Heima er bezt - 01.02.1987, Side 27
var sauðfé búið að standa inni í 22 vikur og margir bændur
að verða heylausir.
Þá var það að fimm bændur í Mælifells- og Reykja-
sóknum ákváðu að reka fé sitt fram í Þorljótsstaðarunu.
Þeir voru: Séra Jón Magnússon á Mælifelli, Bjarni Bene-
diktsson bóndi í Hamarsgerði, Jón Tómasson bóndi í
Brekkukoti. Hann var sonur Tómasar Tómassonar hrepp-
stjóra á Syðra-Vatni, mikill á velli og hraustmenni. Þor-
grímur Bjarnason bóndi á Starrastöðum, góður bóndi með
allstórt bú. Hann átti þá skammt ólifað. Á næsta ári veiktist
hann og dó á Akureyrarspítala. Eftir hann orti Matthías
Jochumsson hið ágæta kvæði „Þorgrímur á spítalanum“.
Fimmti ábúandinn, er rak fé sitt í Runu, var Elín Arnljóts-
dóttir á Hafgrímsstöðum. Hún bjó þar með ráðsmanni, er
hét Stefán Jóhannesson. Vinnumaður þar var Jóhannes
Sigvaldason 24 ára.
(17. apríl). Síðasta sunnudag í vetri fór Jón Tómasson
fram að Þorljótsstöðum til þess að fá leyfi landeiganda. Þá
bjó á Þorljótsstöðum Hjálmar Þorláksson, síðar bóndi í
Villingadal, með fyrri konu sinni, Kristínu Þorsteinsdóttur.
Hjálmar tók erindinu vel, og sagði, að það væri velkomið
að fara með féð í Runu, ef það gæti orðið til bjargar.
Frá þessum fimm bændum, sem nefndir hafa verið, var
11 hundruð fjár rekið fram í Runu, þar af 4 hundruð eða
fleira frá Mælifelli. Það voru ær og gemlingar. Nokkrir
sauðir voru frá Mælifelli, en ekki voru sauðir frá öðrum
bæjum. í sumarmálavikunni var féð rekið áleiðis fram í
dalinn, líklega seinni part vikunnar, því á sumardaginn
fyrsta var norðanhrið með talsverðu frosti. Á sunnudaginn
fyrsta í sumri, var hiti heldur yfir frostmarki, en snjóaði
feiknamikið í logni og frysti svo aftur. Eftir það var stillt tíð
fram um miðjan maí að hlánaði, en kalt og frost um nætur.
950 fjár var rekið í einum hóp fram Tungusveit með
bæjum. Jóhannes Sigvaldason fór degi síðar með
Hafgrímsstaðafé 150 fjár. Féð var rekið í einum áfanga fram
að Bjarnastaðahlíð, en frá Mælifelli og þangað eru rúmir 20
km.
Séra Jón Magnússon var sjálfur með fé sínu, var ríðandi
og teymdi hest sinn á undan. Nokkur stóðhross voru rekin á
undan fram að Sveinsstöðum, því ófærðin var átakanleg.
Björn Þorkelsson bóndi á Sveinsstöðum bauðst til að láta
gefa fénu og var 800 fjár gefið þar, látið í fjárhús og hesthús
og gefið til skiptis. 150 fjár var gefið á Hóli.
Björn á Sveinsstöðum lánaði fjóra fola, sem hann hafði á
húsi, til að troða slóð á undan fénu fram að brú.
Þennan vetur var minni snjór í Vesturdal fyrir framan
Jökulsá, og á sumum bæjum þar einhver beit fyrir fé. Þá var
Sveinn Guðmundsson bóndi í Bjarnastaðahlíð. Mælt er, að
Sveinn bóndi hafi sagt við séra Jón Magnússon, þegar hið
mikla fjársafn var komið þangað, að nú hafi verið gott að
hafa brúna á Jökulsá, en prestur hafi fáu svarað.
Þann tima, sem féð var i Runu, voru þrír gæzlumenn, er
héldu til á Þorljótsstöðum og gengu í kringum féð á hverj-
um degi. Auk þeirra fór Hjálmar bóndi oftast með þeim.
Jóhannes Sigvaldason vinnumaður á Hafgrímsstöðum
var allan tímann. Guðmundur Guðmundsson vinnumaður
á Starrastöðum var fyrstu dagana, en varð veikur í augum
af snjóbirtu og varð að fara heim. Eftir það voru þeir til
skiptis Þorgrímur á Starrastöðum og Jón í Brekkukoti.
Guðmundur Guðmundsson hafði verið vinnumaður hjá
séra Jóni á Mælifelli frá því hann kom þangað, en fluttist
árið áður að Starrastöðum.
Þriðji fjárgæzlumaðurinn var Þorvaldur Jónsson frá
Mælifelli, kenndur við Staðartungu í Hörgárdal. Jóhannes
Sigvaldason segir, að hann hafi verið vinnumaður á Mæli-
felli, en hann er ekki skráður þar á manntali, en gæti hafa
verið vetrarmaður. Jóhannes lýsir Þorvaldi þannig: Hann
var elztur þeirra göngumanna, kominn um sextugt,
meðalmaður á hæð, þrekinn, fríður sýnum, kringluleitur,
með alskegg ofan á bringu, skáldmæltur og skemmtilegur,
þótti gott vín.
Þegar féð var komið fram i Runu var þar rauð jörð að
mestu, snjór aðeins í skurðum og lægðum. Hofsá var á
þilju, það er ísi lögð víðast, og snjór var svo mikill vestan ár
á Lambatungum, að ekki sá á dökkan díl.
Féð var spakt í Runu, enda hafði það nóg að bíta. Á
hverjum degi var gengið í kringum það. Tveir menn gengu
fram Runubrúnir, en einn fram vestan árinnar. Fjórði
maðurinn, Hjálmar bóndi, fór oftast fram að Illagili til að
reka fram fyrir, það sem vildi fara. Nokkrar kindur voru
óþægar og vildu snúa heim. Það var mórauð forystuær, sem
Þorvaldur átti, og þrír eða fjórir sauðir frá Mælifelli. Þegar
leið á tímann fór féð að renna vestur yfir ána, því það gat
víða komist yfir hana á ís og snjó. Þar var gönguleiðum
breytt þannig að einn gekk fram Runubrúnir en tveir fram
vestan ár.
En loksins kom vorið. 11. eða 12. maí gerði sunnanátt
með miklum hlýindum og kom þá fljótt vöxtur í allar ár.
Um morguninn þegar hlákan var komin fóru þeir vestur
yfir á á Lambamannavaði, Jóhannes, Þorvaldur og
Hjálmar á Þorljótsstöðum. Þeir fóru yfir á hestum, þvi áin
var farin að renna ofan á ísnum. Um hádegi kom Þor-
grímur fram eftir með mat handa þeim, sem fyrr höfðu
farið, en þá var áin orðin svo mikil, að hann treysti sér ekki
að ríða hana. Hann reyndi að kasta matarpakka vestur yfir,
en það tókst ekki, straumurinn tók hann.
Nú var svo komið að meira en helmingur af fénu, 600
fjár, var komið vestur yfir á og áin svo mikil að engin leið
var að reka það yfir í Runu. Hjálmar var kunnugur og
ráðagóður og sá það ráð eitt að reka féð upp á hálendið
fram fyrir Hraunþúfugil og Runugil. Þeir ráku féð fram
undir Klaustur um kvöldið og um nóttina var Jóhannes
sendur upp fyrir Hraunþúfugil, til að vita, hvort ís væri á
kvíslinni, sem fellurofan í Hraunþúfugil, því Hjálmar vissi,
að ef Hraunþúfukvísl væri á ís, þá væri Runukvísl það líka,
á Neðribökkum fyrir framan Runugil.
Þegar Jóhannes var kominn aftur, lögðu þeir af stað með
féð upp á fjallið. Færi var vont, því krapablár voru á leið-
inni, sem varð að sneiða fyrir. ísinn á kvíslinni var ótryggur,
laus frá löndum og varð að gæta þess, að fáar kindur færu
yfir í einu, en það gekk slysalaust. Síðan ráku þeir féð
austur yfir Hraunþúfumúla og yfir Runukvísl á góðum ís
fyrir sunnan Móalingskinn. Þá lá leiðin út með Runugili að
austan og ofan Gatbrík fremst í Votugeirum. Þá var mikill
Heimaerbezt 63