Heima er bezt - 01.12.1975, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.12.1975, Blaðsíða 19
Að morgni lögðum við land undir fót, út dalinn að austan, fyrir fjallsöxlina, sem skilur Vatnsdal og Svína- dal. Á Orrastöðum á Reykjabraut fengum við okkur kaffi og brauð. Ætlunin var sú, að fara yfir Biöndu á Holtastaðaferju, síðan fram Langadalinn og yfir Vatns- skarð til Skagafjarðar. Þetta fór þó á allt annan veg eins og hér greinir. Við héldum frá Orrastöðum aust- ur á Ásana og þar að bæ, sem mig minnir að héti Hamrakot. Spurðum við þar hvort nokkuð myndi því til fyrirstöðu að komast yfir Blöndu hjá Holtastöðum. Var okkur tjáð að svo mikið ísrek væri í ánni, að óferj- andi væri yfir hana. Þessar fréttir urðum við að láta okkur lynda, þó þær breyttu ferðaáætluninni allveru- lega. Ekki var nú annar kostur fyrir hendi, en taka stefnuna norður alla Ása og út á Blöndubrú rétt ofan við Blönduós. Laxá urðum við að vaða, og var hún í mitt læri á okkur flestum, en Alatthías, sem var okkar lægstur í lofti, var borinn yfir ána, svo hann blotnaði ekki alveg upp í klof. Er við fórum yfir brúna á Blöndu, gátum við ekki séð þess nein merki að ísrek væri í ánni, varð það okkur nokkurt umhugsunarefni. Við skiptum okkur niður á þrjá bæi norður og austur af Blöndu, til gistingar, Enni, Vatnahverfi og Síðu. Við Þórir heit- inn bróðir og skagfirsku bræðurnir, Brynjólfur og Sig- urjón fórum að Vatnahverfi. Svo var áliðið kvölds að fólkið á bænum var sest að. Við urðum því að vekja upp. Fyrst börðum við að dyrum, hin venjulegu þrjú högg, sem tíðkuðust í sveitum, á þeim tíma. Þegar það bar engan árangur, varð okkur Ijóst að það væri mjög óviðeigandi að berja að dyrum eftir dagsetur. Annara úrræða yrði að leita af árangur ætti að nást. Við geng- um nú austur fyrir bæinn. þar sem að fjallinu vissi, og sáum brátt að þar mundi baðstofan vera. Fórum við nú á glugga og kölluðum inn og var svarað á móti. Aft- ur gengum við til bæjardyra og eftir alllanga stund kom út maður á nærklæðum einum. Við báðumst gist- ingar og kváðumst vera aðþrengdir ferðamenn, langt að komnir. Fór sá ldæðiitli aftur inn og kom með þær fréttir til baka að okkur væri heimil gisting. Urðum við allshugar fegnir og fylgdum þessum kunningja okk- ar inn löng göng og komum inn í stóra baðstofu með rúmum tii beggja hliða, og sýndist okkur vera fólk í hverju rúmi. Okkur var færður ágætur matur og gerð- um við honum verðug skil. Að máltíð lokinni kom til okkar öldruð kona og sagði að tveir okkar skyldu fvlgja sér fram. Við Þórir vorum fljótir að bregða við og fylgja konunni fram göngin og inn í stofu suður úr bæjardyrunum. Vísaði hún okkur til sængur í stórri lokrekkju, með fyrsta flokks sængurbúnaði. Sváfum við vel um nóttina og er það í eina skipti, sem ég hefi sofið í slíkri rekkju. Um morguninn fengum við hinn besta mat og fórum þaðan þakklátir í huga til þessa ágæta fólks, sem hafði reynst okkur eins og best varð á kosið. Þess má geta að næturgreiðinn kostaði aðeins kr. 3,50 á mann og var hann hvergi jafnlágur á öllu fcrðalaginu, þar sem á annað borð var tckið gjald fyrir þann greiða. Við komum saman að Síðu um morguninn, og var þá farið að ræða um hvaða leið við skyldum fara áleiðis til Skagafjarðar. Ekki þótti okkur fýsilcgt að leggja leið okkar fram allan Langadal og yfir Vatnsskarð. Önnur leið var að fara beint austur yfir fjöllin og niður á Sauðárkrók. Það sem helst mælti á móti því að fara þá leið, var að enginn okkar hafði hugmynd um hvar ætti að fara, aðeins óljósar umsagnir annara, sem reyndu að segja okkur til vegar. Þó varð það að ráði að leggja á fjöllin. Réði það miklu að veðrið var ágætt og sýndist lofa áframhaldandi góðviðri. Við hófum því ferðina með því að fara yfir hálsinn út og upp af bænum Síðu og komum nyrst í Laxárdal- inn, sem tilheyrir Húnavatnssýslu. Þar komum við að bænum Balaskarði, sem þeir munu kannast við, sem lesið hafa æviminningar Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði. Var sú bók nokkuð umtöluð á sínum tíma. Við stönsuðum þar um stund og fengum okkur hress- ingu áður en lagt skyldi á aðalfjallgarðinn. Við fengum ágætt færi, rifahjarn með köflum og sóttist okkur því ferðin vel. Síðla dags komum við að bænum Kálfárdal, sem er þarna inn milli fjallanna. Fengum við þar kaffi og héldum síðan ótrauðir áfram niður í Gönguskörðin og höfnuðum á Sauðárkróki um kvöldið. Þar skildu Skagfirðingarnir, sem fyrr eru nefndir, við okkur og óskuðu hvorir öðrum heilla og þökkuðu ágæta við- kynningu undanfarin samverutíma. Nú vorum við eftir sem áttum samleið til Akureyrar. Fengum við gistingu á Hótel Tindastól og kostaði næturgreiðinn kr. 6,00 á mann. Vorið 1920 hafði Páll Zóphoníasson orðið skólastjóri bændaskólans á Hólum í Hjaltadal. Áður var hann um árabil kennari við bændaskólann á Hvanneyri. Var hann því kennari okkar eldri deildunganna veturinn 1919—1920. Ávann hann sér vináttu okkar og virðingu fyrir ágæta kennslu og áhuga sinn á velfarnaði ís- lenskrar bændastéttar. Nú varð það að ráði að við skyldum halda heim að Hólum og hitta skólastjórann. Ekki er það löng dagleið frá Sauðárkróki og komum við að Hólum að áliðnum degi. Skólastjórahjónin Páll og kona hans frú Guðrún Hannesdóttir bónda að Deildartungu í Borgarfirði, tóku okkur eins og þau ættu í okkur hvert bein. Áttum við þarna mjög ánægju- lega dagstund og gistum við þar um nóttina. Um morg- uninn eftir ákváðum við að fara Hjaltadalsheiði, niður í dragið á Hörgárdal og þaðan, sem leið liggur til Ak- ureyrar. Kl. 1 eftir hádegi, eftir að hafa snætt hádegis- mat, kvöddum við skólastjórahjónin og þökkuðum rausnarlegar móttökur, sem við þurftum enga greiðslu að inna af höndum fyrir. Lögðum því næst af stað fram Hjaltadalinn og yfir heiðina, í ágætu veðri oy færi. Komum við að Ásgerðarstaðaseli, sem mig minnir að væri þá næstfremsti byggður bær í dalnum — laust fyrir háttatíma um kvöldið og fengum okkur þar mjólk og slátur. Þegar bóndi komst að því að við vorum að koma frá bændaskólanum á Hvanneyri, spurði hann okkur hvort við værum ekki dálítið færir í dýralækn- ingum. Egill Jónasson, sem hafði orð fyrir okkur, þá Framhald á bls. 422. Heima er bezt 417

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.