Heima er bezt - 01.04.1973, Síða 7
Gunnarshólma. Þetta hús var um árabil bezt búna sam-
komuhús í Rangárvallasýslu. Við byggingarfram-
kvæmdir bar Erlendur á Skíðbakka hita og þunga dags-
ins þótt hann hefði að sjálfsögðu fast að baki sér áhuga-
sama ungmannafélaga og blómlegan hóp kvenfélags-
kvenna. Erlendur hefur verið formaður sóknarnefndar
og sér um viðhald kirkjunnar að Krossi, sem er sveitinni
til sóma. Heldur skemur hefur hann gegnt formanns-
störfum í sjúkrasamlaginu og búnaðarfélagi hreppsins.
Gjaldkerastörfum fyrir jarðræktarsambandið hefur
hann gegnt í 26 ár. Hann varð oddviti sveitar sinnar
árið 1946 og hefur enginn gegnt lengur oddvitastarfi í
Austur-Landeyjum utan sú eftirminnilega kempa, hann
Sæmundur Ólafsson á Lágafelli, sem var hreppsnefnd-
aroddviti í fjörtíu ár og formaður við Landeyjasand í
áraraðir með farsæld, svo og lengi atkvæðamikill sýslu-
nefndarmaður.
Erlendur á Skíðbakka var kosinn í sýslunefnd 1959
og svona mætti áfram telja um embættin hans Erlendar
í heimasveitinni. En trúnaðarstörf hefur honum líka ver-
ið falið utan sinnar sveitar. Hann er í Fasteignamats-
nefnd Rangárvallasýslu og fulltrúi í Stéttarsambandi
bænda. Þá var og Erlendur fyrir mörgum árum kosinn
af sýslunefnd Rangárvallasýslu til að vinna í undirbún-
ingsnefnd hins fyrirhugaða Sjúkrahúss Suðurlands á
Selfossi, sem nú er hafin bygging á.
Eigi þarf að spyrja’, að hann Erlendur er gamall og
nýr ungmennafélagi í „Dagsbrún“ og fyrir mörgum
árum var hann gerður þar að heiðursfélaga. Hann
keppti í íþróttum fyrir ungmennafélagið sitt á yngri
árum og hljóp alla af sér. Áfengi og tóbak hefur hann
aldrei látið inn fyrir sínar varir.
Erlendur Árnason er fæddur að Skíðbakka í Austur-
Landeyjum 24. október 1906. Foreldrar hans voru Sig-
ríður Ólafsdóttir ættuð úr Austur-Eyjafjallahreppi og
Árni Erlendsson, sem var bóndi að Skíðbakka, en Er-
lendur tók við búsforráðum af forcldrum sínum árið
1934, en það ár giftist hann Guðbjörgu Jónasdóttur frá
Hólmahjáleigu. Þau hjónin eiga þrjú börn öll uppkom-
in og gift. Búa tvö þeirra heima á Skíðbakka. Árni
hreppstjóri, sem reist hefur sér myndarlegt nýbýli.
Hann er giftur Laufeyju Hauksdóttur, Sigríður hús-
freyja á Skíðbakka, sem er gift Albert Halldórssyni og
Ragna búsett í Þorlákshöfn gift Sigurði Helgasyni frá
Seljalandsseli. Allt er þetta hið mesta manndómsfólk.
Nú er hinn gamli óræktarsvipur löngu afmáður af
Landeyjum. Skurðgröfur, jarðýtur, herfi og plógar hafa
rist og mulið hina frjóu mold sveitarinnar og við aug-
um blasa allstaðar eggslétt velræktuð tún hins nýja
tíma. Rúmgóð, mikil og góð hús fyrir menn og bú-
stofn. Stórar hlöður og stritandi vélar. Hin votlenda
sveit var farsællega leyst úr álagahamnum undir stjórn
og forustu Erlendar Árnasonar, oddvita á Skíðbakka,
seqi enn leggur heilshugar hönd á plóginn í sveitinni
sinni, þar sem safarík túngrös nærast nú í sömu mold
og mýrarsóley og hrossanál áttu áður rætur.
Aðeins litið upp frá önn dagsins.
Unnið við að draga vatnsleiðslurnar niður. Það verk annaðist
Reynir Ragnarsson frá Höfðabrekku. Erlendur oddviti fylgist
með pegar rörin eru dregin yfir vatnsfarveg. Seljalandsfoss i
baksýn. Sýn til fjalladýrðar Rangárpings er rómuð og óviða
er hún fegurri, en pegar horft er til hennar úr Landeyjum.
Krosskirkja i Austur-Landeyjum.
Heima er bezt 115