Heima er bezt - 01.04.1973, Page 20

Heima er bezt - 01.04.1973, Page 20
heilsaði henni tók ég eftir óvenju fögrum gullhring á hægri hendi. Þegar við höfðum beðizt gistingar fór hún með okkur inn í stóra stofu. Þar spurði hún okkur nokk- urra spurninga, hvaðan við kæmum og hvert við ætluð- um og fleira. Því miður sagði hún að bóndi sinn væri ekki heima og kæmi ekki heim fyrr en annað kvöld. Mér skildist að hann væri í einhverjum embættiserind- um og má vel vera, að hann hafi verið prestur eða lækn- ir. Ég man vel að hún benti okkur á mynd af honum uppi á vegg í stofunni. Það leyndi sér ekki á tilsvörum hennar, að hún var víða heima. Og þegar hún hvarf úr stofunni, rak forvitnin mig á fætur til að skoða myndina betur af manni hennar, sem virtist mjög glæsilegur, enda virtist hún hreykin af honum. Mynd af henni, sem var þar einnig, þótti mér þó enn glæsilegri, enda tekin af henni í blóma lífs síns. 3. KAFLI Næsta morgun var veður kyrrt og rofaði til sólar. Þegar á daginn leið færðist þó norðan kælan fljótt í aukana. Við fórum tímanlega af stað, því nú var ætlun- in að ná í Fornahvamm, næsta bæ við Holtavörðuheiði, áður en langt væri liðið á ltvöldið. Flestir sem til þekktu, töldu að heiðin mundi vera orðin þungfær. Svo var líka ætlunin þennan dag að ganga hægt og jafnvel fá sér hressingu einhvers staðar á leiðinni. Mikið var ég hrifinn af ánni og umhverfi hennar upp Norðurárdalinn. Hámarkinu náði þó hrifningin við Laxfossa, eftir leiðbeiningum kunnugra. Uppi á lágri en brattri skógarhlíð, vestan við ána, gengum við fram á lítinn timburskúr, sem ekki leyndi sér að var veiði- mannahús. Við dvöldum þar talsverðan tíma. Áin blá- tæra, fossarnir hennar og strengir, sem blöstu við okkur silfurhvítir, minnti mig svo á margt er ég unni. Svo var það lygnan næst okkur, og einnig norðan við fossana, eyrin á móti og þó mest brekkan, skógivaxna og skjól- ríka, þar sem við sátum og síðar yrði þakin blómum. Þetta umhverfi minnti mig svo á vissa staði heima, að aldrei, hvorki fyrr né síðar, hef ég fundið á þessu landi blett, sem mér hefur virzt þá stundina líkjast sveitinni minni eins áþreifanlega. En fjallahringinn sá ég ekki fyr- ir skýjahettum. Þó virtist móta fyrir fjallsrót í norðri, sem dróst ört saman og í hug mínum líktist það Þverár- hyrnu, sem er yzta fjallið austan við Öxarfjörð. Ég var bókstaflega heillaður af umhverfinu þarna og það leyndi sér ekld, að Mundi bróðir var það líka. Hann var svo hljóður og horfði á fossana. Það var óumdeilanlega áin, er seiddi fram í hug okkar þessar áhrifaríku myndir. Þessi tæra á var líka leikvöllur laxa og silunga. í hugan- um sá ég þá í torfum. Það blánaði fyrir þeim. Þeir stukku alveg upp úr vatninu. Og sólin skein á silfraða, fagurskapaða og ýturvaxna kroppa, sem stungu sér aftur og slógu til sporðinum með slíku afli að gusurnar gengu hátt í loft. Þær mynduðu eitt augnablik óteljandi sæg af skínandi perlum. Ég kipptist til. Rétt við nefið á mér voru líka vitni að öllu þessu þótt þögul væru. Inn um glugga, sem fjalir voru negldar fyrir á veiðihúsinu, sem var rammlega læst, sá ég lítinn pramma, stengur, króka, borð og bekki og ýmislegt, sem ég áttaði mig ekki á. Mundi bróðir sagði mér, að hér héldu sennilega til ensk- ir stangveiðimenn einhvern tíma á sumrum og þeir veiddu laxana á stöng. Þeim þætti það betri skemmtun en flest annað. Þeir væru víst ákaflega hrifnir af íslenzku laxánum. Þegar ég heyrði minnzt á Englendinga í sam- bandi við laxa, var eins og svift væri tjaldi frá spennandi en þó hrollvekjandi sjónarsviði, sem hafði birzt mér um veturinn. Það hafði einhver skólabróðir minn lánað mér mjög dularfulla sögu um óupplýsta atburði, sem höfðu víst átt sér stað hér á íslandi. Ég hafði þotið yfir söguna eitt sunnudagskvöld, þótt ég væri ekki vanur að láta slíkan lestur taka tíma frá námsbókunum. Og það man ég að um nóttina dreymdi mig bölvanlega. En sagan var um enskan stangveiðimann, sem var myrtur, annað hvort af þjóni sínum, sem hann hafði með sér hingað til lands, eða af íslendingi, — unnusta stúlku, sem þessi enski veiðimaður hafði talsvert reynt að fá til lags við sig og beitt þar auðvitað brögðum, enda átti hún heima skammt frá veiðistaðnum og sá enski hafði nóga pen- ingana til að gefa henni. Frásögnin var öll svo dularfull og spennandi, að ég komst aldrei til botns í því, hvor hafði verið morðinginn, Islendingurinn eða hinn enski þjónn, sem fullkomlega var látið skína í, að hefði ástæðu til að hefna sín á honum fyrir svipaðar sakir. Einhvern veginn festist það í grun mínum, að sá enski hefði átt rítinginn, sem þessi yfirmaður hans var stunginn með og fannst hjá líkinu, og þar með hefnt fyrir glæp, sem þessi ríki syndaselur hafði framið á unnustu hans heima í Englandi. Mér skildist að hann hefði ekki fengið tæki- færi til þess fyrr en hér úti á íslandi. Þó var látið skína í það að sá íslenzki hefði — af klókindum — notað hníf enska þjónsins, til þess að grunur félli síður á hann, þar sem hinn enski þjónn hafði horfið alveg sporlaust eftir að morðið var framið. Allt þetta ruddist nú fram í hugann og dró óhugnan- lega bliku yfir þennan yndisfagra stað. Mér fannst lýs- ingin af ánni og umhverfi hennar í sögunni svo undar- lega lík þessum stað, og hér var einnig veiðihúsið svipað því og þar var greint og þar sem líkið fannst í blóði sínu. En — hér fannst mér einhver rödd segja: „Allt saman uppspuni. Tóm bölvuð vitleysa. Aðeins æsandi glæpasaga til að drepa tímann fyrir þeim, sem ekkert vita hvað þeir eiga við hann að gjöra. Og — svo auð- vitað að svala óljósri, en stundum ofsafenginni þrá.“ Mér fannst ég kannast við þessa rödd, en ég vissi þó ekkert hvaðan hún kom. Það eitt er víst, að það var e k k i árniðurinn, því það var hann sem vakti mig frá þessum myrku hugsunum. Og ég heyrði hann segja svo skýrt: „Hlustaðu heldur á mig. Nú er vorið að koma, vorið, sem vakið getur nýtt líf þar sem kuldinn og nepj- an hafa ráðið ríkjum.“ „Þetta er nú orðin blessuð hvíld,“ segir Mundi bróðir, 128 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.