Heima er bezt - 01.02.1968, Page 10
Heimili Jóns og Aslaugar á Selfossi.
rækt embætti sitt af fúsleik og farsæld. Sanngjarn og
vægur í kröfum fyrir læknisaðgerðir sínar og ferðalög.
Vinsæll af alþýðu manna. Þá má geta þess, að Jón gaf
dýralæknanemum kost þess að gerast aðstoðarmenn á
yfirreiðum og við læknisaðgerðir í sínu umdæmi. Er slík
starfskynning og verkleg æfing nauðsynleg þeim, er
stunda bókfræði á þessu sviði. Léttir þeim námið og
eflir þá til námsárangurs. Fjöldi nemenda notuðu sér
þessi tækifæri. Voru þeir Jóni harla þakklátir fyrir.
Jón Pálsson er maður glaðlyndur og gamansamur,
léttur í máli og hressilegur. Félagslyndur og hefur kom-
ið nokkuð við sögu í þeim efnum. Hefur setið í hrepps-
nefnd bæði á Reyðarfirði og Selfossi. Einkum hefur
hann þó látið til sín taka á sínu sviði. Einn af stofn-
endum Dýralæknafélags íslands og formaður 15 ár.
Dýravinur og hestavinur. Hestaferðir og hestamennska
hafa verið líf Jóns og yndi. Hann hefur ætíð átt góð-
hesta og stundum gæðinga. Hefur stundað kynbætur
hrossa um skeið. Eiga þeir feðgar nú hestakost mikinn
og góðan. Jón var langa stund formaður hestamanna-
félagsins Sleipnis í Flóa. Átti frumkvæði að stofnun
Hrossaræktarsambands Suðurlands og stjórnaði því ár-
um saman. Þá tók hann og þátt í undirbúningi að stofn-
un Landssambands hestamannafélaga.
Síra Sigurður Einarsson skáld í Holti sendi Jóni Páls-
syni eitt sinn afmæliskveðju. Orkti fyrir munn Jóns
lyfseðil á þessa lund:
R.p.
Hestar, vín og hollir vinir,
hlátur glaður.
Einnar ástar, einnar konu
eiginmaður.
Framhald á blaðsíðu 55.
46 Heima er bezt