Heima er bezt - 01.04.1973, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.04.1973, Blaðsíða 29
Karlmennirnir koma inn að kveldverkunum loknum. Mangi þæfir sokkinn sinn og síðan smjör í strokknum. Hallgerður hleifa sker og harðfisk frammi lemur, eldabuska aska ber, og Anna fer og kemur. Börnin sitja hæg og hljóð og hlýða rímna-slögum, — ævintýrin eru góð í íslendinga sögum. Fléttuð tögl, amboð ydd, aðrir kemba og spinna, eyrað heyrir, augað sér, en iðnar hendur vinna. Kveldvakan er kynja löng og kæti mörg á seiði. Ekki er gatan yfrið löng á ævintýraheiði. . . . Raular blær rjáfrið við raunabögur þýðar. Þenur gandinn tungl um tind og tandurbjartar hlíðar. Svo er það ljóðið, sem ég gaf upp sem Nú blika norð- urljós bleikrauð bönd. Hér er líklega átt við Kvöldljóð Guðmundar Guðmundssonar (skólaskálds): Nú flétta norðurljós bleikrauð bönd. Það voru tveir kórmenn, sem leiddu mig á sporið, þeir Guðmundur Gunnarsson héð- an frá Akureyri, og Bjarni Bjarnason frá Brekkubæ í Hornafirði. Þeim þakka ég, sem og henni Önnu Vigfús- dóttur frá Brúnum, Hellu, Rang. En þar með er sagan ekki búin. Guðmundur og Bjarni tala um fallegt lag Björgvins Guðmundssonar við þetta ljóð. Ég tel afar ólíklegt, að það hafi verið lagið, sem Snorri Sigfússon lét syngja á Flateyri forðum daga, og hún Hjördís Jóns- dóttir frá Veðrará telur fullorðna þar vestra muna eftir. Þegar ég ritaði Snorra um þetta á sínum tíma, mundi hann ekki eftir þessu, en kannski rifjast þetta upp fyrir honum þegar hann sér ljóðið? En ég verð að segja það, að minnsstæður hefur sá söngur verið, sem menn muna svona vel, — eftir rúmlega 40 ár. Kvöldljóð Guðmundar Guðmundssonar birtist hér eins og það er prentað í ljóðasafni hans (I) frá 1934. Þetta ljóð minnir mig á hið dýrlega ljóð Matthíasar Til móður minnar: Því skyldi ég yrkja um önnur fljóð/ en ekkert um þig, ó, móðir góð/upp þú minn hjartans óður o. s. frv., en ég hef saknað þess, að ekkert áheyrilegt lag skuli vera til við það. Þó er sem mig minni, að einhvern- tíma hafi ég heyrt það sungið. Ef lagasmiðir skyldu lesa þessar línur mínar, bið ég þá að hafa þetta í huga. KVÖLDLJÓÐ Nú flétta norðurljós bleikrauð bönd að barmi nætur, — dagur hnígur. Og máninn yzt við Ránar rönd með röðulblæ á himin stígur. Og stjarnan brosir stillt og hljóð og stefnir móti ljóssins syni, svo mild og blíð sem móðir góð þess manns, er á sér fáa vini. En héðan yfir óraveg í anda vil eg göngu þreyta. Að knjánum þínum ætla eg, ó, elsku mamma, í kvöld að leita! því stjaman minning bjarta ber í barm minn gegnum rökkurskugga, sem kveðja væri’ hún kær frá þér og kæmi mig að gleðja’ og hugga. Eg man er rökkrið fyllti frið á fyrri dögum lága bæinn, á kistli sat eg kné þín við, er kvölda tók og leið á daginn, og fögur þá mér lastu ljóð unz ljósið birtist fram í göngum, og sögur þá mér sagðir fróð,— eg sakna þess og man það löngum. Og seinna’, er böl mig firrti frið á fyrstu lífsins skólaárum, eg kom og settist kné þín við og kjöltu þína vætti tárum.--- Nú langar mig að leita þín, er ljósar vonir frið mér búa; eg veit, þá góða mamma mín, ei mundir við mér baki snúa! En nú er langt að leita þín, þig lykja sjónum dauðans tjöldin. En þegar stjarnan skærast skín og skjálfa stráin htlu á kvöldin, eg dropa finn úr Ijóssins laug, frá lindum himins á mig falla, og sælutár mér segja þaug, að sértu þá mér fjarri varla! Þegar hér er komið rabbi, verð ég að geta ábending- anna frá honum Óskari Hlíðberg varðandi Ijóðið, sem ég kallaði Ég mætti þér eitt kvöld. Ég birti ljóðið eftir minni og ég hef tekið skakkan pól í hæðina, en leiðar- vísun Óskars ér réttari, auk þess sem hann nefnir nafn höfundar, Jóhanns Jónssonar frá Sjávarborg, (fyrir austan). Við þessar upplýsingar Óskars Hlíðbergs má svo bæta, að Ragna Gunnarsdóttir, Kópavogi, bætir enn einni vísunni við, og verða þær þá alls þrjár. Nú birti ég þetta ljóð aftur, en áður flyt ég Rögnu Gunnars- dóttur og Óskari Hlíðberg þakkir. Frh. á bls. 142 Heima er bezt 137

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.