Heima er bezt - 01.10.1983, Síða 4
Björg hefur verið organisti í Garðskirkju í Kelduhverfi rúma fjóra áratugi.
Björg Björnsdóttir varð ef til vill frægust, þegar hún spilaði
og söng í 3 daga fyrir dómnefndina í söngvakeppni Ríkis-
útvarpsins, sigraði glæsilega og reyndist kunna fleiri íslensk
lög og texta en annað fólk.
Björg hefur alla ævi verið í þjónustu hjá drottningu listanna,
tónlistinni, eins og fleiri ættmenn hennar. Bróðir hennar Árni
Björnsson, tónskáld, lærði á sama litla orgelið og hún. Hann
gat sér frægð og frama á þéttbýlli svæðum, en systirin hefur
tryggt fámennri heimasveitinni orgelleik, kórstjórn og tónlist-
arkennslu áratugum saman. En áhrifasvæði hennar er þó ívið
stærra, því um allt Norðurland hefur hún komið til bjargar,
,,svo sveitirnar yrðu ekki sönglausar".
Hulda Á. Stefánsdóttir skrifaði um Björgu sjötuga:
,,Aldrei hef ég orðið fegnari úthlutun Fálkaorðunnar, eins og
þegar ég sá svart á hvítu, að Björgu í Lóni hefði verið veitt
heiðursmerkið “.
312
Heima er bezl
Texti og myndir: Ólafur H. Torfason