Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1990, Side 4

Heima er bezt - 01.05.1990, Side 4
Séra Gunnar Bjömsson í Holti A meðan þú getur haldið þeim í góðu skapi, þá er alltaf von - Viðtal við Hjört Hjálmarsson, fyrrum skólastjóra, heiðursborgara Flateyrar "yn«n, !kÓ^'“ Ætt og uppruni Ég fæddist 28. júní 1905 á Þorljótsstöðum, fremsta bæn- um í Vesturdal í Skagafirði. Sagt var, að þaðan væri tveggja daga lestarferð út á Sauðárkrók, en tólf tíma gangur fram að Hofsjökli. Foreldrar mínir voru hjónin Hjálmar Þorláksson og Kristín Þorsteinsdóttir. Þau gengu í hjónaband árið 1898, en slitu samvistir, þegar ég var ársgamall. Pabbi og mamma náðu bæði að verða áttræð. Hann dó hjá sonum sínum í Villingadal í Eyjafirði. En mamma, sem hafði fylgt mér lengst framan af, var síðast hjá Steinunni, systur minni á Reykhólum á Barðaströnd. Við vorum þrjú, alsystkinin. Elst er Steinunn, sem enn lifir. Hún átti fyrr Þórarin Árnason frá Miðhúsum í Reyk- hólasveit, en síðar Tómas Sigurgeirsson frá Stafni í Reykjadal. Þau Steinunn og Þórarinn bjuggu um skeið á Hólum i Hjaltadal, þar sem Þórarinn hafði skólabúið á leigu. Steinunn og Tómas bjuggu á Miðhúsum og síðar á Reykhólum. Næstelst var Snjólaug ljósmóðir. Hún fékk tæringu og dó á Vífilsstöðum, aðeins þrítug að aldri. Hún hafði þá starfað lengi á Austurlandi og meðal annars tekið á móti Gerði Helgadóttur, listakonu. Mikið vinfengi var með foreldrum Gerðar og Snjólaugu Hjálmarsdóttur. Þess vegna hefði ég leitað til Gerðar, þegar steindu gluggarnir tveir voru búnir til í kirkjuna á Reykhólum til minningar um móður mína og Snjólaugu, ef mér hefði dottið sú framkvæmd í hug fyrr. En það varð útslagið, að Leifur Breiðfjörð var fenginn til þess að vinna verkið. Þá var Gerður látin. Á Skíðastöðum í Laxárdal bjó Hjörtur Hjálmarsson, afabróðir minn. Þegar hann fregnaði giftingu foreldra minna, gerði hann sér ferð fram að Þorljótsstöðum til þess að panta hjá þeim nafn, ef þau skyldu eignast son. Pabbi var góður miðlungsmaður á hæð, drjúgur til verka og raunar röskleikamaður. Við erum nokkuð líkir í útliti, en síðustu árin var hann kominn með gríðarstórt alskegg. Mamma var tæplega meðalkvenmaður á hæð, ákaflega kvik og rösk. Hún var feiknadugleg. En hún var ansi stór- lynd og mikil geðbrigðamanneskja. Ég hygg, að foreldrum mínum hafi oft sinnast út af því að henni hafi þótt pabbi fullrólegur. Það var svo mikill hugur í mömmu. Ég hefi sennilega talsvert meira af skaplyndi pabba. Hálfbræður mínir í Villingadal hafa verið miklir dugnaðarmenn og komið sér upp myndarbúi þar. Eftir skilnaðinn flutti faðir minn norður í Eyjafjörð og varð fyrst ráðsmaður hjá Birni Líndal á Kaðalstöðum í Fjörðum, en bjó síðar eigin búi, fyrst á Hólsgerði í Eyjafirði 148 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.