Heima er bezt - 01.12.1975, Qupperneq 17
KETILL S. GUÐJÓNSSON, FINNASTÖÐUM:
Feré úr Bændaskólanum á
Hvanneyri vorié 1921
Ab afloicnu prÓfi frá Bændaskólanum á Hvann-
/\ eyri, vorið 1921, ákváðu allmargir skólasvein-
/ ar, bæði úr eldri og yngri deild, að fara gang-
andi frá Hvanneyri, norður í land, til sinna
heimahéraða. Að þetta varð að ráði, mun að einhverju
hafa valdið sú þrá að fara um og sjá áður ókunn héruð
og kynnast landinu og íbúum þess. Að hinu leytinu
voru skipaferðir mjög strjálar á þeim árum og munu
ekki hafa hentað okkur, enda vildum við ekki bíða
syðra, eftir að námi lauk.
Þátttakendur í þessu ferðalagi voru eftirtaldir nem-
endur:
Úr eldri deild skólans:
1. Jón Jónsson Bjarnastöðum Bárðardal S. Þing.
2. Tryggvi Jónsson Klúkum Hrafnagilshr. Eyjaf.
3. Þórir Guðjónsson Eyvindarst. Saurb.hr. Eyjaf.
4. Ketill S. Guðjónsson s. st.
5. Benedikt Grímsson Kirkjubóli Steingr.f. Strandas.
6. Skeggi Samúelsson Miðdalsgröf — —
7. Ásgeir Jónsson Tröllatungu — —
Úr yngri deild skólans:
1. Egill Jónasson Hraunkoti Aðaldal S. Þing.
2. Jónas Sigurgeirsson Helluvaði Mývatnssv. S.Þing.
3. Bencdikt Björnsson, Ærlækjarseii Axarf. N. Þing.
4. Björn Stefánsson Ólafsgerði Kelduhvcrfi N.Þing.
5. Ingólfur Pálsson Uppsölum Öngulsstaðahr. Eyjaf.
» 6. Snæbjörn Þorleifsson Grýtu — —
7. Brynjólfur Danívalsson Litla-Vatnsskarði Hún.
8. Sigurjón Danívalsson Sjávarborg Skagafjarðars.
9. Hjálmar Halldórsson Tindum Steingr.f. Strandas.
10. Jón Sæmundsson Fitjum — —
11. Alatthías Matthíasson Miðgörðum Grímsey Eyf.
Við lögðum af stað frá Hvanneyri, laust cftir hádegi
mánudaginn þ. 2. maí, eftir að hafa kvatt skólastjóra,
aðra kennara okkar og heimilisfólk. Þarna kvöddum
við einnig marga, sem verið höfðu skólafélagar okkar
í lengri eða skemmri tíma. Mér býður í grun að nokk-
urs klökkva hafi gætt í þcim kveðjum, því óneitanlcga
höfðu tengst vináttubönd á okkar skólavistardögum.
Það má líka hafa í huga þau sannindi að æskumaðurinn
er fljótur til áhrifa, og viðkvæmur á kveðjustund.
Eftir að þessum kveðjum lauk, fórum við, sem leið
lá að ferjustaðnum á Hvítá við Ferjukot og fengum
okkur flutta yfir ána. Ekki er að orðlengja það, að við
gengum rösklega upp hjá Svignaskarði og áfram upp í
Norðurárdal. Fengum við gistingu á þremur heimil-
um í dalnum: Hraunsnefi, Brekku og Hvassafelli. Átt-
um við þar ágæta nótt og lögðum af stað að morgni
endurnærðir og hressir til að mæta því ókomna. Við
komum að Hvammi og fengum okkur þar einhverja
hressingu. Þar bjuggu þá, og lengi síðan, myndarhjón-
in Sigurlaug Guðmundsdóttir frá Lundum og Sverrir
Gíslason prests að Stafholti. Sverrir var síðar, sem
kunnugt er, formaður Stéttarsambands bænda í nær tvo
áratugi. Við fórum næst fram hjá Sveinatungu. Þar bjó
fyrir og eftir síðustu aldamót stórbóndinn Jóhann Eyj-
ólfsson. Byggði hann á jörð sinni eitt fyrsta steinhús,
sem byggt var á sveitabýli á íslandi.
Við komum að Fornahvammi um kl. 6 síðdegis og
var þá um það að velja að leggja á Holtavörðuheiði
undir nóttina eða setjast að þar sem við vorum komnir.
Þá var í Fornahvammi vinnumaður eða bústjóri Gunn-
ar Guðjónsson frá Gestsstöðum í Sanddal. Hafði hann
verið með okkur í skóla hluta úr vetri 1919—20. Varð
hann, að mig minnir, að hætta í skólanum vegna veik-
inda á heimili foreldra hans. Tjáði hann okkur að lít-
ið væri til matarkyns á heimilinu, þó myndum við geta
fengið saltfisk til kvöldmatar. Við ákváðum að sctjast
að. Þá var farið að sjóða fiskinn og tók það ærinn tíma.
Ekki höfðum við allir matast fyr en komið var fast að
miðnætti, enda komust ekki nema sex að í einu vegna
skorts á leirtaui. Við fórum ekki úr fötum um nóttma,
en lágum 2 og 3 í hverju rúmi og margir á gólfinu.
Lítið varð um svefn og lögðum við af stað kl. 6 að
morgni, eftir að hafa drukkið svart kaffi án brauðs.
Næturgreiðinn kostaði kr. 6,00 fyrir manninn og var
það það hæsta, sem við urðum að greiða fyrir gistingu
alla leiðina norður í land. Aðeins á hótelinu á Sauðár-
króki greiddum við jafnhátt gjald. Þess skal getið að
einn okkar félaga, Benedikt Björnsson frá Ærlækjarseli
Axarfirði hafði veikst daginn er við vorum á leið til
Fornahvamms. Elnaði honum sóttin um nóttina og
Heima er bezt 415