Heima er bezt - 01.04.1973, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.04.1973, Blaðsíða 31
um. Þú hefir alla tíð verið mín dýrmætasta gjöf lífsins, sonur minn, og þín örlög skipta mig eins miklu og mitt eigið líf.... Rödd Bergþóru brestur í grátklökkva. Hreinn grípur um hönd móður 'sinnar og þrýstir hana og segir lágt en hlýlega: — Taktu þér það ekki svona nærri, mamma mín, þótt ég hafi stöku sinnum glatt mig í vinahópi. Það er engin alvarleg hætta á ferðum, því máttu trúa. — Jæja, vinur minn. Þetta horfir þá svona við í þínum augum, að engin alvarleg hætta sé á ferðum, en fyrir mínum augum er það hið gagnstæða. Ég álít að stór og mjög alvarleg hætta vofi yfir þér, eins og nú horfir við. Það er alvarlegt ógæfuspor sem hver og einn stígur við það að gefa sig að áfengisneyzlu, það sanna örlög alltof margra á átakanlegan hátt. Hugsaðu um konuna þína og litla drenginn ykkar, góði minn, þótt þú ef til vill gleymir okkur foreldrum þínum á þessum vettvangi. Hreinn starir þögull fram fyrir sig um stund, og svip- ur hans er óræður. En orð ástkærrar móður snerta hann djúpt. Hann þrýstir hönd móður sinnar enn þéttara en áður og segir að lokum þýðri röddu og festulegri: — Ég skal hætta allri áfengisneyzlu, mamma mín, fyrst þú tekur þér þetta svo nærri. Og auðvitað er það líka sjálfum mér — og okkur öllum — fyrir beztu. — Guð blessi þig, elslcu drengurinn minn, segir Berg- þóra og kyssir heitt á hönd sonar síns, og nokkur fegins- tár hennar falla ofan á hönd hans. — Betri og dýrmætrai gjöf getur þú ekki gefið mér en þá að gera heimilið þitt aftur bjart og hlýtt af sannri hamingju, eins og það áður var. Guð gefi þér náð til að svo megi verða. Og í svip á Hreinn sjálfur ekki aðra ósk heitari, en að þetta megi rætast. Bergþóra rís á fætur. Hún hefir lokið erindi sínu á heimili sonar síns og tengdadóttur. Mæðginin kveðjast með hlýjum innileik, og Bergþóra heldur heimleiðis glaðari í huga og Guði þakklátari en um miðnættið síðastliðna. Hreinn hvílir í kyrrð um stund í rúmi sínu, eftir að móðir hans er farin á brott, og hugleiðir framkomu sína við Auði síðastliðið kvöld, og samvizkubit hans verður sárara, því meir sem hann rifjar þetta upp fyrir sér: að hugsa sér að hafa lagt hendur á hana og hrint henni frá sér! Vonandi að hann hafi ekki meitt hana eða slasað. Skyldi Auður geta fyrirgefið honum þetta? Hann velt- ir þessu alllengi fyrir sér. Þetta var í rauninni Ijót saga frá upphafi, — og sennilega ljótust í gærkvöld. Sam- vizkubit hans er sárt. En nú fær hann ekki lengra næði til hugleiðinga. Auður kemur inn með morgunverð handa honum. — Góðan daginn, Hreinn minn, segir hún með sínum venjulega hlýleika, eins og ekkert hafi í skorizt, og setur bakkann á náttborðið hjá honum. — Gerðu svo vel, hérna er morgunverður handa þér. — Þakka þér fyrir, Auður, svarar hann lágt, en snertir ekki á morgunverðinum. Hann horfir dapurlega á konu sína nokkur andartök og segir svo: — Ertu ekki reið við mig, Auður? Auður lítur hlýtt á mann sinn: — Nei, Hreinn, ég er ekkert reið við þig. — Þú hlýtur að hafa reiðzt við mig í gærkvöld, eins og ég kom þá fram við þig og hagaði mér ósæmilega. — Já, þú hagaðir þér óneitanlega á annan hátt heldur en ég átti von á. En mér finnst að það hafi ekki verið þú sjálfur, heldur vondur andi, sem þú hafir drukkið í þig með áfenginu sem þú hefir neytt, meðan þú varst að heiman. Og þér hef ég fyrirgefið, en við þann illa anda sem ég aldrei frið. — Sá illi andi skal heldur aldrei framar fá að stjórna framkomu minni gagnvart þér, Auður, því heiti ég þér nú. — Sagðir þú mömmu frá þessu? — Nei, Hreinn, það geri ég aldrei. — En sagði hún þér frá samtali okkar mæðginanna í morgun? \ — Já, hún gerði það með fáum orðum, um leið og hún kvaddi mig. Henni fannst það skipta okkur öll jafnmiklu. — Ég hef alltaf fundið, að ég átti góða eiginkonu og móður, en aldrei betur en nú. Komdu til mín, Auður, og gefðu mér fyrirgefningu þína í einu hlýju handtaki, um meira bið ég ekki nú. Auður færir sig fast að rúmi manns síns og tekur hlýtt í útrétta hönd hans, og augu þeirra mætast um leið. Og í djúpi augna hans sér hún sinn sama góða Hrein eins og áður, hann býr þar enn innra með honum samur og óbreyttur að bald áfengisgrímunnar, sem hann hefir nú heitið að varpa frá sér fyrir fullt og allt. Og af öllu hjarta fyrirgefur Auður Hreini allt. V. SKAMMVIN SKÝJAROF Kaldur vetur er á enda, og vorið fer eldi lífs um lönd og höf. I ríki náttúrunnar hefir ljósið sigrað alla skugga og situr nú eitt að völdum með mætti og mikilli dýrð. Á heimili þeirra Hreins og Auðar hefir einnig vorið og ljós hamingjunnar sigrað hina dimmu skugga ógæfunn- ar sem lagzt höfðu yfir það, og nú er þar sól og vor. Hreinn er með öllu hættur að sækja spilaboð kunn- ingjanna og eyðir nú frístundum sínum með konu sinni og syni. Hann býður þeim oft út í ökuferðir út í ríki náttúrunnar, eða fer með þau í heimsókn til foreldra sinna og veitir þeim þannig mikla gleði. Auður er óumræðilega glöð yfir breytingu þeirri sem orðin er á manni hennar, og þeim mikla sigri sem hann hefir unnið á sjálfum sér, og hún horfir björtum, von- glöðum augum til framtíðarinnar í ást og trúnaðar- trausti til manns síns, sem hún hefir heitið að bregðast aldrei. En sjálfur er Hreinn þó glaðastur af þeim öllum. Og sumarið líður. Hetma er bezt 139

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.