Heima er bezt - 01.05.1990, Page 22
Tryggvi Þórhallsson.
Verður ekki frekar farið út í þá sálma í þessum inngangi, en
óneitanlega dró þetta til nokkurs stundarsamkomulags
milli Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins. Þá gripu
menn, eins og vant var, til þjóðaríþróttarinnar. Bjarni Ás-
geirsson á Reykjum (þm. Mýr.) á að hafa kveðið:
Óvarlegur ástarblossi
oftast hefur bruna í för.
Áblástur af íhalds kossi
er á Kaupa-Héðins vör.
Er hér sneitt að Héðni Valdimarssyni, öðrum aðalleið-
toga Alþýðuflokksins.
Jafnframt þingrofinu var ákveðið að skjóta málinu undir
dóm þjóðarinnar í þingkosningum 12. júní, þ.e. í öllum
hinum sérstöku kjördæmum landsins, en þingrof náði ekki
til landskjörinna þingmanna, og var kjörtímabil þeirra 8 ár.
Vitað var að ætlun Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins
hafði verið að breyta kjördæmaskipuninni í áttina til þess
sem nú er og jafna svo kosningarétt manna sem mjög var
misjafn eftir búsetu, sem best sást eftir kosningarnar.
Úti um land var mörgum ofarlega í huga við kosning-
amar að gömlu kjördæmin (sýslurnar) yrðu ekki afnumin.
Þingmenn voru um þessar mundir 42 alls, 6 landskjörnir
(í tvennu lagi) og 36 kjörnir í sérstökum kjördæmum, einu
fjögurra manna, 6 tvímennings- og 20 einmenningskjör-
dæmum.
Framsóknarflokkurinn vann mikinn sigur í dreifbýlinu
1931. Hann fékk alls 21 þingmann út á 13.844 atkv. (35.9%),
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 12 þingmenn út á 16.891 atkv.
(43.8%) og Alþýðuflokkurinn 3 þingmenn á 6.197 atkv.
(16.1%). Kommúnistaflokkurinn fékk 3% atkvæða og eng-
an þingmann.
Fyrir voru á alþingi (landskjörnir 1926 og 1930), þrir
Sjálfstæðismenn, tveir Framsóknarmenn og einn Alþýðu-
flokksmaður. Framsóknarflokkurinn hafði sem sagt fengið
hreinan meiri hluta á þinginu, 23 alls, Sjálfstæðismenn
voru 15 og 4 Alþýðuflokksmenn.
En galli var á gjöf Njarðar eins og fyrri daginn. Sam-
kvæmt stjórnarskránni áttu allir landskjörnu þingmenn-
irnir sæti í efri deild, en ekki nema 8 af hinum kjördæma-
kjörnu, kosnir þangað hlutfallskosningu af sameinuðu
þingi. Skipan efri deildar varð því: 7 Framsóknarmenn, 6
Sjálfstæðismenn og 1 Alþýðuflokksmaður. Hér höfðu sem
sé Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn stöðvunar-
vald, ef þeir stóðu saman.
Eftir hinn mikla kosningasigur flokks síns endurskipu-
lagði Tryggvi Þórhallsson ráðuneyti sitt. Frá 20. ágúst var
stjórnin skipuð honum sjálfum, forsætis- og atvinnumála-
ráðherra, Jónasi Jónssyni dóms- og menntamálaráðherra,
og Ásgeiri Ásgeirssyni, sem nú varð ráðherra fyrsta sinn,
fjármálaráðherra.
Brátt kom í ljós að stjórnin kom ekki nauðsynlegum
málum gegnum efri deild, ef engin fyrirheit fengjust um
lausn kjördæmamálsins, og það þóttust nú sumir leiðtogar
Framsóknarflokksins vilja reyna. Ríkisstjórnin taldi sig í
vonlausri stöðu, og Tryggvi Þórhallsson baðst lausnar 28.
Héðinn Valdimarsson.
166 Heimaerbezt