Heima er bezt - 01.10.1983, Blaðsíða 29
Guðmundur Héðinsson er reyndasti starfsmaður ISNO og
hefur kynnt sér fiskeldi í Noregi. Hér er hann við einn sjálf-
virka skammtarann. Stundum þarf að handgefa, t.d. á
kvöldin, því rofarnir trufte sjónvarpsendurvarpið úr hlíðinni
réttofanvið.
Til að framleiða 1 kg af fiski hefur þurft um 2 kg af þurr-
fóðri. Litarefni þarf í fóðrið til að fullorðni fiskurinn fái
réttan, rauðanlit áholdið.
Auk laxanna 100 þúsund og seiðanna 240 þúsund í eld-
inu er sleppt árlega um 20 þúsund gönguseiðum í sjó til
hafbeitar frá Lóni. Heimtur hafa þó verið afar misjafnar í
gildrunum í ósnum.
Aðstaðan sem ISNO hefur komið upp í Lóni, auk flotbúr-
anna, er íbúðarhús, sérkennileg skemma klædd segli úr
gerviefni á grind og hafnaraðstaða.
í Noregi voru tekjur af laxeldi 1982 jafn miklar og nam
togaraafla íslendinga. Laxeldi vex í Noregi um 50 % á ári.
Spáð er gríðarlegri aukningu í fiskrækt í heiminum á kom-
andi árum, jafnvel að upp úr aldamótum muni framleiðsla
á ræktuðum fiski verða jafn mikil veiddum fiski.
Heimaerbezt 333