn elti hana heim undir tún, og var þá rétt búinn að ná henni, en í því kom einhver út úr bæn- um, og er maðurinn sá það, sneri hann sem skjótast aftur. Fáum dögum síðar var stúlka frá Snorrastöðum að leita að kúm úti í hrauni. Hún fann kýrnar, en tók þá eftir, að kvíguvetrung vantaði. Farið var að skyggja, en samt reyndi stúlkan að svipast um í kring eftir kvíg- unni. Þóttist hún þá sjá tvo menn, er leiddu kvíguna á milli sín út í hraunið. Stúlkan fór í humáttina á eftir þeim, og sá til þeirra öðru hverju. Loks missti hún alveg sjónar á þeim og virtist helzt þeir hverfa í brunann, en hann er alls staðar mikið hærri en flata hraunið neðan hans og alófær yfirferðar fyrir stórgrip. Hún svipaðist þó um þar í kring, en fór þó varlega. Hún kom þá auga á ljóstýru ekki langt í burtu og stefndi á hana. Þótti henni þar betri vegur inn í brunann, en hún bjóst við. Er nær kom, sá hún, að tveir menn voru þar við slátur- störf. Þóttist hún þekkja, að þar væri kvígan, sem vant- aði frá kúnum, sem þeir voru að gera til. Annaðhvort hefur hún eitthvað látið til sín heyra, eða farið of nærri, því að mennirnir urðu hennar varir og ætluðu að grípa hana, en hún flýði út í myrkrið. Þeir eltu hana, og svo nærri lá, að þeir næðu henni, að hún gat aðeins smeygt sér ofan í hraunglufu, sem þeir svo stukku yfir. Eftir að þeir höfðu leitað hennar árangurslaust nokkra stund, sneru þeir aftur að sínum fyrri störfum. Þegar stúlkan varð þess vör, að þeir myndu hættir 58 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.