Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1994, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.09.1994, Blaðsíða 17
Bílstjórinn þeytti sírenuna og tók stefn- una á sjúkrahúsið með miklum hraða. Þeir fylgdu mér í lyftunni á fund sjúkraliðsins. Þar tók læknir á móti mér. Eg spurði hann hvort ekki væri bót að því að leggja heitan bakstur við þetta. Hann sagði að það mætti nú síst af öllu að gera við þessar aðstæður. Ég myndi vera með sprunginn maga. Eftir nokkra dvöl þarna gaf læknirinn mér svo sprautu og það linaði þjáningamar verulega. Síðan kom hjúkrunarkona til mín og rakaði mig allan að framan. Að því búnu var einhverju rauðleitu efni sprautað um allt kviðarholið. „Til hvers er þetta gert?“ spurði ég. „Þetta á að drepa bakteríurnar," sagði hún Eftir nokkum tíma birtist svo Bjarni Rafnar læknir, en hann gegndi yfirlæknisstörfum á handlækninga- deildinni nokkum tíma eftir fráfall Guðmundar Karls. Hann sagði við mig að það yrði ekki komist hjá því „að opna“ eins og hann sagði. Hann laut fast að andliti mínu þegar hann sagði þessi orð. Það er víst einhver venja að leita samþykkis sjúklings fyrir öllum meiri háttar aðgerðum. Ég kinkaði kolli og hjúkrunarkonur, ég held einar tvær, klæddu mig síðan úr öllum fötunum. Ég var nú orðinn meðvitundarlítill og síðustu orðin sem ég heyrði voru þessi: „Á morgun yrði það of seint,“ og það var Bjami Rafnar sjálfur sem sagði þetta. Þá fyrst skynjaði ég að hér var alvara á ferðum. Síðan vissi ég ekki af mér meir. Ég varð aldrei var við neina svæfingu. Mér fannst ég vera kominn heim til fjölskyldu minnar og líða þar um íbúðina í lausu lofti. Ég reyndi að vekja at- hygli konu minnar og bama á mér en án árangurs. Ég skynjaði í svefninum að hér átti ég ekki að vera að réttu lagi, heldur inni á spítala. Nokkru eftir aðgerðina rankaði ég aðeins við mér. Kona mín og móðir stóðu við rúmstokkinn hjá mér en við þær gat ég að sjálfsögðu lítið tal- að en þó gladdi það mig verulega að sjá þær. Mjó slanga lá gegnum aðra nösina og niður í maga. I gegnum hana var sogað upp úr maganum það sem þar var eftir. Mér leið ekki svo óskaplega illa og hjúkrunarkonurnar gáfu mér deyfilyf. Tveir menn lágu í herberg- inum hjá mér, báðir mjög þungt haldnir eftir stóraðgerðir. Á þessum árum var engin sérstök gjörgæsludeild á spítalanum. Hins vegar var fengin sérstök hjúkrunar- kona til að vaka yfir okkur þremenn- ingunum fyrstu nóttina sem ég var þarna. Ég var í hálfgerðu roti eftir fyrstu nóttina. Um morguninn kom svo hjúkrunarkona og rnældi í mér hitann. Hann var 38 gráður að sögn henn- ar. „Þetta er bara ekki neitt,“ sagði hún. Þama smáhjamaði ég svo við en dagamir voru lengi að líða og ég gat lítið hreyft mig. Einn dagur öðmm fremur var einkennilega fljótur að líða. Mér leið allt í einu eitthvað svo vel. Var þetta einhver helfró sem færðist yfir mig? Var þetta kannski lokadagur minn að renna sitt skeið? Eina nóttina Iá ég and- vaka og ömurlegar hugsanir sóttu á mig. Var ekki hugsanlegt að þetta væri krabbi og þá gæti lífsbaráttan vissu- lega orðið tvísýn. Ég þrýsti á bjöll- una og að vörmu spori birtist hjúkr- unarkona. „Er eitthvað að?“ spurði hún hlý- legri röddu. „Mér finnst þetta allt vera orðið eitthvað vonlaust. Heldurðu ekki að þetta geti verið krabbi sem að mér gengur?“ spurði ég hana enda þótt ég vissi að hún myndi ekki geta gefið mér fullnægjandi svar. „Það eru engar líkur á því held ég, en Bjami veit þetta trúlega því hann tók sýni úr sárinu. En reyndu um- fram allt að vera bjartsýnn.“ „Viltu spyrja hann að þessu fyrir mig?“ sagði ég. „Já,“ svaraði hún. Um morguninn, þegar Bjami kom á stofugang, sagði hann við mig í óspurðum fréttum, að ég þyrfti ekk- ert að óttast. Þetta væri ekkert ill- kynja, bara venjulegt magasár. Mér létti mikið við þessi orð hans. Heima er best 301

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.