Heima er bezt - 01.10.1983, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.10.1983, Blaðsíða 12
Þrjár Skinnastaðarsystra, dætur sr. Hjörleifs Guttormssonar og Guðlaugar Björnsdóttur. Sitjandi: Anna Hjörleifsdóttir. Til vinstri stendur Petrína Hjörleifsdóttir Eldjárn og til hægri er Þórunn Hjörleifsdóttir. Skinnastaðarsystur voru víðfrægar fyrir söngmennt sína og margir frægir tónlistarmenn afkom- endur þeirra. Systurnar voru alls sjö og ein þeirra var Björg Hjörleifsdóttir, föðuramma Bjargar Björnsdóttur. Þessir 4 frændur eru synir hinna frægu og söngelsku prests- dætra frá Skinnastað. Standandi lengst til vinstri er Björn Guðmundsson í Lóni, faðir Bjargar, (sonur Bjargar Hjörleifs- dóttur). í miðið stendur sr. Björn Björnsson í Laufási (sonur Oddnýjar Hjörleifsdóttur). Lengst til vinstri er Kristján Árna- son, kaupmaður á Akureyri (sonur Önnu Hjörleifsdóttur). A stólnum situr svo Angantýr Arngrímsson (sonur Þórunnar Hjörleifsdóttur). Marg, er það nú í þjóðlífinu, sem kvenfólk kynni að skilja betur en karlar, eða jafn vel að minnsta kosti. Ég veit að vísu ekki, hvað ég á að segja um rauðsokkustandið, mér finnst þær nú nokkuð svæsnar að sumu leytinu. Annars er ég alveg á móti því, að konur gangi undir karlmönnum og geri þá svo ósjálfstæða, að þeir viti ekkert hvernig þeir eiga að snúa sér, nema kvenmaðurinn sé einhvers staðar alveg við nefið á þeim. Þegar ég var að vaxa upp, þótti þetta sjálfsagt. Kvenfólkið átti hreinlega að vera tilbúið alltaf hreint að snúast upp og niður fyrir karlmennina. Og ég man eftir því, þegar kvenfólk fór fyrst að taka þátt í féiagsskap og láta að sér kveða, að þá sögðu nú margir karlmenn: „Kvenfólkið, það á nú bara að vera til að elda mat og eiga börn“. Sjálf er ég nú óforbetranleg piparkerl- ing! Margir kirkjuorganistar eru kvenmenn og ég hygg að þeim fari fjölgandi, bæði í organleik og söngstjórn. Og ætli það sé ekki víðar, sem þær eiga eftir að bjarga málunum? 320 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.