Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1987, Page 7

Heima er bezt - 01.02.1987, Page 7
III — Það er nú kannski of mikið sagt. að ég hafi haft verk margra ljóðskálda undir höndum þarna í einsemd bernsk- unnar. Ég ólst upp í umhverfi þar sem flestir voru verkamenn og sjómenn og varla við því að búast, að á heimilum væri fjölbreyttur eða mikill bókakostur. Um fermingu komst ég fyrst í kynni við íslendingasögur í útgáfu Sigurðar Krist- jánssonar og þær urðu mér óþrjótandi náma í einverunni, bæði til skemmtunar og þroska. Eins varð Biblian mér mikil lesbók. sérstaklega Gamla testamentið. íslenska Biblíuþýðingin frá 1915 er gersemi. Þó er rétt að taka það fram. að mér finnst hún betri og fallegri á Nýja testament- inu. Gamlatestamentisþýðingin er meira skrúfuð málfars- lega og fjarlægari. — — Mér kemur þá í hug, þegar þú getur kynna þinna af Biblíunni, að þeirra gætir ótvírætt sumstaðar í ljóðum þín- um og þá ekki síst í III. kafla bókarinnar „Sunnan í móti“. Þar er m.a. þessi sálmur um Krist: „Ég sá þig hreinsa musterið og heyrði mál þitt gjalla er bliki sló á svartnættið og barst um veröld alla, og þjóðln vissi glöð og djörf að þá var runninn dagur er kominn væri að lýsa oss sem kyndill skær og fagur. Ég trúi, guð, á þetta Ijós þó gerist dimmt á jörðu hér, ég fagna því í bæn og saung og finn að þú ert nálægt mér.“ — En skáldið, sem skipti mig mestu máli á uppvaxtar- árunum, var Þorsteinn Erlingsson. Það var þó ekki vegna hinnar hvössu ádeilu eða róttækra, pólitískra viðhorfa hans, heldur hreif hann mig mest sem náttúruskáld og fyrir málfarið. Hann hóf talmálið upp í skáldlegar víddir. Það gerði Tómas Guðmundsson raunar síðar og þannig er um- talsverður skyldleiki með þessum gjörólíku skáldum. Árið 1935, þegar ég var fimmtán ára gamall, fluttumst við frá Stokkseyri út í Vestmannaeyjar. Þar urðu tvö skáld mér sérlega hugstæð, vegna þess að þau tengdust þessu byggðarlagi og höfðu búið þar. Voru það skáldin Örn Arnarson og Sigurður frá Arnarholti. Erni kynntist ég ekki persónulega, enda var hann þá farinn úr Eyjum, en Sigurði kynntist ég síðar. Var hann mjög þekkt og umtalað skáld um þær mundir. Hann lést árið 1939. En þarna komst ég að raun um það, hversu byggðarlög meta það mikils, þegar skáld tengjast þeim og setja svip sinn á mannlífið. Eftir flutningana út í Eyjar var ég til sumardvalar í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum. Var þar þrjú sumur frá því ég var sextán ára og dvaldi þar mest til hressingar vegna þess langvarandi heilsuleysis, sem ég minntist áður á. Var ég í svonefndum austurbæ, en í hábænum í Stóru-Mörk var Þorsteinn Erlingsson fæddur og fólk mundi hann þarna. Húsbóndinn í hábænum var úr Fljótshlíðinni, svo það voru sannarlega þræðir á milli hans og Þorsteins. Og allt var fólkið í Stóru-Mörk mikið í bókmenntum, já, það lifði og hrærðist í skáldskap. Þar voru áhrif Þorsteins sterk, svo við lá að maður fyndi til návistar hans. Ég hafði byrjað að yrkja sem krakki, en sú tilhneiging óx um allan helming í Stóru-Mörk. Þegar ég gaf svo út kverið Sól yfir sundum. þá tvítugur að aldri, birtist þar kvæði sem ég orti 17 ára á fæðingarstað Þorsteins. Þá vil ég skjóta því hér inn í, að útgefandi þessarar bókar var vinur minn og velgjörða- maður, Guðjón Halldórsson bankamaður, bróðir Sigfúsar tónskálds og myndlistarmanns. En þetta kvæði, sem ég nefndi „í dag er pabbi á sjó“ tók ég síðan aftur upp í bókina Sunnan í móti, sem kom út 35 árum síðar. Þetta fimmtíu ára gamla æskuverk endurspeglar í senn drauma, veruleika og heimþrá: 1 dag er sólskin á sænum, sumarilmur í blænum, í dag er vermandi vor. Hugi úr fjöru til fjalla fagnandi raddir kalla, vordýröin undrar alla, öllum er létt um spor. „En skáldið, sem skipti mig mestu máli á uppvaxtarárunum, var Þorsteinn Erlingsson.“

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.