Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1987, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.02.1987, Blaðsíða 5
L_ I Helgi Sæmundsson skáld á heima vestast í Vesturbænum. Þessi síðustu orð minna mig á löngu liðna daga. þegar ungir skólapiltar á stúdentagörðunum við Vatnsmýrina sungu á minnilegum gleðistundum: „Vestast í Vesturbænum hvar vorsólin fegurst skín, þar er eitt þakherbergi og þar býr stúlkan min. Létt er því lundin lífið bjart og ailt er grín, sól gyllir sundin, ég syng um ást og vín.“ Við þetta ljúfa kvæði Sigurðar jarðfræðings Þórarins- sonar sungum við félagar franska melodíu: — Aupres de ma blonde. — Þetta voru bjartir dagar, þegar æskusólin gyllti jafnvel sundin í svartasta skammdeginu og ég fékk aukavinnu við Alþýðublaðið með náminu. Þar las ég próf- arkir á meðan Guðni Guðmundsson síðar rektor þýddi erlendar fréttir af fjarrita í lítilli kompu. Stundum fékk ég að skjótast í hljóðlát fréttaviðtöl, þegar blaðamenn voru ekki viðlátnir, eins og þegar Jón Þorleifsson opnaði mál- verkasýningu í Blátúni. Það var dýrmæt reynslustund. Þarna á blaðinu hafði Helgi Sæmundsson ráðið rikjum um langt skeið, en var um þær mundir að flytjast yfir til þeirrar virðulegu stofnunar, Menningarsjóðs. Þar gerðist hann m.a. ritstjóri Andvara. Um árabil hafði hann einnig setið í Menntamálaráði og gegnt þar formennsku um hríð. Stundum sá ég hann á gangi í kringum Tjörnina, t.d. með Halldór á Kirkjubóli, og þá var sagt að hinir meðlimirnir í úthlutunarnefnd Iistamannalauna sætu og biðu úrskurðar þeirra tvímenninga um það, hvaða skáld eða listmálarar ættu að færast upp í efsta flokkinn. Helgi hafði nefnilega fingur á mörgu og ritaði sífellt um bókmenntir, menning- armál og stjórnmál í blöð og tímarit. Þá minnist ég þess, að við séra Heimir Steinsson. núverandi þjóðgarsvörður, átt- um sæti í svonefndri bókmenntakynningarnefnd Stúd- entaráðs veturinn 1959-’60 og höfðumst mikið að af óstýrilátum menningaráhuga auk þess sem við vorum sí- syngjandi, þegar færi gafst. Þá kom út verðlaunaskáldsag- an Virkisvetur eftir Björn Th. Björnsson. Efndum við fé- lagar til kvöldvöku í setustofu Gamla garðs með kaffi og kertaljósum þar sem Björn Th. las úr bók sinni með hríf- andi seiðmagnan er hæfði rismiklu verki, en Helgi Sæ- mundsson flutti erindi um bókina og fór á kostum án þess að hafa skrifaðan staf fyrir framan sig, enda kvaddur til með litlum fyrirvara. Hann lauk upp fyrir okkur ung- mennum þeim leyndardómi, að fornt sögusvið og skáld- legir atburðir við Breiðafjörð snertu hér ýmsan þjóðfélags- vanda líðandi stundar, að skáldverkið hefði vekjandi hlut- verki að gegna auk þess að vera heilsteypt og myndrænt listaverk. Þetta var ógleymanlegt kvöld andríkis og nota- „Sem barn lifði ég í lokuðum heimi.“ — legra geðhrifa. Auk margháttaðra starfa í þágu lista og menningar hefur Helgi Sæmundsson jafnan verið hrókur alls fagnaðar, hvar sem hann kemur; tilsvör hans oft fyndin og fleyg. Skipaði hann sér m.a. í fræga sveit hagyrðinga, sem Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur hafði með sér í firna vinsælum útvarpsþáttum, sem allir landsmenn, sem heyrðu, fylgdust með af áhuga. Þar voru og Karl ísfeld, Guðmundur Sigurðsson, Friðfinnur Ólafsson og jafnvel Steinn Steinarr. Og orkar þá tvimælis að nota nafngiftina hagyrðingur, a.m.k. um þá Karl og Stein og þegar betur er að gáð einnig um Helga. Hann hafði þá að vísu ekki sent frá sér nema eina ljóðabók og var langt um liðið. Bókina nefndi hann Sól yfir sundum (æskuljóð) og kom hún út í Reykjavík 1940, þegar skáldið stóð á tvítugu og lauk um þær mundir prófi úr Samvinnuskólanum. Og þar orti hann um sundin blá — : „Við sundin blá ég sit um margar nætur, er sólin hnígur björt í djúpsins gröf. Þá get ég fundið frið og raunabætur, er faðmar kyrrðin lönd og höf.“ II Helgi var fæddur nærri sjónum, á Stokkseyri, þann 17. júlí 1920. Foreldrar hans voru hjónin Sæmundur Benediktsson sjómaður og verkamaður og Ástríður Helgadóttir, og er Helgi næst yngstur af níu börnum þeirra. Maður skynjar þegar í æskuljóðum Helga, að hafið hefur haft sterk áhrif á anda hans líkt og fleiri listamanna frá Stokkseyri og Eyrarbakka. Sær er fyrsta orðið í fyrsta ljóði bókarinnar og þar brotna öldur fjörusteinum á. Og í öðru ljóðinu, sem er um heimabyggðina, ber aftanþeyrinn hljóðleik yfir hafið. Þar ómar einnig brimgnýr, er hafið knýr sterka strengi. Það varð og dánarreitur hraustra sveina. sem skáldið þekkti. I þriðja ljóðinu siglir hann yfir sundin sumarblá og endar á orðunum: Heima er bezt 41

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.