Heima er bezt - 01.04.1973, Side 36

Heima er bezt - 01.04.1973, Side 36
17. John Silver, sem einnig var með í bátnum, stóð við hlið stýri- mannsins frá upphafi, og leiðbeindi bátnum af slíkri nákvæmni, að augljóst var, að hann nauðþekkti staðinn. Þar sem akkeris- staðurinn var merktur á kortið, létum við akkerið falla. Eyjan, skógivaxin með mörgum lækjum, var annars ómerkt eyðiey. — Þegar hásetarnir voru aftur kontnir á skipsfjöl, söfnuðust þeir í smáhópa á dekkinu, og sýnilegt var, að eitthvað stóð til. Á leynilegum fundi sagði Smollet skipstjóri: „Ef ég læt þetta óátalið, grunar þá margt, og ef ég fer að gefa fyrirskipanir, brýzt strax út uppreisn. Það er aðeins um eitt að velja, þeir verða að fá landgönguleyfi". — Hann sneri máli sínu til skipverja: „Menn,“ sagði liann, „þið hafið þrælað mikið og þess vegna fáið þið land- gönguleyfi. Róið í land. Ég hleypi af fallbyssuskoti hálfri stundu fyrir sólarlag, og þá komið þið aftur um borð.“ — Landgangan var fljótlega ákveðin. Sex menn voru kyrrir á skipinu, hinir þrettán, með Silver í fararbroddi, bjuggust til að ýta frá skipinu. 18. Allt í einu skaut upp í koll minn þeirri léttúðarfullu hug- mynd, að ég ætti að fara með. Ég stökk niður í minnsta bátinn á sama augnabliki og hann ýtti frá, en sá um leið, að Silver var það mjög á móti skapi, að ég yrði með. Lífbátarnir reru kapp- róður í land, og okkar bátur var léttastur og kom því fyrstur að landi. Um leið og báturinn kenndi grunns, stökk ég á fætur, greip í grein og sveiflaði mér upp á þurrt. „Jim, Jim,“ heyrði ég að Silver hrópaði frá aftasta bátnum. Ég lét sem ég heyrði það ekki, og hljóp eins og fætur toguðu inn í skógarþykknið. Svo hægði ég á ferðinni og tók mér stutta hvíld. Og þegar allt í einu kom hreyfing á vatns- og vaðfuglana á nærliggjandi feni, skreið cg varlega í skjól, því að ég þóttist vita, að einhverjir af land- göngumönnum stefndu í átt til mín. Alveg rétt, nú heyrðust greinilega raddir, og ég skreið hljóðlaust nær.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.